Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Nauðlending Dakota-vélar Bandaríkjahers – Ísing olli óstöðuleika í hreyflunum

Nauðlending Dakota-vélar Bandaríkjahers – Ísing olli óstöðuleika í hreyflunum
Flug­brakið á Sól­heima­sandi Mynd: Þráinn Kolbeinsson

Rétt fyrir hádegi þann 21. nóv­em­ber árið 1973 voru sjö áhafn­ar­með­limir Douglas Dakota flug­vélar af gerð­inni C-117 í loft­inu fyrir ofan Mýr­dalsand. Voru her­menn­irnir á leið frá Höfn í Horna­firði eftir að hafa flutt vistir til rat­sjár­stöðv­ar­innar á Stokk­nesi. Flug­vélin var hátt á lofti er hún lenti í mik­illi ísingu og tóku hreyfl­arnir að ganga óstöðugt. Nú voru góð ráð dýr fyrir sjömenn­ing­ana ef ekki átti illa að fara. Í fyrstu var talið að flug­vélin myndi brot­lenda í sjónum en svo varð ekki. Flug­vélin nauð­lenti á Sól­heima­sandi.

Morg­un­blaðið sagði frá nauð­lend­ing­unni dag­inn eftir:

Dakota-vél nauð­lenti á Sól­heima­sandi í gær­dag

DOUGLAS Dakota-vél af gerð­inni C-117 nauð­lenti skömmu eftir hádegi í gær á Sól­heima­sandi. Sjö menn voru með vél­inui, sem var frá varn­ar­lið­inu, og sluppu þeir allir ómeiddir. Vélin var að koma frá Höfn í Horna­firði, en þangað hafði hún flutt vistir til rat­sjár­stöðv­ar­innar á Stokks­nesi.

Sigþór Sig­urðs­son frétta­rit­ari Morg­un­blaðs­ins í Litla-Hvammi sagði, að það hefði verið um kl.14, sem vélin nauð­lenti í minni Hólsá á Sól­heima­sandi. Ís var yfir ármynn­inu og brotn­aði hann undan vél­inni. Hékk hún þó á ísskör­inni. Björg­un­ar­sveit Slysa­varna­fé­lagssins í Vík í Mýrdal og menn frá sveita­bæjum fyrir vestan Vík fóru strax að svip­ast um eftir vél­inni. Um svipað leyti og þeir komu að henni, kom þyrla frá varn­ar­lið­inu á stað­inn og tók hún menn­ina, sem i vél­inni voru.

Eins og fyrr segir, var vélin að koma frá Höfn í Horna­firði. Flaug hún nokkuð hátt, og þegar hún var yfir Mýr­dals­sandi lenti hún í mjög mik­illi ísingu og hreyflar gengu óstöðugt. Hún
byrj­aði því að missa hæð og sendi út neyð­ar­kall, sem önnur varn­ar­liðs­vél heyrði. Þegar voru sendar þrjár Phanthom-þotur og tvær þyrlur á móti vél­inni, en talið var, að hún myndi jafn­vel nauð­lenda á sjónum. Er Dakota-vélin var svo komin vestur á Sól­heima­sand hélzt hún ekki lengur á lofti og varð því að nauð­lenda í minni Hólsá.

Hannes Hafstein hjá Slysa­varna­fé­lagi Íslands sagði, að flug­stjórn hefði strax haft sam­band
við Til­kynn­inga­skyld­una. Talið hefði verið, að vélin myndi nauð­lenda á sjónum nokkuð fyrir austan Vik. Því hefði Vest­manna­eyja­radíó haft sam­band við öll skip, sem voru út af Vík. Síðan hefði verið látið uppi að vélin gæti lent í sjónum á öllu svæð­inu frá Vík að Þjórs­ár­ósum. Þá hefði verið haft sam­band við báta á Stokks­eyri og Eyr­ar­bakka og þeir beðnir að fara af stað, en þeir hefðu ekki getað farið út úr höfn­unum vegna brims. Leitað hefði verið til Þor­láks­hafnar og voru fyrstu bát­arnir farnir af stað, er frétt kom um, að vélin hefði nauð­lent á landi.

Sagði Hannes, að menn frá björg­un­ar­sveit Slysa­varna­fé­lags­ins í Vík væru nú á vakt við
vél­ina ásamt tveimur Band­arikja­mönnum. Flokkur við­gerð­ar­manna frá varn­ar­lið­inu væri á
leið­inni austur og ætl­uðu aust­an­menn að leið­beina þeim niður sand­inn að vél­inni. Til ferða upp og niður sand­inn hafa björg­un­ar­sveita­menn jeppa og belta­bíl.

Síðan eru liðin mörg ár en enn er flug­vélin á sínum stað. Banda­ríkja­her lét sér nægja að strípa vél­ina alveg en skilja grind­ina eftir í sand­inum. Segja má að subbu­skapur Banda­ríkja­hers hafi í þessu til­felli komið sér afar vel fyrir Ísland því í dag er flug­vélin á Sól­heima­sandi þekktur við­komu­staður ferða­manna alls­staðar að frá heim­inum. Justin Bieber tók upp mynd­band á Sól­heima­sandi við lagið „I´ll show you“ fyrir fáeinum árum en flug­vél­arflakið spilar stóra rullu í mynd­band­inu.

En svæðið getur reynst víð­sjár­vert enda lítið skjól að fá ef óveður skyldi skella á. Fyrir tveimur árum varð kín­verskt par úti nálægt flak­inu en óveður hafði verið á svæð­inu um tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum