Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Una var áreitt í Íran: „Það er ekki eins og hann hafi „gripið í píkuna“ á mér!“

Una var áreitt í Íran: „Það er ekki eins og hann hafi „gripið í píkuna“ á mér!“

Karl­maður elti Unu Sig­hvats­dóttur, sér­fræð­ing hjá emb­ætti Forseta Íslands, á mót­or­hjóli, hindr­aði för hennar, dró hana að sér og hélt Unu fastri á meðan hann reyndi að kyssa hana. Þetta var í Íran haustið 2016 og hún rifjar nú upp atvikið á Facebook í ljósi log­andi mót­mæla í land­inu, sem konur leiða slæðu­lausar.

„Mér verður enn oft hugsað til þess atviks, vegna þess að eftir öll mín solo-ferða­lög síðan þá er þetta ennþá gróf­asta áreitni sem ég hef orðið fyrir, og kenn­ing mín er sú að það hafi gerst vegna þess að ég var veik þetta kvöld og upp­burð­ar­lítil. Svona predatorar leita nefni­lega oft uppi fórn­ar­lömb sem eru við­kvæm fyrir, en um leið svo dæmi­gert að ég finni sök­ina hjá sjálfri mér, segir Una í upp­rifjun sinni og segir svo sög­una þetta erf­iða kvöld í Íran:

„Kvöld eitt í borg­inni Kashan í Íran varð ég fyrir því að ókunn­ugur maður elti mig á mót­or­hjóli, hindr­aði för mína, dró mig að sér og hélt mér fastri meðan hann reyndi að kyssa mig. Ég hafði borðað kvöld­mat á fal­legum veit­inga­stað sem hér sést en fékk mígrenikast og var ekki alveg með sjálfri mér vegna flök­ur­leika. Kannski var ég því minna vör um mig en venju­lega, ég veit það ekki. Ég æpti á hann, sleit mig lausa og hann kom sér burt þegar írönsk kona gekk fyrir hornið. Mikið var ég henni þakk­lát fyrir að birt­ast einmitt á þessum tíma­punkti.

Nú þegar ég er loks­ins að fara í gegnum mynd­irnar frá Írans­ferð­inni staldra ég aðeins við þetta kvöld. Ég hef nefni­lega margoft verið spurð að því hvernig hafi gengið að vera kona ein á ferð í Íran. Sem ég svara alltaf: „Ekkert mál, bara frá­bært, mæli með því.“ Og það er alveg satt, það er auð­velt og öruggt að ferð­ast um Íran, með brjóst­vitið að vopni. Ég tek áreitn­ina þetta kvöld aldrei með í reikn­ing­inn, né heldur smá­vægi­legri atvik þar sem karl­menn gengu t.d. óeðli­leg nálægt mér, að því er virð­ist í þeim eina til­gangi að strjúkast við mig þegar við mætt­umst. Svo rann það upp fyrir mér að ég nefni þetta aldrei af því mér finnt þetta svo lít­il­vægt. Varla þess vert að minn­ast á. Þetta var bara fyr­ir­sjá­an­leg kyn­ferð­is­áreitni sem hefði allt eins getað orðið á ferða­lagi um Evrópu. Það er ekki eins og hann hafi „gripið í pík­una“ á mér!

Seinna í sumar sá ég samt aðra evr­ópska konu deila svip­aðri reynslu í spjall­hópi um Íran hér á Facebook. Hún upp­skar hörð við­brögð, mörg­hund­ruð komment frá bæði körlum og konum, sem gagn­rýndu hana fyrir að gera alla karl­menn að söku­dólgum með því að vekja máls á sinni reynslu. Það væri vissu­lega leið­in­legt ef hún upp­lifði áreiti en hún hefði nú mátt búast við því. Slíkt gæti gerst í hvaða landi sem er. Skila­boðin sem hún fékk voru þau að svona væri heim­ur­inn og konur sem ákveði að vera einar á ferð verði bara að sætta sig við það. Eins og ég gerði. Í mínum huga var þetta svo normalíserað að mér datt ekki í hug að tala um svona smá­vægi­legt atvik. Samt var mér mjög brugðið þetta kvöld, en fór bara heim á hótel, tók migreni­lyf fyrir svefn­inn og pældi ekki meira í því.

Ég segi þá bara frá því núna. Ekki afþví að þetta atvik sjálft sitji neitt í mér, heldur frekar að mér hafi ekki þótt vert að nefna það þegar ég er spurð. Mér fannst sjálfri að ég mætti bara búast við svona lög­uðu sem kona ein­sömul og var jafn­vel hissa á að það skyldi ekki ger­ast oftar. Eftir á að hyggja er það þanka­gangur sem ég get ekki sætt mig við. Svona lagað breyt­ist alla­vega ekki nema við hættum að sam­þykkja að það sé eðli­legt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum