Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Valerie Ósk léttist og svaf lítið eftir að stríðið braust út: „Hjarta mitt er brotið“

Valerie Ósk léttist og svaf lítið eftir að stríðið braust út: „Hjarta mitt er brotið“
Valerie Ósk Elenu­dóttir

„Þann 24. febr­úar réð­ust Rússar inn í Úkraínu þegar almennir borg­arar sváfu rólegir í rúmum sínum. Kvöldið áður tal­aði ég í síma við vin minn í Úkraínu og þegar ég vakn­aði dag­inn eftir sá ég skila­boð frá honum: „Við eigum í stríði.“ Ég var heima fyrstu fjóru dag­ana og var bara í sím­anum. Mér leið eins og ég sæti með ást­vinum mínum í kjall­ara í skjóli fyrir sprengj­unum. Svo vakti vinur minn á Íslandi mig aftur til lífs­ins með því að segja að ég ætti að hugsa um heils­una af því að ég á dóttur,“ segir Valerie Ósk Elenu­dóttir sem er frá Úkraínu, en hún hefur búið á Íslandi hálfa ævina en hún er í leik­list­ar­námi og vinnur hjá New In Iceland sem er upp­lýs­inga­mið­stöð fyrir inn­flytj­endur á Íslandi. Hún fædd­ist í úkra­ínsku borg­inni Kharkiv sem segja má að sé nú rústir einar. „Hjarta mitt er brotið.“

Valerie segir að hún hafi lést þó nokkuð síð­ast­lið­inn mánuð eða frá því að stríðið braust út. „Ég hætti eig­in­lega að borða á tíma­bili og svaf lítið. Mig lang­aði til að fara til Póllands til að leggja mitt af mörkum til hjálpar úkra­ínskum flótta­mönnum eða fara jafn­vel til Úkraínu, en svo bað dóttir mín mig eitt kvöldið um að fara ekki í stríðið. Mér brá og spurði hvað hún meinti og þá sagði hún að ég væri að gera svo mikið og hún hefði áhyggjur af að ég vildi gera meira.“

Valerie seg­ist finna mik­inn stuðn­ing frá íslenskum vinum sínum og að hún sé þakk­lát fyrir að búa í frið­sömu landi. „Það hlýjar mér um hjarta­rætur að sjá hvernig Íslend­ingar styðja við Úkra­ínu­menn.“

„Við erum lifandi“

Valerie segir að guð­móðir sín, sem bjó í Kyiv, hafi komið til Íslands í síð­ustu viku. „Þetta var erfitt en í margar nætur faldi hún sig í kjall­ara og var hrædd við að fara með upp­komnum börnum sínum. En henni tókst að koma til mín en alein. Dóttir hennar var eftir í Lviv og er þar í sjálf­boða­liða­störfum og sonur hennar er í Kyiv þar sem hann hjálpar til á götum borg­ar­innar.

„Við erum lif­andi“ og „Ég er hrædd“.

Ég hef verið í sam­skiptum við vini mína í Úkraínu frá því að stríðið hófst. Ég á marga vini í Úkraínu og ég þekki marga þar. Bestu vinir mínir komust til Póllands og einn þeirra vill kom­ast til Íslands en það er erfitt því hún á hund. Hún á líka átta ára gamla dóttur sem er vin­kona dóttur minnar. Vinir mínir í Kharkiv, þar sem ég fædd­ist og ólst upp, upp­lifa hræði­lega tíma. Þeir voru hræddir í marga daga en nú eru þeir þreyttir á að lifa við slíkar aðstæður og einn þeirra sagði meira að segja við mig: „Ef það eru örlög mín að deyja þá dey ég.“ Ég fæ reglu­lega skila­boð í sím­ann: „Við erum lif­andi“ og „Ég er hrædd“. Það eru svo margir sem þurfa á hjálp að halda. Ég reyni að vera sterk fyrir þetta fólk, ég reyni að hjálpa því eins og ég get og bið um að þessu ljúki fljót­lega. Þetta er martröð fyrir alla Úkra­ínu­menn sama hvar þeir eru í heim­inum.“

Ætti að stöðva hann núna

Valerie segir að hún og aðrir Úkra­ínu­menn sem hún þekkir hafi ekki átt von á því að Rússar myndu ráð­ast inn í Úkraínu.

„Ég tal­aði við guð­móður mína og vini í Kharkiv um þetta dag­inn fyrir inn­rás­ina, en þau voru að pakka í „neyð­ar­bak­poka“ en þau tóku þessu ekki alvar­lega og settu í raun­inni ekk­ert í bak­pok­ana. Síðan kom þetta okkur mjög á óvart.“

Valerie seg­ist í gegnum tíð­ina ekki hafa litið á Rússland sem annað land. „Afi minn var frá Rúss­landi og þar áttum við ætt­ingja. Ég missti sam­bandið við þá fyrir löngu en Rússland var mér ekki fram­andi land. Ég hef oft komið til Rúss­lands og þar á ég marga vini.“

Hann hættir kannski ekki bara í Úkraínu.

Hvað með Pútín? Hve langt telur hún að hann gangi? „Ég er hrædd um að þessi maður muni ekki stoppa og ganga enn lengra. Hann hættir kannski ekki bara í Úkraínu. Þess vegna ætti allur heim­ur­inn að stöðva hann núna.“

Hvað með tal um kjarn­orku­vopn? Yfir­tök­una á Chernobyl-kjarn­orku­ver­inu? „Þetta er bara brjál­æði,“ segir Valeire en fjögur kjarn­orku­ver eru í Úkraínu. „Þegar kvikn­aði í Zaporozhyen-kjarn­orku­ver­inu 4. mars héldu margir niðri í sér and­anum. Hvað er Pútín í raun­inni að segja þegar hann nefnir að hann eigi kjarn­orku­sprengjur? Við vitum nú þegar að honum virð­ist aðeins vera annt um sjálfan sig og metnað sinn. Hann gat ekki sætt sig við þá stað­reynd að Úkraína sé sjálf­stætt land. Pútín virð­ist vera sama um rúss­neska borg­ara og rúss­neskt land og eyðir millj­ónum doll­ara í stríð sem eng­inn þarf nema hann!“

Valerie er á því að úti­loka eigi Rússa frá Örygg­is­ráði SÞ og senda rúss­neska sendi­herr­ann á Íslandi úr landi. „Ísland styður Úkraínu og opnar dyr sínar fyrir Úkra­ínu­mönnum þannig að rúss­neska sendi­ráð­inu ætti að vera lokað; Mikhail Noskov, sendi­herra Rúss­lands, ætti að vera sendur aftur til Rúss­lands þar sem hann getur haldið áfram að styðja Pútín. Úkra­ínska sendi­ráðið ætti að vera opnað í stað þess rúss­neska.“

Við gefumst ekki upp

Valerie segir að eftir að hafa verið í áfalli í fjóra daga eftir að stríðið braust út, hafi hún gert sér grein fyrir að hún þyrfti að gera eitt­hvað til hjálpar, eins og hún hefur þegar minnst á, og datt henni í hug að hafa sam­band við Úkra­ínu­menn á Íslandi til að þeir kæmu löndum sínum til aðstoðar.

„Á þeim tíma­punkti heyrði ég ekki um neinn sem gerði þetta. Svo við söfn­uðum og sendum 45 tonn af hjálp­ar­gögnum með Baltic Airlines, og fengum að gera það end­ur­gjalds­laust, auk þess sem hjálp­ar­gögn voru send í gámum sjó­leið­ina. Ég hef tekið þátt í mót­mælum fyrir utan rúss­neska sendi­ráðið í Reykja­vík og farið í mót­mæla­göngur gegn stríð­inu. Ég mæti auk þess á alla við­burði til styrktar Úkraínu, gef pen­inga til styrktar flótta­mönnum og sendi vinum mínum í Úkraínu pen­ing.“

Hvað hefur Valerie lært und­an­farnar vikur varð­andi sjálfa sig, Úkraínu og Rússland og alþjóða­sam­fé­lagið?

Ástandið í Úkraínu er svo hræði­legt að það er erfitt að lýsa því.

„Ég hef lært mikið og sér­stak­lega hversu mik­il­vægt er að meta það sem maður hefur. Ég fékk nýlega martröð, en mig dreymdi að það væri stríð á Íslandi. Ég vakn­aði mjög hrædd. Ástandið í Úkraínu er svo hræði­legt að það er erfitt að lýsa því, en ég er svo stolt af þjóð­inni minni. Hvar sem við erum styðjum við og stöndum með Úkraínu og þess vegna munum við sigra. Við erum sam­einuð og gef­umst ekki upp fyrr en við fáum frelsi okkar. Þegar þetta byrj­aði allt í Úkraínu hætti líf mitt, og allt sem ég vil núna er friður og frelsi í föð­ur­land­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum