Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

10 atriði sem ætti ekki að nefna við barnabörnin

10 atriði sem ætti ekki að nefna við barnabörnin

Ömmur og afar hafa sjálf­sagt upp­lifað að missa út úr sér eitt­hvað við barna­börnin sem betur hefði verið ósagt. Til að halda góðu sam­bandi við upp­komnu börnin sín og barna­börnin þarf stundum að vanda sig og láta ekki allt flakka. Inn á vef­síðu grand­parents.com eru ráð­legg­ingar úr smiðju Jodi RR Smith. Hér er talað um banda­ríska siði og því ekki víst að þeir eigi við á Íslandi.

Ráðin sem eru gefin eru um það sem ber að forð­ast að segja og það sem hægt er að segja í stað­inn.

Hvað segja foreldrar þínir um mig?

Ertu að fiska eftir upp­lýs­ingum? Það er sama hvort skiln­aður stendur yfir í fjöl­skyld­unni og þig langar að vita hvort  tengda­dóttirin eða son­ur­inn séu að tala illa um þig, eða hvort þú ert bara for­vitin að heyra hvað for­eldrum barns­ins finnst um þig. Ekki láta þér detta þetta í hug. Það er mjög óþægi­legt fyrir börn og ung­linga að vera stillt þannig upp við vegg og þurfa að bera upp­lýs­ingar á milli full­orð­inna.

Þegar skiln­aður verður á alls ekki að segja neitt sem börnin geta upp­lifað sem nei­kvætt. Jafnvel þó ykkur semji ekki við tengda­börnin. Það á að ræða þetta eins hlut­laust við barnið og hægt er og láta það ráða því hvað það vill segja og hvað ekki.

Þú ert upp­á­halds­barna­barnið mitt.

Varúð! Menn halda kannski að þeir myndu aldrei láta svona nokkuð út úr sér, en það er vel mögu­legt að fólk geri það. Smith segir fólki að var­ast þessa setn­ingu, hana á heldur ekki að segja í hita leiks­ins, þegar fólk er að grín­ast eða í trún­aði. Barna­börnin tala saman og þú vilt að þau treysti þér þegar þú segir þeim að þú elskir þau.

Það er miklu betra að segja. „Þarf ég virki­lega að segja ykkur það? Þið eruð öll í fyrsta sæti hjá mér“.

Systir þín er betri í fót­bolta en þú.

Afi og amma segja þetta kannski til að fá barna­barnið til að leggja harðar að sér og ná sama árangri og systirin. En þó þú bendir barn­inu á það að hún sé betri í fót­bolta, er það ekki lík­legt til að hjálpa neitt. Barnið vill ekki að afi og amma séu að dæma, heldur hvetji það áfram.

Hér telur Smith betra að segja ekki neitt, nema barnið spyrji hvort eða af hverju systirin sé betri í fót­bolta. Þá er hægt að svara. „Já, hún er mjög góð í fót­bolta, en við sjáum líka hvað þú ert frá­bær í sundi, eða hvað það nú er sem barnið stendur sig vel í. Ef barnið spyr ekki, er best fyrir afa og ömmu að þegja, nema þau geti hrósað barn­inu fyrir eitt­hvað sem það gerir vel.

Það er bara krútt­legt að vera svo­lítið þybbin/inn.

Ekki hefja umræður um hold­ar­far eða útlit barna­barns­ins. Þó það sé vel meint og ykkur finn­ist það hljóma elsku­lega eða sem hrós, getur það virkað þver­öf­ugt á barnið, sem getur orðið stór­móðgað eða hrein­lega miður sín. Smith telur það hlut­verk afa og ömmu að byggja upp traust.

Ef þú hefur áhyggjur af að barna­barnið sé að þyngj­ast of mikið, skaltu bjóða því hollt snakk eins og ávexti í stað­inn fyrir flögur. Og það er líka gott að bjóða barn­inu frekar að fara með ykkur í göngutúr, en horfa með ykkur á mynd í sjón­varp­inu.

Af hverju ertu aldrei í peysunni sem ég gaf þér?

Ef barna­börnin eru jafn vel upp alin og þið von­ist til, kunna þau að sýna gleði þegar þau opna frá ykkur pakka og þakka kurt­eis­lega fyrir sig.  Það gerir lítið fyrir sam­bandið við barna­barnið að spyrja hvers vegna hún sé ekki í peys­unni sem þið gáfuð henni þó ykkur dauð­langi að vita það. Sér­stak­lega þegar þið sjáið að hún er enn í gamla snjáða jakk­anum sem hún er alltaf í, en nýja peysan sést hvergi.

Það er betra að hafa ekki orð á þessu, en næst þegar kemur gjafa­tími, afmæli eða jól, væri ráð að spyrja for­eld­rana hvað hana langar í, eða gefa henni gjafa­bréf, þannig að hún geti valið gjöf­ina sjálf.

Ef þú færð þér tattú þá brjálast ég.

Hmm.. Virkuðu svona hót­anir þegar þú varst að ala upp þín eigin börn? Líklega ekki og það ætti heldur ekki að reyna þetta við barna­börnin. Viltu virki­lega að barna­börnin verði sak­bitin, ef eitt­hvað kemur fyrir þig?

Ætli barna­barnið að fá sér tattú, eða gera eitt­hvað sem þú ert öruggur um að það muni sjá eftir, eða eitt­hvað sem þú ert ósáttur við, er best að ræða það við barnið. Það má útskýra það að barnið mun alla ævi þurfa að bera á sér blek sem næst ekki af. Það er ekki verra að slík útskýr­ing komi frá ein­hverjum af eldri kyn­slóð­inni.

Á ég að segja þér þegar pabbi þinn fékk lánaðan bílinn hans afa?

Menn halda kannski að það sé góð leið til að ná sam­bandi við barna­börnin að segja þeim skemmti­sögur af barna­brekum for­eldra sinna. Eða að þau geti lært eitt­hvað af slíkum dæmisögum.  En því er aldeilis ekki að heilsa, segir Smith. Það getur hins vegar grafið undan áhrifum for­eldr­anna á börnin.

Hún segir að það eigi að sleppa slíkum sögum og ekki segja þær nema for­eldr­arnir séu við­staddir og geti komið sínum sjón­ar­miðum á fram­færi, eða að þetta séu sögur sem eru vel þekktar í fjöskyld­unni og börnin hafi heyrt þær áður. Vilji menn að barna­börnin dragi lær­dóm af dæmisögum, er best að afi og amma segi sögur af sjálfum sér.

Mikið er þetta sætur strákur, er hann kærastinn þinn?

Stefnu­mót ung­lings­ár­anna eru nógu vand­ræða­leg, þó ekki bæt­ist við enn vand­ræða­legri spurn­ingar full­orðna fólks­ins um málið. Þær eru ekki beint það sem þau þurfa á að halda. Það er eðli­legt að afi og amma séu for­vitin, en ekki hafa orð á þessu að fyrra­bragði. Ekki nema þið séuð sett inní málið eða spurð.

Það er affar­ar­sæl­ast að segja ekk­ert um þetta. Ef þú vilt vita hverja þau eru að hitta, spurðu þá eins­lega. Ef þú hefur áhuga á ást­ar­lífi barna­barn­anna spurðu þá opinna spurn­inga segir Smith, eins og „Hefurðu orðið skotin/inn í ein­hverjum nýlega?“

Fékkstu góðar einkunnir í skólanum?

Það er vænt­an­lega ekki ætl­unin að setja meiri pressu á barna­barnið. Það á mjög senni­lega nú þegar,  fullt í fangi með að standa undir vænt­ingum for­eldra og kenn­ara um góðar ein­kunnir. Julia Siemens, kona sem vitnað er í og sem sér um for­eldra­fræðslu, segir að það geti komið barn­inu í upp­nám að segja kannski ósatt, af því það vill fyrir alla muni að afi og amma séu ánægð með þeð.

Það er betra að spyrja barna­barnið almennt um skól­ann. Hverjar eru upp­á­halds náms­grein­arnar og hver er skemmti­leg­asti kenn­ar­inn? Ef þið sýnið áhuga getur það hjálpað barn­inu til að opna sig og ræða við ykkur um þau hugð­ar­efni sín sem tengj­ast skól­anum.

Ekki örvænta þetta gengur yfir.

Hvort sem það eru leið­indi í skól­anum, ung­linga­bólur eða ást­ar­sorg er ekki rétt að benda barna­börn­unum á að þetta gangi yfir eða þau vaxi uppúr þessu. Það er vissu­lega vel meint og satt, en slík við­brögð geta fallið í grýttan jarð­veg og jafn­vel sært barnið. Svona setn­ingar geta hljó­mað eins og að þið viljið gera lítið úr vanda­máli sem í huga barns­ins er eins og heimsendir.

Það virkar betur að spyrja. Viltu tala um það? Eigum við að hitt­ast á sunnu­dag­inn og ræða þetta yfir ís?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu