Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Svavari Pétri komið rækilega á óvart á Rás 2: „Eitthvað rosalegasta eintak sem ég hef meðhöndlað“

Svavari Pétri komið rækilega á óvart á Rás 2: „Eitthvað rosalegasta eintak sem ég hef meðhöndlað“

Líkt og Mannlíf sagði frá í dag á Svavar Pétur Eysteins­son eða Prins Póló eins og hann er stundum kall­aður, afmæli í dag. Sagði hann blaða­manni Mannlífs að frúin hans væri að fara með hann í óvissu­ferð í til­efni dags­ins. Svo virð­ist sem partur af þeirri ferð hafi verið að fara í óvænt við­tal á Rás 2.

Andri Freyr Við­ars­son og Hrafn­hildur Hall­dórs­dóttir, þátta­stjórn­endur Síð­deg­is­út­varps­ins á Rás tvö voru að fjalla um afmæl­is­barnið og höfðu nýlokið að spila lagið Niðrá strönd með Prins Póló er Svavar var leiddur inn í stúd­íóið af vini sínum, Benna Hemm Hemm og virt­ist hinn hiss­asti. „Maður er bara leiddur hingað inn í must­erið, alveg fyr­ir­vara­laust!“ Sagði Svavar Pétur stein­hissa og Andri svar­aði: „Fáðu þér sæti, sæti.“
Eftir að þátta­stjórn­end­urnir höfðu óskað honum til ham­ingju með afmælið, sagð­ist Andri hafa búist við honum með kór­ónu á hausnum en Prins Póló er þekktur fyrir að ganga með kór­ónu: „En svo kem­urðu bara með Elvis Costello hatt!“ sagði Andri stríð­inn. „Já ég kom bara með djass­hatt sem ég keypti hjá Guð­steini um dag­inn,“ svar­aði Svavar. „Hann fer þér vel,“ bætti Hrafn­hildur með. Aðspurður hvort þetta væri nýtt ald­urs­merki svar­aði Svavar að „þegar það er farið að þynn­ast þarna uppi þarf maður að hafa eitt­hvað til að hlýja sér.“ „Segðu Bubba Morthens það,“ skaut þá Andri Freyr inn í.

Með Svavar Pétri í för var tón­list­ar­mað­ur­inn Benni Hemm Hemm sem hefur spilað með Prins Póló í fjöldi ára en Benni var með leyni­legan poka í hönd. „Hvað, ertu með köku í pok­anum,“ spurði Andri Freyr for­vit­inn. „Nei, mig langar að plögga hérna eina plötu. Er það í lagi?“ spurði Benni vin sinn Svavar. „Jú, þú átt allan tím­ann minn,“ svar­aði Svavar grun­laus um það sem var í vændum. „Eitt af því sem við Svavar höfum gert var það að við vorum einu sinni í íslensk-kanadískri hljóm­sveit, Embassy Lights. Og við vorum á Messen­ger fyrir dálitlu síðan og vorum að ræða að Svavar ætti bráðum afmæli. Og við gerðum saman eitt ein­tak af Coverlagaplötu með lögum eftir Prinsinn,“ sagði Benni og dróg upp úr pok­anum glæsi­lega plötu og rétti Svavari sem var væg­ast sagt hissa. „What?!“ heyrð­ist í afmæl­is­barn­inu og hélt hann áfram: „Hérna eru bara lög, eftir Prinsinn sem búið er að þýða yfir á eng­il­sax­nesku og hljóð­rita á glæran vínil!“ Spennan í rödd Svavars var heyr­an­leg enda stór­kost­leg afmæl­is­gjöf. „Þetta er eitt­hvað rosa­leg­asta ein­tak sem ég hef með­höndlað.“

Aðeins er ein plata til, sem Svavar Pétur fékk en hægt er að hlusta á plöt­una á Spotify en hún heitir Songs for my Prins og er með The Prins Póló International Appreciation Society

Hér má hlusta á plöt­una:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu