Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Jón Ásgeir og Skel á fullu: „Þetta var sofandi félag – Gott að allir hafi eitthvað upp úr leiknum“

Jón Ásgeir og Skel á fullu: „Þetta var sofandi félag – Gott að allir hafi eitthvað upp úr leiknum“
Mynd / Skjáskot af jonas­geirjo­hann­es­son.is.

Fjár­festir­inn Jón Ásgeir Jóhann­es­son segir að Skel fjár­fest­ing­ar­fé­lag hafi fram­kvæmt stóran hlut af áætl­un­inni sem Strengur, meiri­hluta­eig­andi félags­ins, lagði upp með fjár­fest­ingu í félag­inu.

Hann var spurður um mark­mið Skeljar til næstu tíu ára í hlað­varps­þætt­inum Chess after Dark:

„Mark­miðið er að búa til öfl­ugt fjár­fest­ing­ar­fé­lag, mark­miðið er að halda því skráðu, mark­miðið er að fá erlenda fjár­festa að félag­inu. Ég held að skrán­ing sé mik­il­vægt atriði í því,“ sagði Jón Ásgeir, sem var kjörin í stjórn Skeljar (þá Skelj­ungur) árið 2019, eftir að 365, félag Ingi­bjargar Pálma­dóttur, sem er eig­in­kona hans, hafði keypt meira tíu pró­sent hlut í félag­inu.

Jón Ásgeir fer fyrir fjár­fest­ing­ar­fé­lag­inu Streng; og gerði yfir­tökutil­boð í Skeljung í árs­lok 2020, og boð­aði þá miklar breyt­ingar; fáir hlut­hafar tóku til­boð­inu; en þó eign­að­ist Strengur meiri­hluta í Skelj­ungi í árs­byrjun 2021.

Hvers vegna Skel?

„Ég þekkti nátt­úru­lega félagið, við áttum það á sínum tíma inn í Högum. Þarna var félag sem var með sterkan efna­hags­reikn­ing að við töldum, og dulið eigið fé í eignum sem þurfti að kreista fram með að láta efna­hags­reikn­ing­inn svitna. Ná fram því sem hægt var að ná fram. Um þetta sner­ist planið.“

Kemur fram að inn­lendri starf­semi Skeljar var skipt upp í þrjú dótt­ur­fé­lög í fyrra; Orkuna IS, Skeljung IS og Gallon.

Í síð­ustu árs­skýrslu fyr­ir­tæk­is­ins Skeljar, hefur Jón Ásgeir sagt að þegar hann kom inn í félagið fyrir þremur árum hafi and­inn þar verið líkur því að mæta á fund í rík­is­stofnun í gamla daga:

„Kannski vant­aði skýr­ari stefnu, vant­aði svona eig­enda­drif­kraft inn í félagið. Þú varst þess hratt mjög áskynja þegar þú komst að félag­inu – þetta var sof­andi félag. Því gekk ágæt­lega en það var kom­inn tíma­punktur að hrista upp í því.“

Í apríl var Ásgeir Helgi Reyk­fjörð Gylfason ráð­inn for­stjóri Skeljar og Magnús Ingi Ein­ars­son fjár­mála­stjóri, og Skel gerði kaup­rétt­ar­samn­inga við þá upp á allt að fimm pró­senta hlut í félag­inu:

„Ég hef sagt að það sé bara þannig í rekstri fyr­ir­tækja og í öllu öðru, t.d. fót­bolta­liðum – menn eru mis­góðir. Það er alveg ómögu­legt að setja alla undir sama launa­þak, sér­stak­lega í for­stjóra­hlut­verk­inu, sem er eins og að velja bestu íþrótta­menn­ina. Þeir kosta mis­mikið eftir getu,“ sagði Jón Ásgeir sem er klár á því að kaup­réttir, sem tengi saman hags­muni for­stjóra og hlut­hafa, hafi sannað gildi sitt á stærri mörk­uðum.

„Ég er líka tals­maður þess að menn reyni að koma slíkum kerfum á fyrir fleiri heldur en bara topp­að­il­ana í fyr­ir­tækjum. Það er gott að allir hafi eitt­hvað upp úr leiknum.“

Frá þeim tíma er Strengur náði yfir­ráðum yfir Skel hafa líf­eyr­is­sjóðir minnkað hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu, og hafa ýmsir einka­fjár­festar komið inn á móti. Aðspurður hvort líf­eyr­is­sjóðir séu smeykir við breyt­ingar á rekstri skráðra félaga, segir Jón Ásgeir að sumir sjóðir hafi í það minnsta ekki ánægju af því að einka­fram­tak sé mikið:

„Það hefur oft verið þannig, finnst manni, að ákveðnir sjóðir eru ekk­ert hrifnir af því að einka­fram­takið komi inn í skráð félög. Þrátt fyrir að þeir tali um það á tylli­dögum að það sé eðli­legt að það komi ein­stak­lings­fram­takið og drífi áfram félögin – að líf­eyr­is­sjóð­irnir séu í hlut­verki með­fjár­festa – þá er það ekki alltaf þannig.“

En hvað varðar síðan góða sam­setn­ingu í hlut­haf­hópi, segir Jón Ásgeir að það sé mik­il­vægt að hlut­hafar hafi sam­eig­in­lega sýn á rekstur félags­ins; gangi í takt.

„Það er alltaf slæmt ef menn eru ekki sam­mála um fram­tíð­ar­sýn­ina. Það er enn þá verra þegar menn segja ekki sína skoðun, þá er það enn erf­ið­ara.“

Hann segir einnig að einka­fram­takið hafi verið áber­andi í skráðum félögum á Íslandi fyrr á öld­inni; en eftir hrun hafi þetta orðið að líf­eyr­is­sjóða­kerfi með til­heyr­andi íhaldi – að líf­eyr­is­sjóð­irnir ein­blíni kannski á aðra þætti í rekstri félag­anna.

„Á síð­ustu árum komið inn einka­fjár­festar – sem betur fer fyrir þessi fyr­ir­tæki – og aðeins hrist upp í þessu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum