Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Í alvöru, er ekki komið nóg af því að tala við okkur eins og fáráðlinga?“

„Í alvöru, er ekki komið nóg af því að tala við okkur eins og fáráðlinga?“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, lætur Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra heyra það í færslu sem hún birtir á Facebook. Sólveig vísar í orð Katrínar í kvöld­fréttum Stöð 2 í gær en þar sagði Katrín: „Á sama tíma og talað er um lítið svig­rúm til launa­hækk­ana þá verður það að gilda fyrir allan stig­ann. Það getur ekki bara gilt fyrir launa­fólk. Það hlýtur að gilda ekki síður fyrir stjórn­endur.“

Sólveig bendir á að laun þing­manna hafa hækkað gríð­ar­lega á ein­ungis sex árum. „Nú er það svo að laun þing­manna hafa hækkað um næstum 90% frá árinu 2016. Grunn­laun ráð­herra hafa hækkað enn meira á sama tíma­bili eða um rétt tæpa milljón á mán­uði. Laun for­seta Íslands eru þrjár og hálf milljón á mán­uði. Borg­ar­stjóri Reykja­víkur er með 3.082.538 krónur í mán­að­ar­laun. Ef að við beinum sjónum okkar að for­stjórum íslensks kap­ít­al­isma sjáum við sjálftöku-millj­ónir póli­tískrar yfir­stéttar blikna í sam­an­burði; for­stjóri Haga er með rétt tæpar sex millj­ónir á mán­uði, for­stjóri Icelandair með rétt tæpar sjö. Og við skulum ekki einu sinni skoða þá al-tekju­hæstu á eyj­unni okkar, klukkan er orðin margt og ekki ráð­legt að heim­sækja ofskynj­unar-lendur þær sem þriggja millj­arða menn­irnir hafa lagt undir sig svona stuttu fyrir svefn­inn,“ segir Sólveig.

Á sama tíma á ungt fólk enga mögu­leika á því að eign­ast eigið hús­næði. „Ójöfn­uður eykst. Verka og lág­launa­fólk stritar en nær aldrei endum saman. Lág­launa­konur ganga sér til húðar og sumar missa heils­una um fimm­tugt, lík­am­inn þolir ekki meira strit. Ungt fólk sem til­heyrir stétt vinnu­aflsins á enga mögu­leika á því að eign­ast eigið hús­næði; frá því að síð­ustu kjara­samn­ingar á almennum vinnu­mark­aði voru und­ir­rit­aðir hefur hús­næð­is­verð hækkað um meira en 60%. Við­bjóðs­leg­ustu lög­mál hins frjálsa mark­aðar fá óhindrað að leggja til­veru þess fólks sem fast er á leigu­mark­aði í rúst; konan sem á ekk­ert borgar nú mán­að­ar­lega 50.000 krónum hærri leigu en fyrir ári,“ segir Sólveig.

Sólveig vitnar svo í fyrr­nefnd orð Katrínar í kvöld­fréttum Stöð 2:

„Á sama tíma og talað er um lítið svig­rúm til launa­hækk­ana þá verður það að gilda fyrir allan stig­ann. Það getur ekki bara gilt fyrir launa­fólk. Það hlýtur að gilda ekki síður fyrir stjórn­endur.“

Hvað þýðir þessi setn­ing? Hverjir eiga að með­taka þessi skila­boð? Þau sem til­heyra yfir­stétt­inni og eru þegar búin að hækka eigin laun stór­kost­lega? Þau sem fengu hækk­an­irnar áður en að skýrslu­höf­undar Þjóð­hags­ráðs komust að þeirri nið­ur­stöðu að svig­rúmið væri á þrotum? Á það fólk að tíma-flakka til baka og stoppa sig sjálft í nýlið­inni for­tíð nákvæm­lega á þeirri stundu sem það tók við sjálf-skömmt­uðum launa­hækk­unum? Eða er verið að tala til verka og lág­launa­fólks, ómissandi fólks­ins, þeirra sem skapa hag­vöxtin með vinnu sinni og þeirra sem halda umönn­un­ar­kerfum okkar gang­andi með þraut­seigju sinni? Eru þetta skila­boð til vinnu­aflsins um að vera heimsk og und­ir­gefin, að vera ekki með vesen, skila­boð um að sam­þykkja að hafa það ömur­legt svo að þau sem stýra þessu landi geti haldið áfram að lifa í sjálfs­blekk­ingu um að stöð­ug­leik­inn sé bara rétt handan við hornið, og náist þegar að lág­launa­kon­urnar sam­þykki að fara aftur aft­ast í röð­ina þangað til að reyk­víska meritókrasían til­kynni í hátal­ara­kerf­inu að stundin sé loks­ins runnin upp, svig­rúm hafi komið í leit­irnar fyrir þau sem svitna fyrir hag­vöxt­inn?,“ spyr Sólveig.

„Í alvöru, er ekki komið nóg af því að tala við okkur eins og fáráð­linga? Má ég plís afþakka orða­sa­löt stjór­anna? Ég hef enga lyst á þeim og ég treysti mér til að full­yrða að sömu sögu má segja um ansi marga“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum