Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ung kona var myrt af eiginmanni sínum í Hamraborg í Kópavogi: Morðið var framið í stundarbrjálæði

Ung kona var myrt af eiginmanni sínum í Hamraborg í Kópavogi: Morðið var framið í stundarbrjálæði

Aðfara­nótt fyrsta dags nóv­em­ber­mán­aðar árið 2004 var lög­reglan kvödd að fjöl­býl­is­húsi í Kópavogi. Ung kona var látin og eig­in­maður hennar ját­aði á staðnum að hafa banað kon­unni. Um var að ræða fjöl­skyldu­fólk sem lifði hefð­bundnu lífi og var ekki í óreglu. Morðið var ástríðu­glæpur, framið í stund­ar­brjál­æði.

„Oft er um að ræða ástríðu­glæp milli maka eða fyrr­ver­andi maka þar sem annar aðil­inn kemst að því að hann hafi með ein­hverjum hætti verið svik­inn, t.d. haldið fram hjá. Yfir­leitt er um að ræða skyndi­legar aðstæður sem koma ger­and­anum að óvörum. Fórn­ar­lömbin hafa líka oft verið brot­leg í sam­band­inu með ein­hverjum hætti,“  sagði Anna Kristín Newton, rétt­arsál­fræð­ingur í sam­tali við Vísi um málið á sínum tíma.

Á Íslandi ganga um það bil 1.600 pör í hjóna­band á ári hverju. Árið 2001 var ungt íslenskt par í þessum fjöl­menna hópi. Allt lífið var fram undan og sam­bandið gekk eins og í sögu fyrst um sinn. Þau komu sér vel fyrir í lít­illi íbúð og eign­uð­ust tvö börn.

Þremur og hálfu ári eftir gleði­stund­ina upp við alt­arið hafði sigið á ógæfu­hlið­ina í hjóna­band­inu sem end­aði með ástríðu­glæp.

Yfirheyrsla í Kópavogi

Við yf­ir­heyrsl­ur hjá lög­regl­unni í Kópa­vogi ját­aði tæp­lega þrí­tug­ur karl­maður, að hafa orðið eig­in­konu sinni að bana í íbúð þeirra í Hamra­borg í fyrr­inótt. Svo virð­ist sem maður­inn hafi þrengt að önd­un­ar­vegi kon­unn­ar þar til hún lést.

Konan var 25 ára göm­ul, fædd 7. fe­brú­ar 1979 og starf­aði við ræst­ing­ar.

Í til­kynn­ingu frá lög­reglu seg­ir að hún hafi verið kvödd að íbúð­inni klukk­an 3.05 vegna and­láts kon­unn­ar. Þar seg­ir að áverk­ar hafi verið á líki henn­ar sem bentu til þess að átök hefðu átt sér stað sem hefðu leitt til dauða henn­ar. Maður­inn var hand­tek­inn í íbúð­inni og ját­aði hann að hafa átt þátt í láti kon­unn­ar.

Þegar lög­regla kom á stað­inn voru tvö börn þeirra hjóna í íbúð­inni, fjög­urra ára göm­ul stúlka og eins árs dreng­ur. Þeim hef­ur verið komið fyr­ir í um­sjón fjöl­skyldu kon­unn­ar. Börn­in urðu einskis vör og voru sof­andi þegar lög­regla kom á stað­inn.

Sam­kvæmt heim­ild­um Morg­un­blaðs­ins gerði maður­inn at­lögu að eig­in­konu sinni í svefn­her­bergi þeirra og voru ekki sjá­an­leg um­merki um átök í íbúð­inni.

Að sögn Friðriks Björg­vins­son­ar yf­ir­lög­reglu­þjóns barst fyrsta til­kynn­ing um málið frá þriðja aðila, manni sem bana­mað­ur­inn hringdi í eft­ir að kon­an var lát­in og sagði hon­um frá því sem gerst hafði. Stuttu síðar hringdi hann sjálf­ur í lög­reglu og greindi frá at­b­urðum.

Lög­regl­an í Kópa­vogi ræddi m.a. við ná­granna fólks­ins og kvaðst einn þeirra hafa heyrt ein­hvern hávaða frá íbúð­inni um nótt­ina. Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá lög­reglu hafði hún aldrei áður verið kvödd að íbúð þeirra og maður­inn ekki áður komið við sögu lög­reglu.

Ellefu ára dómur

Eig­in­maður kon­unnar var dæmdur til níu ára fang­els­is­vistar en Hæsti­réttur þyngdi dóm­inn um tvö ár. For­eldrum ungu kon­unnar fannst dóm­ur­inn yfir eig­in­mann­inum í fyrstu vera létt­vægur.

„Okkur fannst það á sínum tíma vera lélegur dómur. Við hefðum viljað hafa hann mikið þyngri. Við missum stúlk­una og okkur fannst hann sleppa bil­lega frá þessu. Hann hafði rétt á að sjá börnin hálfs­mán­að­ar­lega. Þá þurftum við alltaf að fara upp á Litla-Hraun í alls kyns veðrum og stundum leist okkur ekk­ert á blik­una. Með tím­anum vorum við farin að vona að þetta yrði styttra. Þá yrði þetta ekki eins erfitt fyrir þau.“

Hrópaði nafn annars manns

Dómurinn sem eig­in­mað­ur­inn í Hamra­borg fékk er alls ekk­ert eins­dæmi þegar kemur að íslenskum ástríðu­glæpum. Í sam­bæri­legu máli árið 1961 ban­aði maður eig­in­konu sinni eftir að hún hróp­aði nafn ann­ars manns í rúmi þeirra. Sá var dæmdur í sex ára fanga­vist.

Þetta mál var einmitt haft til hlið­sjónar í vörn manns­ins. Árið 1992 var ung kona einnig dæmd í sex ára fang­elsi fyrir að stinga unnusta sinn í stund­ar­brjál­æði. Í öllum þessum málum þóttu sér­stakar refsi­lækk­unar­á­stæður eiga við vegna aðstæðna.

Óhefðbundin afbrot

Ástríðu­glæpir skera sig í mörgum til­fellum úr þegar bak­grunnur afbrota­manns­ins er skoð­aður eins og var í til­felli eig­in­manns­ins í Hamra­borg en hann hafði aldrei komið við sögu lög­reglu og þótti fyr­ir­mynd­ar­borg­ari.

„Oft er um að ræða ein­stak­linga sem öllu jöfnu hafa ekki verið að brjóta af sér með neinum hætti. Það er ólíkt því sem við sjáum hjá hinni hefð­bundnu afbrota­mann­eskju sem er oft í margs konar brotum. Hún er í neyslu, brýst inn í bíla og stelur í búðum. Ein­stak­lingar sem fremja ástríðu­glæpi eins og við köllum þá eru oft bara „venju­legt fólk.“

Tekið skal fram:

Á síð­ustu miss­erum hafa miklar umræður skap­ast um notkun á orð­inu ástríðu­glæpur. All­margir hafa kraf­ist þess að hætt sé að nota orðið ástríðu­glæpur, vegna þess að ofbeldi ætti aldrei að vera tengt ást­ar­til­finn­ingu. Afbrota­fræð­ingar víðs­vegar hafa notað þessa skil­grein­ingu þegar þeir eru að greina glæpi og þegar það þarf að taka inn í málið marga ólíka þætti. Þar sem að þessi grein er unnin upp úr gömlum heim­ildum þegar notkun á þessu orði tíðk­að­ist enn, var haldið í það orð við lýs­ingar á glæpnum.

Heim­ildir:

Aðal­steinn Kjart­ans­son. 20.11.2011. Karlar sem myrða konur. Dag­blaðið Vísir – DV. 58. tölu­blað.

Ásgeir Erlends­son. 25. maí 2014. Hjóna­bandið end­aði með ástríðu­glæp. Vísir.

Réð konu sinni bana: Áverkar benda til þess að átök hafi átt sér stað. 2.11.2004. Morg­un­blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum