Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Elín Soffía var að elda þegar brotsjór reið yfir skipið: „Ég er búin að fá jólabaðið“

Elín Soffía var að elda þegar brotsjór reið yfir skipið: „Ég er búin að fá jólabaðið“

„Ég tók einu sinni sæti sem vara­þing­maður á þingi og það var akkúrat þegar ég var á sjónum,“ segir Elín Soffía Harð­ar­dóttir í við­tali við Sjóarann með Kolbeini Þor­steins­syni. Hún fékk frí hjá Sam­skipum og sat á þingi í tvær vikur. „Ég lagði fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um mengun í höfnum vegna þess að það pirraði mig svo að það var öllu rusli hent í sjó­inn. Það hafði farið olía í höfn­ina í Reykja­vík og það var ekk­ert gert. Eitt­hvert skip Samskipa hafði misst olíu í höfn­ina í Hamborg og það þurfti að borga hund­ruð þús­unda í sektir og það var búið að setja lög á Íslandi fyrir ein­hverjum árum, en það hafði aldrei verið sett reglu­gerð þannig að það var ekki hægt að sekta fyrir það. Og ég man alltaf að hann sagði, Skúli Alex­and­ers­son, að það væri hel­víti hart að hann þyrfti að fá vara­þing­mann til að koma inn og segja að þeir væru ekki að vinna vinn­una sína. En því var breytt eftir þetta.“

Þetta var ekki hefð­bundið kvenna­mál.

Hún hefur náð þessu í gegn.

„Já, og það vakti svolitla athygli af því að ég er kona og þetta var ekki hefð­bundið kvenna­mál, af því að konur komu yfir­leitt með mál tengd fæð­ing­ar­or­lofi eða ein­hverju svo­leiðis. En þetta var það sem ég var að vinna við og ég hugs­aði oft um ruslið, af því að ég var löngu búin að kom­ast að því að sjór­inn tekur ekk­ert enda­laust við. Það var alltaf sagt „lengi tekur sjór­inn við“.“

Þú hefur haft þetta í gegn á þinni tveggja vikna setu á þingi.

„Já.“

Þú hefur þá ekki hugsað þér frek­ari frama í póli­tík?

„Nei, ekki þá. En mér þótti rosa gaman að sjá þetta og þetta er ekki auð­velt starf að vera þarna inni. Ég veit það alveg. Þeir sem vinna þar hafa hell­ing að gera. Ég öfunda þá ekki. En hins vegar er þetta skemmti­legt. Ég hef alltaf haft áhuga á póli­tík.“

Hefur þú eitt­hvað verið að vafstra í bæj­ar­mál­unum í Hafn­ar­firði?“ Þess má geta að Elín fædd­ist á Akureyri en flutti tveggja ára til Hafn­ar­fjarðar og seg­ist eig­in­lega hafa búið þar alla tíð síðan.

„Já, ég er í stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar. Sonur minn var á lista síð­ast. En þetta er komið gott hjá mér. En ég hef gaman af að fylgj­ast með og taka þátt í bar­áttu.“

Fékk ekki að fara á dekkið

Hvenær hófst sjó­mennsku­fer­ill­inn?

„Þegar ég kláraði mat­reiðslu­nám þá lang­aði mig svo að prófa sjó­mennsku og 1985 leysti ég af hjá Sam­skipum í fyrsta skipti að sumri til; var á sumrin annað slagið þar til 1988. Þá byrj­aði ég föst hjá Sam­skipum og var alveg til 1994. Ég var bæði á milli­landa­skipum og í strand­sigl­ingum.“

Elín seg­ist hafa verið á Arn­ar­felli – tveimur Arn­ar­fellum – auk þess að hafa siglt á Dís­ar­felli, Helga­felli og Hvassa­felli. „Ég var líka hjá Eim­skipum á sumrin, áður en ég varð föst hjá Sam­skipum,“ segir Elín, en fyrst var reyndar um að ræða Skipa­deild Sam­bands­ins.

Áður fyrr var bæði bryti og messi um borð og segir Elín að í fyrsta túrnum hafi hún verið með messa og að síðan hafi það eig­in­lega verið lagt af.

En það var bara áskorun að pott­arnir hreyfð­ust.

Hún segir að fyrsti túr­inn hafi verið erf­iður.

„Ég var komin úr námi þar sem var fólk sem vaskaði upp og gerði allt fyrir mann og maður hugs­aði aldrei um hvort maður var að nota auka­skál. Svo var ég allt í einu komin með 12-15 manns til að elda fyrir og þó að messi væri í áhöfn­inni þá þurfti maður samt að hugsa öðru­vísi og svo var það nátt­úr­lega hreyf­ingin og allt um borð. En það var bara áskorun að pott­arnir hreyfð­ust.“

Hún þurfti að stíga öld­una.

„Já.“

Með pott­inn í fang­inu vænt­an­lega.

„Oft og tíðum, já.“

Svo gat maður orðið sjó­veikur.“

Glímdir þú við sjó­veiki?

„Já, ég glímdi oft við sjó­veiki í byrjun. Ef maður var að koma úr löngu fríi þá var maður stundum sjó­veikur og svo bara var það búið. Ég man þegar ég fór ein­hvern tím­ann í túr og hugs­aði „guð minn góður, hvað er ég að gera? Ég geri þetta aldrei aftur. Nú bara er ég hætt“. Svo fór ég fjóra túra í röð af því að sjó­veikin var búin eftir tvo daga.

Hvernig var að vera sjó­veik við matseld?

Það var einu sinni sem ég þurfti að fá ein­hvern annan til að smakka fyrir mig. En ég eld­aði alltaf. En ég hafði opið til þess að fá hreint loft og fór oft út.“

Líkaði þér vel á sjónum? Voru engar efa­semdir hjá þér um að þarna vildir þú vera?

„Mér fannst þetta mjög skemmti­legt og lífs­reynsla. Mig lang­aði alltaf að prófa þetta. Þegar ég fædd­ist þá bjuggu for­eldrar mínir á Hjalt­eyri. Ég fædd­ist í mars og var ekki viku­gömul þegar ég fór á bát yfir á Hjalt­eyri af því að það var ekki fært land­leið­ina. Þannig að mamma sagði að ég hefði snemma farið á sjó.“

Er sjó­mennska í ætt­inni?

„Nei.“

Allt land­krabbar?

„Kennarar og skóla­stjórar og svo­leiðis.“

Þannig að þú kannski braust þarna ákveðið blað.

„Já, ég gerði það.“

Ég sagði „ef við­horfin eru svona hérna, þá tala ég bara við jafn­réttis­nefnd Sam­bands­ins“.

Varst þú vör við nei­kvæð við­horf? Nú voru ekki margar konur brytar eða kokkar á skipum.

„Maður fann aðeins. Þegar ég var að byrja og var í afleys­ingum og ráðn­ing­ar­stjór­inn vissi ekki hvenær ég fengi pláss aftur, þá sagði ég að það væri allt í lagi, ég gæti bara farið á dekkið. Þá sagði hann „nei, konur fara ekki á dekk. Þið verðið nú að leyfa okkur að eiga eitt­hvað eftir“. Þá vissi ég að það væri til jafn­réttis­nefnd hjá Sam­band­inu og ég sagði „ef við­horfin eru svona hérna þá tala ég bara við jafn­réttis­nefnd Sam­bands­ins“. Síðan fékk ég alltaf nóg að gera; ég fékk ekki að fara á dekkið.“

En fékkst fasta stöðu.

„Já, og nóg að gera í kokkarí­inu.“

Það var aðaltilbreytingin

Þetta er karla­sam­fé­lag um borð og er Elín spurð hvernig henni hafi fund­ist að vera næstum því í ein­angrun úti á ball­ar­hafi með áhöfn upp á kannski 12 manns.

Þá er alltaf komið og sagt „hvað er í mat­inn?“.

„Mér fannst það bara skemmti­legt. Ég eign­að­ist fjölda vina og kunn­ingja þarna. Ég hef alltaf verið ákveðin kona og ekki kallað allt ömmu mína, þannig að það pirraði mig ekk­ert. Ég hugsa að þetta sé erf­ið­asta starfið um borð, vegna þess að það er alltaf komið og spurt hvað sé í mat­inn. Það bíða allir; það er kannski eina til­breyt­ingin. Það er kannski siglt í meira en viku og þá er alltaf komið og sagt „hvað er í mat­inn?“. Það var aðal­til­breyt­ingin. Það var eins gott að kokk­ur­inn klikk­aði ekki.“

Sjómenn hafa verið með ákveð­inn talsmáta og látið allt vaða. Þeir rjúka upp og eru vinir 10 mín­útum síðar. Þeir segja það sem þeim dettur í hug og það er ekki endi­lega alltaf það sem við köllum „póli­tískt rétt“. Elín er spurð hvort hún haldi að þetta myndi ganga í dag.

„Ég held að það væri mjög erfitt og gæti verið erfitt fyrir ungar konur. Sam­fé­lagið er allt annað. Við lifðum og hrærð­umst í allt öðru­vísi sam­fé­lagi. Auðvitað væru margar stelpur sem gætu það. En karl­menn­irnir eru líka að breyt­ast. Við skulum alla­vega vona það.“

Byrjuðu saman í Hull

Elín er spurð um eft­ir­minni­leg­asta túr­inn.

Þá kom brot aftan á, inn um glugg­ann og ég stóð í eld­hús­inu alveg renn­andi blaut.

„Þeir eru margir eft­ir­minni­legir, en það hlýtur að vera túr­inn þegar ég byrj­aði með mann­inum mínum. Hann var hjá Sam­skipum. Hann var í Stýri­manna­skól­anum og þurfti að ná sér í reynslu á frakt­ara. Við vorum búin að sigla saman um sum­arið og svo kom hann í afleys­ingar í jóla­túr. Ég var að koma úr löngu fríi; var búin að vera í Banda­ríkj­unum í meira en mánuð. Við fórum 22. des­em­ber held ég; þetta var rétt fyrir jólin. Við fórum til Eyja; ég man að ég gerði des­ert­inn í Eyjum fyrir aðfanga­dags­kvöld og svo gerði alveg kol­vit­laust veður. Ég var svo sjó­veik á aðfanga­dag þegar ég var að gefa þeim að borða. Þá kom brot aftan á, inn um glugg­ann og ég stóð í eld­hús­inu alveg renn­andi blaut og disk­arnir og allt saman. Og þá hætti ég að vera sjó­veik og fór að hlæja og sagði við strák­ana „ég er búin að fá jóla­baðið“. Og túr­inn sem átti að vera 12 dagar varð þrjár vikur. Við misstum út gáma. Við byrj­uðum saman í Hull á milli jóla og nýárs. Og hann kom allt of seint í skól­ann af því að túr­inn var svo langur.“

Elín segir að hann hafi einu sinni verið á Jök­ul­fell­inu og hún á Arn­ar­fell­inu og þau hafi þá ekki hist í 85 daga. „Stundum náðum við að vinka í hafn­ar­kjaft­inum en ég var alltaf nýfarin eða hann þegar hitt kom.“

Þær hafa verið stopular, sam­veru­stund­irnar.

„Já, þarna í byrjun.

Við vorum alltaf til skiptis. Við vorum ekki á sömu skipum, en þó eitt­hvað. Svo hætti ég þegar við eign­uð­umst okkar barn 1994.“

Heimilisfræðikennari

Elín er spurð hvort hún sakni þess að vera á sjónum.

„Stundum þegar er fal­legt veður og ég horfi á hafið, þá hugsa ég að það væri fínt að vera úti á sjó. En þegar veður er vont þá sakna ég þess ekki.“

Núna vinnur Elín við kennslu.

„Það hitt­ist svo­leiðis á að ég hafði verið með mat­stofu í Kópavogi og var nýbúin að selja hana,“ segir hún og svo var hringt í hana og hún spurð hvort hún vildi kenna heim­il­is­fræði við Víði­staða­skóla þar sem faðir hennar hafði verið skóla­stjóri. Nýr kafli hófst og fór hún svo í nám í upp­eldis- og kennslu­fræði og náði sér í kennslu­rétt­indi. „Ég kenni heim­il­is­fræði sem mér finnst mjög skemmti­legt og krökk­unum finnst mjög gaman í heim­il­is­fræði.

Kennslu­starfið er létt­ara; ég var með mat­stofu þar sem ég var kannski að elda fyrir 4-500 manns í hádeg­inu og voru pottar þungir. Ég var alltaf að drep­ast í bak­inu og ég hef varla fundið fyrir því síðan; ekk­ert í lík­ingu við það sem var. Maður yng­ist ekk­ert.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum