Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Bjarni Ben – Æsingur á fundi fjárlaganefndar: „Heldurðu að þú komist upp með þetta?“

Bjarni Ben – Æsingur á fundi fjárlaganefndar: „Heldurðu að þú komist upp með þetta?“

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, mætti á fund fjár­laga­nefndar Alþingis ásamt fjórum starfs­mönnum ráðu­neyt­is­ins til að ræða sölu rík­is­ins á 22,5 pró­senta hlut í Íslands­banka. Fund­ur­inn hófst klukkan hálf níu í morgun.

Þing­mönn­um nefnd­ar­inn­ar og ráð­herra var heitt í hamsi og gripu ít­rekað fram í fyr­ir hvor­um öðrum. Bjarni sak­aði Eyj­ólf Ármanns­son, þing­mann Flokks fólks­ins, m.a. um að hafa ekki stjórn á sér. Þing­menn spurðu ráð­herra oft um mögu­legt van­hæfi hans þegar kom að söl­unni þar sem að fé­lag í eigu föður hans, Hafsilf­ur, var meðal þeirra sem keyptu hluti í bank­an­um.

Heldurðu að þú komist upp með þetta?

Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata spyr Bjarna: „Bjarni, bara held­urðu í al­vör­unni að þú kom­ist upp með að selja pabba þínum banka eft­ir allt sem að hef­ur gengið á und­an,“ spurði Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, fjár­mála­ráð­herra á fundi fjár­laga­nefnd­ar í morg­un.

„Vafn­ing­inn, sjóð 9, sendi­herra kap­al­inn, Fal­son og skýrslu­dótið, bara eft­ir allt þetta vesen sem að þú og flokk­ur­inn er bú­inn að láta sko þjóð­ina ganga í gegn­um á und­an­förn­um ára­tug,“ taldi Björn Leví upp og var þá að vísa til alls þess sem gengið hafði á und­an sölu rík­is­ins á Íslands­banka.

Bjarni taldi ein­fald­lega aldrei neitt til­efni hafa gef­ist til að fara ofan í hæfn­ismatið.

Þá sagði hann að all­ir aðrir stjórn­mála­menn, sem hafa snef­il af virð­ingu fyr­ir sið­mennt­uðu sam­fé­lagi, væru bún­ir að segja af sér út af hverju ein­asta máli.

„Held­urðu í al­vör­unni að þú kom­ist upp með þetta,“ spurði hann Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra aft­ur.

Bjarni tók ekki vel í þessi orð og sak­aði Björn Leví um að halda uppi áróðri gegn sér.

„Ég hef bara aldrei átt í vand­ræðum með það að mæta kjós­end­um í þessu landi, ganga í gegn­um kosn­ing­ar, mæta þér og öðrum mót­fram­bjóð­end­um, svara fyr­ir mig og mín mál. Uppi­staðan af öllu því sem þú ert að telja er áróður.

Og nú gegn­um við til kosn­inga í sept­em­ber síð­ast­lið­inn og það var einn þing­maður sem fór með fleiri at­kvæði á bak­við sig held­ur en nokk­ur ann­ar sem að fékk kosn­ingu í þeim Alþing­is­kosn­ing­um, og það er sá sem þú ert að tala við núna,“ svar­aði Bjarni.

Björn Leví spurði þá aft­ur hvort ráð­herra teldi hollt fyr­ir ís­lenskt sam­fé­lag að upp­lýs­ing­ar um að fjár­mála­ráð­herra hafi selt faðir sín­um banka, skyldu koma upp eins og gerð­ist.

Bjarni sak­aði Björn Leví enn og aft­ur um áróður og sagði hann það ekki stand­ast skoðun.

Sala bankans undir rannsókn

Salan hefur sætt mik­illi gagn­rýni og hafa bæði fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands og Rík­is­end­ur­skoðun hafið rann­sókn á henni. Þá hefur verið kallað eftir því að Alþingi skipi rann­sókn­ar­nefnd í mál­inu en því hafa stjórn­ar­flokk­arnir hafnað, í það minnsta þar til nið­ur­staða í rann­sóknum fjár­mála­eft­ir­lits og Rík­is­end­ur­skoð­unar liggur fyrir.

Lárus Blöndal, stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu rík­is­ins, og Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri Banka­sýsl­unnar, mættu  á fund fjár­laga­nefndar á mið­viku­dag þar sem þeir fóru yfir söl­una og svör­uðu spurn­ingum nefnd­ar­manna.

Lög um peningaþvætti verið broti

Þá sagði Björn Leví það vera stjarn­fræði­lega ólík­legt að for­stjóri og stjórn­ar­for­maður Banka­sýsl­unn­ar hafi ekki gert sér grein fyr­ir að Hafsilf­ur, fé­lagið sem keypti hluti í Íslands­banka 22. mars síð­ast­lið­inn, hafi verið í eigu faðir fjár­mála­ráð­herra, Bene­dikts Sveins­son­ar.

Velti hann upp hvort það væri ekki skylda ráð­herra að spyrja spurn­inga um hvort hann væri van­hæf­ur að taka ákvörðun í ferli sem er ekki al­mennt.

„Við vor­um ekki í beinni sölu, við vor­um að fram­kvæma útboð. Útboð þar sem við vor­um með skil­grein­ing­ar á því hverj­ir gætu tal­ist hæf­ir til þess að taka þátt. En ef að þing­maður er svona sann­færður um að stjórn­sýslu­lög hafi verið brot­in, hér hafi lög um pen­inga­þvætti verið brot­in, hér hafi lög um marg­ar aðrar laga­grein­ar verið brotn­ar, þá hlýt­ur hann bara að vera ró­leg­ur því allt er þetta til skoð­unar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum