Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Það fæddist von inn á Vogi: „Ég fór að opna eyrun á mér, ég fór að hlusta á allt“

Það fæddist von inn á Vogi: „Ég fór að opna eyrun á mér, ég fór að hlusta á allt“

Guðbjörg Inga Guð­jóns­dóttir. Kölluð Gugga. Byrjaði ung að drekka og dópa. Innbrot. Vændi. Ofbeldi. Varð vitni að morði. Hún kynnt­ist ást­inni sinni í neyslu og ástin dó síðar úr krabba. Hún syrgir Jóa sinn, en bæði fóru í með­ferð og áttu saman nokkur ár edrú. Í dag er hún öryrki og seg­ist vera góð við dýr og menn. Hver eru skila­boð Guggu til þeirra sem eru að prófa? Prófa að drekka. Dópa. „Helst vildi ég að þessir krakkar segðu „nei“.“ Hún ræðir við Svövu Jóns­dóttur, lítur yfir far­inn veg og talar í ein­lægni um það sem á daga hennar hefur drifið.

Gugga segir að það hafi svo fæðst von inni á Vogi.

„Ég fór að opna eyrun á mér, ég fór að hlusta á allt sem var sagt og ég tók þátt í öllu sem mér var sagt að gera. Ég fór á alla AA-fundi og var bara ógeðs­lega dug­leg á Vogi og Vík. Eftir að ég var búin á Vík flutti ég á áfanga­heim­ili hjá Samhjálp og Sporinu og Jói flutti á annað áfanga­heim­ili. Ég var í kvenna­með­ferð og Jói var í ein­hverri karla­með­ferð og svo vorum við í ráð­gjaf­ar­við­tölum hjá Samhjálp og við vorum á morg­un­fundum á Sporinu hjá Samhjálp og vorum rosa­lega dug­leg á AA-fundum. Fyrstu fimm árin vorum við bara alltaf á fundum og tókum strætó í allt þegar við áttum ekki bíl. Þá fædd­ist þessi von að ég gæti kannski orðið edrú og svo fór ég alltaf að trúa því meira og meira.“

Hún talar um fyrstu tvö árin eftir með­ferð­ina á Vogi. „Ég var að læra á nýjar til­finn­ingar og tala rétt. Maður hafði nátt­úr­lega ekki verið innan um neitt nema neyslu og neyslu­tal.“

  1. maí var Gugga búin að vera edrú í 11 ár.

„Við Jói vorum hús­verðir hjá Samhjálp í Stang­ar­hyl og þrifum líka húsið. Fengum að vera í íbúð sem var í sama húsi og Samhjálp, á bak við húsið, og vorum líka í hjálp­ar­starfi á sam­komum. Við vorum hjá þeim frá 2012-2016. Þá seldu þeir húsið og við fluttum á Arn­ar­holt á Kjal­ar­nesi.“

Sorgin

Jói fékk krabba­mein.

„Hann var með skorpulifur og lifði með hana í níu ár, en fékk svo 9,6 sentí­metra æxli í lifr­ina. Og óskurð­tækt og ekk­ert hægt að gera. Hann var bara settur á líkn­andi með­ferð og hann lifði bara í fimm mán­uði. Hann dó heima. Nokkrum dögum áður tókum við utan um hvort annað og sögð­umst elska hvort annað. Það var það síð­asta sem hann sagði við mig.“

Gugga lýsir dauða­stríði Jóa síð­ustu dag­ana í lífi hans.

„Það var alveg eins og hann þekkti mig ekki lengur, en hann vissi samt örugg­lega að hann var heima,“ segir hún svo. „Ég vil trúa því að hann hafi vitað hver ég var.“

Svo kom að jarð­ar­för­inni.

„Ég missti mig þegar ég kom inn í kirkj­una og sá kist­una. Þá brotn­aði ég alveg saman og grét. Ég fór held ég í lost. Ég missti ást­ina í lífi mínu og upp­á­halds­mann­eskj­una mína og besta vin minn. Við vorum svo góð við hvort annað og rif­umst ekk­ert. Við vorum alltaf að segja eitt­hvað fal­legt við hvort annað og ég var svo elskuð og hann var líka svo elsk­aður.

Við vorum ást­fang­inn á hverjum degi.

Ég og Jói minn áttum fal­leg­ustu ást í heimi. Við vorum ást­fang­inn á hverjum degi og vorum dug­leg að segja fal­legt við hvort annað. Ég var alltaf að segja honum hvað ég elskaði hann heitt og hvað ég væri þakk­lát fyrir hann. Okkur fannst líka gaman að fífl­ast saman og hlæja mikið. Við vorum á AA-fundum saman og í þjón­ustu og líka í kirkj­unni og á sam­komum hjá Samhjálp. Við elskuðum að fara út með Enok, hund­inn okkar, og hugsa um kis­urnar okkar. Nú sé ég um það ein og það gengur vel. Ég hugsa svo vel um þau og elska þau svo mikið. Þau elska mig á móti og leyfa mér að finna það á hverjum degi. Ég á eftir að elska Jóa minn alla tíð og ég sakna hans á hverjum degi. Ég ylja mér við góðar minn­ingar og þær eru margar Ég er svo þakk­lát í hjarta mínu í dag og alla daga.“

Ég er miklu glað­ari en ég var sett á þung­lynd­is­lyf.

Lesa meira hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum