Rósa Kristín Hafsteinsdóttir og dansfélagi hennar, Aron Logi Hrannarsson, náðu þeim merka árangri að hreppa gull í Evrópumeistaramótinu í samkvæmisdansi sem fór fram í Blackpool á Englandi um páskana.
Kepptu þau í flokki 19 ára og yngri á föstudaginn langa samkvæmt Skessuhorni. Daginn eftir kepptu þau svo í U-21 árs flokknum þar sem þau gerðu sér lítið fyrir og unnu þá keppni líka. Eru þau því tvöfaldir Evrópumeistarar.

„Þetta er klárlega einn okkar besti árangur hingað til. Þetta er eitthvað sem við höfum stefnt að. Þetta var frábær tilfinning að ná að sigri í okkar aldursflokkum og gefur okkur mikið,“ sagði Rósa Kristín í samtali við Skessuhorn eftir mótið. „Við erum þegar farin að undirbúa okkur fyrir næstu keppni sem verður í maí og fer hún einnig fram í Blackpool. Það er opið mót þar sem allir bestu dansararnir í heiminum koma saman og er svona eiginlegt heimsmeistaramót í samkvæmisdönsum. Okkur hlakkar mikið til taka þátt í þeirri keppni.“
Fram kemur á Skessuhorn.is að þau Rósa og Aron æfi alla daga vikunnar í íþróttahúsinu á Digranesi undir leiðsögn hjónanna Karenar og Adams Reeve.































Athugasemdir