Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Skoða lífsstílsþætti hjá stórum hópi Íslendinga: „Frá vöggu til grafar“

Skoða lífsstílsþætti hjá stórum hópi Íslendinga: „Frá vöggu til grafar“
Ólöf Guðný Geirs­dóttir, dós­ent í nær­ing­ar­fræði, sem vinnur ásamt sam­starfs­fólki sínu að því að greina hvað þættir í lífs­stíl okkar geta tryggt far­sæla öldrun eins og það er kallað. MYND/Kristinn Ingv­ars­son Mynd: KRISTINN INGVARSSON / Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Ólöf Guðný Geirs­dóttir, dós­ent í nær­ing­ar­fræði, vinnur ásamt sam­starfs­fólki sínu að því að greina hvaða þættir í lífs­stíl okkar geta tryggt far­sæla öldrun.

„Að eld­ast með reisn þýðir að eiga gott og gef­andi líf alla ævi, helst í sjálf­stæðri búsetu. Hérna skiptir máli að eiga gott líf helst alla ævi en ekki endi­lega sem lengsta ævi. Því er það svo mik­il­vægt að halda góðri heilsu, bæði lík­am­legri, and­legri og félags­legri, sem er talin vera und­ir­staða þess til að geta notið lífs­ins,“ segir Ólöf í sam­tali við Háskóla Íslands.

Lífslíkur Íslend­inga hafa auk­ist jafnt og þétt und­an­farna ára­tugi sam­fara fram­förum í sam­fé­lag­inu. Tölur Hag­stof­unnar sýna að bæði með­al­karl­inn og með­al­konan á Íslandi geta vænst þess að ná yfir 80 ára aldri, sem er með því mesta sem ger­ist í Evrópu. Þá hefur barn sem fæð­ist í dag meiri líkur en minni á að verða 100 ára. Þessi hækk­andi með­al­aldur þjóð­ar­innar hefur beint sjónum vís­inda­manna að ýmsum þáttum sem snerta fjölgun aldr­aðra í sam­fé­lag­inu, þar á meðal áhrifum fjölg­un­ar­innar á félags- og heil­brigð­is­kerfi og leiðum til þess að tryggja að sem flestir geti elst með reisn.

„Með því að skoða lang­tíma­spá­gildi fyrir þær heilsu­fars­legu breytur, s.s. lík­am­lega og and­lega færni, sem hægt er að hafa áhrif á með lífs­stíls­breyt­ingum er mögu­lega hægt að hafa áhrif á þætti sem gætu skipt máli varð­andi far­sæla öldrun,“ bætir Ólöf við.

Gagnagrunnur byggður á áratugarannsóknum á heilsu Íslendinga

Í rann­sókn­inni er að sögn Ólafar ætl­unin að byggja upp gagna­grunn sem inni­heldur fæð­ing­ar­skrá Íslend­inga og gögn úr hinn umfangs­miklu Reykj­ar­vík­ur­rann­sókn Hjarta­verndar, sem hófst fyrir meira en 50 árum og hafði m.a. það mark­mið að kanna áhættu­þætti hjarta- og æða­sjúk­dóma hjá stórum hópi Íslend­inga. Einnig verða gögn úr Öldr­un­ar­rann­sóknum Hjarta­verndar, sem nefn­ast AGES 1 og AGES 2, nýtt en þar hefur ein­stak­lingum úr Reykj­ar­vík­ur­rann­sókn­inni verið fylgt frekar eftir.

„Að lokum verða upp­lýs­ingar um RAI-vist­un­ar­mat sömu ein­stak­linga sett in í gagna­grunn­inn,“ segir Ólöf og vísar þar til alþjóð­legs og yfir­grips­mik­ils tækis til að leggja mat á þarfir og heilsu fólks á hjúkr­un­ar­heim­ilum.

Þarna er því verið að skoða lífs­stíls­þætti hjá afar stórum hópi Íslend­inga frá fæð­ingu nán­ast til lífsloka.

„Þannig mun verk­efnið veita upp­lýs­ingar um þá þætti sem hægt er að hafa áhrif á og geta spáð fyrir um far­sæla öldrun. Sér­stak­lega verða skoð­aðir lífs­stíls­þættir eins og lík­ams­sam­setn­ing, hreyf­ing og matar­æði og hvaða áhrif þessar breytur hafa á vit­ræna getu, hreyfi­færni, sjúk­dóma og sem for­vörn fyrir vistun á hjúkr­un­ar­heim­ili,“ segir Ólöf enn fremur og bætir við að von sé á fyrstu nið­ur­stöðum á vor­dögum í sam­tali við Hí.

„Frá vöggu til grafar“

Ólöf bendir á að kostn­aður vegna hjúkr­un­ar­heim­ila fara vax­andi hér á landi og er nú áætl­aður yfir 20 millj­arða á ári. Því er til mikis að vinna að finna þá áhættu­þætti sem tengj­ast heilsu fólks og ekki síður þá þætti sem hægt er að hafa áhrif á og styðja við far­sæla öldrun „frá vöggu til grafar“ eins og hún orðar það.

„Ef við getum sýnt fram á hvaða þættir í lífs­stíl fólks hafa jákvæð áhrif á far­sæla öldrun og hverjir hafa nei­kvæð áhrif getum við sett fram ráð­legg­ingar sem gætu komið í veg fyrir ótíma­bært and­legt og eða lík­am­legt færnitap fólks og um leið jafn­vel sett tón fyrir for­varna­stefnu stjórn­valda í þessum efnum.

Þetta myndi ekki aðeins auka lífs­gæði hvers og eins ein­stak­lings heldur má leiða líkur að því að kostn­aður við heil­brigðis- og/eða öldr­un­ar­þjón­ustu myndi ekki aukast með auknum fjölda aldr­aða í sam­fé­lag­inu heldur jafn­vel minnka til fram­tíðar,“ segir Ólöf um ávinn­ing rann­sókn­ar­innar.

Hægt er að lesa frétt­ina í heild sinni HÉR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum