Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kristinn Hrafnsson sammála Ingibjörgu: „Realpólitíkusar hugsa ekkert um tilfinningasemi“

Kristinn Hrafnsson sammála Ingibjörgu: „Realpólitíkusar hugsa ekkert um tilfinningasemi“
Kristinn Hrafns­son

Kristinn Hrafns­son rit­stjóri Wikileaks horfði á Silfur Egils á Rúv í gær­kvöldi en þar var Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir meðal við­mæl­anda. Tjáði Kristinn sig á Facebook og sagð­ist sam­mála Ingi­björgu Sólrúnu varð­andi bestu lausn­ina í stríð­inu í Úkraínu.

„Mér þótti áhuga­vert að heyra Ingi­björgu Sólrúnu nefna í Silfrinu hina aug­ljósu lausn til að enda stríðið í Úkraínu og stöðva blóð­baðið sem er nú þegar orðið alltof mikið og gæti orðið miklu hrylli­legra. Leyfa Rússunum í Krím sem kusu að til­heyra Rúss­landi að til­heyra Rúss­landi, leyfum Rússunum í Donetsk og Luhansk að vera sjálf­stjórn­ar­svæði í friði og fá Úkra­ínu­stjórn til að lýsa því yfir að landið verði utan hern­að­ar­banda­laga.“

Því næst kemur Kristinn með hug­takið „realpóli­tíkus“ sem hann segir Ingi­björgu vera.

„Nú nú, þarna gæti ein­hver sagt að Pútín hefði þar með náð til Ingi­bjargar en hún er svo sem ekki að segja annað en aðrir realpóli­tíkusar hafa sagt árum saman m.a. Henry Kiss­in­ger í grein árið 2014. Realpóli­tíkusar hugsa ekk­ert um til­finn­inga­semi og er slétt sama um hin helgu gildi sem voru til umræðu í Silfrinu (lýð­ræði, mann­rétt­indi, frelsi) enda nokkuð ljóst að Kiss­in­ger hefur aldrei látið slíka smá­muni þvæl­ast fyrir sér.

En mann­úð­ar­sjón­ar­mið geta stundum rekið mann í raun­sæið og þetta er lík­leg­ast rétt mat hjá Ingi­björgu. Það eru ekki margir aðrir val­kostir aðrir en að sjá blóðið renna í stríðum straumum og flótta­menn flæm­ast úr heima­landi sínu í millj­ón­a­tali.“

Fyrir þá sem eru ósam­mála eft­ir­gjöf til Rússa, bendir Kristinn á að bestu frið­ar­samn­ing­arnir séu þeir sem skilaj alla eftir óánægða.

„Þarna gætu ein­hverjir sagt að Pútín fengi allt of mikið útúr þessu og eft­ir­gjöfin sé of stór. Bestu frið­ar­samn­ing­arnir eru þeir sem skilja alla eftir óánægða. Krím­skagi er hvort eð er far­inn fyrir löngu. Hæglega gæti orðið til frið­ar­auka til lang­frama fyrir Úkra­ínu­menn að losna við rúss­nesku­mæl­andi sov­ét­róm­an­tíku­sana handan við girð­ingu og staða Úkraínu utan NATO er ekki flókn­ari en að gera þá að ópin­berum leyni­fé­lögum í banda­lag­inu, eins og Svíar og Finnar hafa verið árum saman. Það mætti selja þeim vopn í stórum stíl til varnar, m.a. gætu Svíar selt þeim Gripen her­þot­urnar sem þeir losna hvort eð er illa við nema greiða með þeim mútur.“

Þá bendir rit­stjór­inn skel­eggi á að hreyf­ingar á landamæra­línum sé engin nýlenda í nær­sög­unni og tekur til nokkur dæmi.

„Hreyfing á landamæra­línum er ekk­ert sér­lega mikil van­helgun og hefur gerst ítrekað í nær­sög­unni. Það þótti ekki til­töku­mál að sneiða af Serbíu, ekki var sér­lega mikið uppi­stand þó Tyrkir her­tækju Afrín hérað í Sýrlandi, drápu þar fjölda manna – þar á meðal Hauk Hilm­ars­son, flæmdu aðra íbúa af heim­ilum sínum og fylltu þau með liðs­mönnum hreyf­inga sem eru næsti­bær við ISIS. Og af því helm­ingur íbúa nyrst á Írlandi vildi til­heyra Bret­landi varð til sneið­ingur af eyj­unni grænu sem hefur við­hald­ist, með tals­verðum ófriði að vísu, býsna lengi.“

Að lokum talar Kristinn um nauð­syn þess að ræða um þá hluti sem við viljum vernda í breyttum heimi.„Í Silfrinu mælti Brynja Huld vit­ur­lega um að það yrði að end­ur­skoða örygg­is­stefnu lands­ins og Þor­gerður Katrín hefur svo sem rétt fyrir sér líka að öryggis- og varn­ar­mál eru ekki lengur skil­greind ein­göngu útfrá dátum, sprengjum, stálfuglum og víga­flotum. Auðvitað er löngu tíma­bært að ræða stöðu okkar í breyttum heimi. Þó fyrr hefði verið. Það væri þá einnig gustuk að ræða þá sam­hliða opin­skátt þessi heilögu gildi sem eiga að vera grund­völlur þess sem við viljum verja, það er lýð­ræðið, mann­rétt­indin og frelsið.Það er nú heldur betur eitt og annað þar sem hefur ekki verið „á dag­skrá“ en þyrfti nauð­syn­lega að ræða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu