Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Áfangasigur Harrys Bretaprins í ærumeiðingamáli

Áfangasigur Harrys Bretaprins í ærumeiðingamáli
Mynd / EPA

Dómstóll í London hefur kveðið upp þann dóm að hluti greinar breska blaðs­ins The Mail on Sunday um Harry Breta­prins hafi verið æru­meið­andi. Dómurinn markar sigur Harrys á fyrsta stigi máls­sóknar hans gegn blað­inu. Þetta kemur meðal ann­ars fram hjá BBC.

Grein blaðs­ins sner­ist um deilur her­tog­ans af Sussex við stjórn­völd í Bret­landi þegar kemur að örygg­is­gæslu fyrir hann og fjöl­skyldu hans, þegar þau eru stödd þar í landi. Talsmenn Harrys segja grein­ina hafa sakað Harry um að ljúga og reyna að ráðskast með og hafa áhrif á almenn­ings­á­lit. Um aðdrótt­anir hafi verið að ræða og Harry sak­laus af því sem á hann var borið.

Útgáfu­fyr­ir­tæki blaðs­ins neitar þeim ásök­unum alfarið og segir grein­ina ekki æru­meið­andi.

Í skrif­legum vitn­is­burði í síð­asti mán­uði sagði Harry grein­ina hafa valdið sér „miklum sár­indum, vand­ræðum og streitu,“ sem enn væri við lýði.

Dóms­málið er ekki á enda þótt Harry hafi unnið áfanga­sigur. Enn eru fleiri dagar eftir í rétt­ar­salnum og fleiri vitn­is­burðir vænt­an­legir. Á þessu fyrsta stigi var reynt að skera úr um það hvað átt hefði verið við í grein­inni og þar með hver vörn blaðs­ins yrði. Dómarinn í mál­inu kvað upp þann dóm að í grein­inni væri því haldið fram að Harry hefði hrært í stað­reyndum og villt um fyrir almenn­ingi svo fólk héldi að hann hefði boð­ist til þess að greiða fyrir lög­reglu­vernd og væri að berj­ast við ríkið vegna þess að honum hefði verið neitað um það.

Í grein­inni var því einnig haldið fram að dóms­skjöl sýndu fram á það að her­tog­inn hefði ein­ungis boð­ist til þess að greiða fyrir örygg­is­gæslu eftir að dóms­mál hafi þegar verið hafið. Hann hafi reynt að koma í veg fyrir að gögn og vitn­is­burðir í mál­inu yrðu gerðir opin­berir.

Dómarinn féllst þó ekki á það að greinin segði Harry hafa logið, líkt og lög­fræði­teymi hans heldur fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu