Allt bendir til þess að Kim Kardashian hafi ákveðið að kynna börnin sín fyrir kærastanum, Pete Davidson. Slúðurmiðillinn Tmz birti mynd af Pete þar sem hann hafði dóttur Kim, North West, í fangi sér á litlum bíl. Myndirnar voru teknar á sunnudaginn síðasta í lokuðu hverfi í Kaliforníu.

Mynd: TMZ – Pete og North
Parið hefur verið að hittast í rúma sex mánuði en fyrrverandi eiginmaður Kim, Kanye West, hefur svo sannarlega ekki tekið nýja kærastanum opnum örmum. Kanye hefur ítrekað gagnrýnt Pete opinberlega og sagði hann í febrúar að Pete fengi aldrei að hitta börn þeirra Kim.

Glöggir sjá glitta í Pete































Athugasemdir