Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ragnhildur sálfræðingur: „Stundum eru einkenni kvíða misskilin sem dónaskapur“

Ragnhildur sálfræðingur: „Stundum eru einkenni kvíða misskilin sem dónaskapur“

Ragn­hildur Þórð­ar­dóttir sál­fræð­ingur biður net­verja um að vera vak­andi fyrir kvíða­hegðun ann­arra sem gæti á suma virkað sem dóna­leg. Hún segir að kvíða­hegðun sé ekki per­sónu­leg árás á nokkurn mann heldur varn­ar­við­brögð kvíða­sjúk­lings­ins.Ragn­hildur, sem flestir þekkja betur undir nafn­inu Ragga nagli, er sál­fræð­ingur að mennt með áherslu á heilsusál­fræði. Hún er einnig lærður einka­þjálf­ari og er hún virk að deila fróð­leik um heilsu­sam­legt líf­erni meðal ann­ars á sam­fé­lags­miðlum sínum, á fyr­ir­lestrum, með greina­skrifum og svo hefur hún einnig gefið út bók um efnið.Ragga Nagli er dug­leg að fjalla um mik­il­væg mál­efni á Facebook-síðu sinni og að þessu sinni tekur hún fyrir kvíða­hegðun:

„Kvíða­ein­kenni geta oft verið mis­skilin sem dóna­skapur. Ofurár­vekni fyrir umhverf­inu og við­brögðum ann­arra leiðir oft af sér hegðun sem virkar dóna­leg fyrir sumum.

Mann­eskja með kvíða svarar ekki skila­boðum í marga daga því hún veit ekki hvað sé nógu gott svar. Skrifar jafn­vel langa munn­ræpu en strokar út jafn­óðum marg­sinnis áður en ýtt er loks­ins á send-takk­ann.

Oft er erfitt að horfa beint í augun á ein­hverjum þegar lík­am­inn er sós­aður í kvíða­ein­kennum af hjartslætti og hnút í maga, svo þau forð­ast augn­sam­band í sam­tölum.

Mann­eskja með kvíða getur virkað óáreið­an­leg því hún aflýsir hitt­ingum á síð­ustu stundu og finnur fyrir létti en sam­visku­biti sam­tímis.

„Hvað ef ég þekki engan í partý­inu.“ „Ég treysti mér ekki að hitta neinn núna.“

Og hún gæti látið sig hverfa úr partýum því aðstæð­urnar verða yfir­þyrm­andi erf­iðar.

Mann­eskja með kvíða getur virkað hroka­full þegar hún er bara sjúk­lega feimin.

„Ég þekki engan hérna, og eng­inn vill tala við mig. Ég ætla bara að sitja úti í horni og skrolla sím­ann af því ég þori ekki að blanda geði.“

Mann­eskja með kvíða getur verið þögul í sam­skiptum, því hún er að ana­lýsera í öreindir allt sem hún segir. „Verð að passa allt sem ég segi. Hvað ef henni finnst ég vera leið­in­leg.“

Mann­eskja með kvíða getur átt erfitt með að ein­beita sér í sam­tali við ein­hvern því hún er þjökuð af alls­konar áhyggjum.

„Hvað ef yfir­mað­ur­inn skammar mig fyrir að skila skýrsl­unni of seint.“ „Gleymdi ég kannski nest­inu hjá barn­inu í morgun.“

Mann­eskja með kvíða getur virkað óákveðin, þegar hún er skít­hrædd við að taka ákvörðun og standa með henni.

„Hvað ef ég ákveð bíó­mynd og hún er leið­in­leg, og allir verða fúlir út í mig fyrir að eyði­leggja kvöldið“

Mann­eskja með kvíða getur verið þreytu­leg, því hún á erfitt með að festa svefn þegar hugs­an­irnar eru á For­múlu­hraða að end­ur­spila atvik og end­ur­upp­lifa áföll og losa streitu­hormón.

„Ohh ég var svo asna­leg í sauma­klúbbnum. Átti aldrei að segja þennan brand­ara. Mér líður ömur­lega yfir þessu rifr­ildi við Jóa í fjár­mála­deild, ég hefði átt að standa betur með mér.“

Það er mik­il­vægt að átta sig á að þetta er ekkki dóna­skapur heldur er mann­eskja með kvíða að bregð­ast við óbæri­legum innri ein­kennum sem eng­inn sér.

Þegar við áttum okkur á hegð­un­ar­mynstri og kvíða­við­brögðum, eigum við auð­veld­ara með að sýna mann­eskj­unni sam­kennd og skiln­ing, í stað þess að verða móðguð og pirruð.

Þeirra hegðun er ekki per­sónu­leg árás í okkar garð, heldur þau að vernda sjálfið sitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum