Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Birkir Kristján hundaröltari: „Ég missti alla hundana mína á tímabili“

Birkir Kristján hundaröltari: „Ég missti alla hundana mína á tímabili“

„Þetta er ekki alltaf auð­veld vinna. Hund­arnir eru ekki allir jafn­stilltir og sumir eru mjög erf­iðir í taumi eða krefj­andi á annan hátt. Ég hef verið að sjá um nokkra hunda sem geta alls ekki verið í hópi og hef þurft að taka þá einn og einn í einu. Ég labba í mesta lagi með þrjá í taum­göngu en leyfi mér að taka fjóra saman þegar ég fer með þá á hunda­svæði í lausa­hlaup. Svo eru sumir hundar flottir í hópi en ómögu­legir með ein­hverjum öðrum ákveðnum hundi. Það býður til dæmis oft upp á vand­ræði að láta tvo ógelda rakka og eina tík leika saman. En yfir­leitt gengur þetta bara rosa­lega vel og allir eru ánægðir,“ segir Birkir Kristján Guð­munds­son sem hefur í mörg ár unnið við að fara í göngut­úra með hunda.

Þegar ég var lít­ill var ég mjög oft að banka upp á hjá nágrönn­unum og bjóð­ast til að labba með hundana þeirra.

„Ég hef elskað hunda alveg frá því að ég man eftir mér. Ég átti samt aldrei hund sjálfur þegar ég var að alast upp. Þegar ég var lít­ill var ég mjög oft að banka upp á hjá nágrönn­unum og bjóð­ast til að labba með hundana þeirra. Þá var ég ekki enn búinn að átta mig á því að ég gæti fengið borgað fyrir það.

Ég eign­að­ist minn fyrsta hund þegar ég var sautján ára en þá eign­að­ist ég kær­ustu og hund­ur­inn hennar, Figo, fylgdi með í kaup­bæti. Við byrj­uðum fljót­lega að búa saman og Fígó varð eins og barnið mitt á skömmum tíma. Stuttu eftir að hann dó sótti ég mér nýjan hund úr sveit­inni sem hafði verið aug­lýstur á Dýra­hjálp. Það er hann Tinni minn sem er Border Collie/Labrador-blanda og kemur með mér í nán­ast allar hunda­göng­urnar mínar. Ég fór þá á mitt fyrsta nám­skeið í Hunda­Aka­dem­í­unni og fékk þá enn meiri áhuga á hundum og atferl­is­fræði hunda. Ég fór svo á þrjú önnur nám­skeið með Tinna í Hunda­Aka­dem­í­unni en að ala hann upp var mjög krefj­andi verk­efni þar sem hann var alltof lengi í sveit­inni. Öll þessi vinna borg­aði sig samt því hann er mjög stilltur og góður strákur í dag og ég lærði hell­ing sem gagn­ast mér mikið í vinn­unni.“

Allt í allt hef ég örugg­lega unnið fyrir 30-40 aðila þó ég hafi nú aldrei tekið það saman.

Birkir segir að þegar Tinni var nýkom­inn til hans hafi önnur fjöl­skylda í hverf­inu líka verið með nýja hvolp. Þetta var árið 2014. „Við hitt­umst oft á opnu svæði og leyfðum hund­unum að leika sér. Eigandi hvolps­ins bauð mér svo einn dag­inn að taka sinn hund með þegar ég og Tinni færum í hádeg­is­göng­una okkar og borga mér fyrir. Svo það má segja að ég hafi bara algjör­lega slys­ast út í þessa vinnu. Svo fór orðið að ber­ast út meðal hunda­eig­anda í hverf­inu og fleiri og fleiri fóru að bæt­ast við. Rétt áður en Covid skall á var ég far­inn að labba með sex til sjö hunda alla virka daga. Allt í allt hef ég örugg­lega unnið fyrir 30-40 aðila þó ég hafi nú aldrei tekið það saman. En eftir að Covid skall á fóru allir að vinna heima hjá sér, ég missti alla hundana mína á tíma­bili og fór að vinna bæði hjá félags­þjón­ustu eldri borg­ara á Sel­tjarn­ar­nesi og á skyndi­bita­stað. Hund­arnir komu svo hægt og rólega til baka og það er eig­in­lega bara nýlega orðið aftur eitt­hvað að gera hjá mér í þessu þó mínir bestu dagar í dag séu ekk­ert miðað við hvernig þeir voru fyrir Covid.“

Hunda­vinnan er samt lang­skemmti­leg­asta vinna sem ég hef nokkurn tím­ann unnið.

Birkir segir að áður en hann fór út í þessa atvinnu­grein hafi hann meðal ann­ars unnið við bók­hald, sem plötu­snúður og við­burða­stjóri, þjálfað knatt­spyrnu og rekið íþrótta­hús og keyrt út pít­sur. „Ég byrj­aði mjög snemma að vinna á kassa í Bónus og einu sinni var ég að selja heima­gert vegan-mæj­ónes þannig að ég hef prófað ýmsa hluti. Hunda­vinnan er samt lang­skemmti­leg­asta vinna sem ég hef nokkurn tím­ann unnið. Ég hef líka haldið fleiri tón­leika en ég gæti talið, bæði fyrir sjálfan mig og aðra tón­list­ar­menn, en ég hef verið að gefa út tón­list undir nafn­inu Bróðir BIG frá 2015.“

Áhuga­samir geta leitað að Birkir Dogwalker á Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum