Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Pétur er allra minnsti hluthafi Festis: „Þeir gerast ekki minni“

Pétur er allra minnsti hluthafi Festis: „Þeir gerast ekki minni“
Pétur Þor­steins­son Mynd: BG

„Ég er allra minnsti hlut­hafi í heim­inum held ég,“ segir Pétur Þor­steins­son, en hann var staddur á hlut­hafa­fundi Festis í síð­ustu viku þegar ný stjórn félags­ins var kosin og ræddi við blaða­mann á staðnum um atburði fund­ar­ins. Pétur seg­ist eiga 117 eða 217 króna hlut í fyr­ir­tæk­inu, hann er ekki alveg viss hvort.

„Já, þeir ger­ast ekki minni, hlut­haf­arnir. Þeir millj­arða­menn­irnir sem mættu þarna, hentu út og komu nýju fólki inn; þeir nátt­úru­lega ráða þessu og stjórna.

Lítið er lunga í lóu­þræls­unga. Þó mun enn minna mann­vitið kvinna. Eins og segir í text­anum. Þannig að ég er sá allra, allra minnsti bara, sem ég held að sé til. En nú er maður þarna, nú er maður hlut­hafi. Þessi dreifða eign­ar­að­ild sem er verið að tala um að þessi fyr­ir­tæki eigi að sinna og allt þetta kjaftæði fram og aftur. Þetta er hund­gam­alt sem ég átti í þessu.“

Lagði til að félagið myndi heita Sundrung

Pétur titlar sig sem æsku­lýðs­full­trúa á öldr­un­ar­heim­il­inu Grund. Hann starfar einnig sem prestur Óháða safn­að­ar­ins.

Pétur seg­ist hafa keypt hlut­inn smáa mest­megnis að gamni á sínum tíma. „Þannig er að ég er mik­ill áhuga­maður um hval­veiðar – guð skap­aði hvali til að éta þá – og þá var þetta svona hluti af því að ég vildi sýna Krist­jáni Lofts­syni stuðn­ing.“ Hann rekur það hvernig Olíu­fé­lagið hf. sem þá var og hét breytti um nöfn og eig­endur með tím­anum, og rann svo inn í N1, sem svo varð að Festi. Alltaf kúrði lít­ill hluti Péturs í félag­inu á sínum stað.

Þrátt fyrir að vera senni­lega minnsti hlut­hafi félags­ins hefur Pétur látið sig deil­urnar innan þess varða und­an­farið, eftir að stjórnin, sem nú hefur að hluta til verið stokkað upp í, sagði Eggerti Þór Krist­ó­fers­syni upp starfi sínu sem for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins. Það var til að mynda Pétur sem setti það á dag­skrá á hlut­hafa­fund­inum að nafni félags­ins yrði breytt úr Festi í Sundrung. Hann lagði það þó sjálfur til á fund­inum að hans eigin til­laga yrði felld.

„Svo eru þessar kjaftasögur um Vítalíu“

Pétur seg­ist ekki þekkja til aðdrag­anda upp­sagn­ar­innar en hann hafi sann­ar­lega orðið var við mikla óánægju með fram­kvæmd hennar. „Stjórnin vildi að hann myndi hverfa en það var kannski aðferðin að upp­sögn­inni.. Hann sagði það, Guðjón, að lið­inu gengi vel og þá væri hægt að fá nýjan liðs­mann, leið­toga, til þess að stjórna því áfram. Nú veit ég ekk­ert um það. En svo eru þessar kjafta­sögur um Vítalíu.“

Líkt og þekkt er orðið sak­aði Vítalía Lazareva meðal ann­ars þáver­andi stjórn­ar­for­mann Festis, Þórð Má Jóhann­es­son, um kyn­ferð­is­brot gegn sér í byrjun árs, sem hún sagði hafa átt sér stað í sum­ar­bú­stað í des­em­ber árið 2020. Annar maður sem hún bar ásak­anir á í tengslum við sömu ferð er einka­fjár­festir í Festi, Hregg­viður Jónsson. Þórður Már Jóhann­es­son steig til hliðar sem stjórn­ar­for­maður Festis eftir að ásak­an­irnar komu fram.

Vítalía hefur sjálf lýst því að hún hafi rætt mál sitt við for­stjór­ann, Eggert Þór Krist­ó­fers­son. Hún segir hann hafa verið einn fárra sem á hana hlust­uðu og lýsir því að fram­koma hans hafi verið til fyr­ir­myndar. Þegar til­kynnt var um upp­sögn Eggerts var því velt upp hvort hún gæti tengst máli Vítalíu.

„Þarna var réttlætiskennd minni brugðið“

„En það var bara þessi aðferða­fræði, hvernig var farið að þessu,“ segir Pétur. Hann seg­ist aðeins hafa kynnst Eggerti af góðu. „Bara prýði­legur drengur. Þannig að það er ekk­ert svo­leiðis sem ég veit til þess að hafi valdið þess­ari upp­sögn. En svo er það til­kynn­ingin til Kaup­hall­ar­innar sem hafði mis­farist – hver það var sem sagði upp og hverjum. Svo kom í ljós að það var ekki rétt að hann hefði sagt upp, heldur hafði honum verið sagt upp.“

Hann segir fundi í Festi fram að þessu hafa farið fram í mestu frið­semd, þótt hann hafi sjálfur að vísu ekki sótt þá alla. „En þarna var rétt­læt­is­kennd minni brugðið. Þess vegna kom ég með þessa til­lögu. Þannig að eftir 100 ár, þá verður saga félags­ins kannski skráð, ef það verða ekki ein­hverjir hrægammar búnir að éta það í smæstu myrkur og ystur. Þá verður þessa fundar minnst og þess­arar sam­komu, þannig að menn læri á þessu. Ég er smá kenni­maður í þessum efnum,“ segir Pétur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum