Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Nýr formaður Samfylkingarinnar: „Ég hef ekki staðið á stalli heldur leitast við að berskjalda mig“

Nýr formaður Samfylkingarinnar: „Ég hef ekki staðið á stalli heldur leitast við að berskjalda mig“
Kristrún Frosta­dóttir for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Eins og allir áttu von á þá er Kristrún Frosta­dóttir nýr for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Var sjálf­kjörin því eng­inn þorði að taka slag­inn við hana; enda er hún von­ar­stjarna jafn­að­ar­manna – skín skært.

Eftir að ljóst varð að eng­inn myndi bjóða sig fram gegn henni og að nýja hlut­verkið væri hennar, þá flutti hún ræðu á árs­þingi flokks­ins núna rétt áðan.

Kristrún sagði meðal ann­ars að eitt af stóru verk­efnum Sam­fylk­ing­ar­innar væri að opna flokk­inn upp á gátt fyrir almenn­ingi; eiga sam­tal við flokks­menn á jafn­rétt­is­grund­velli:

„Ég lýsi því yfir hér að þetta verður meg­in­verk­efni Sam­fylk­ing­ar­innar næsta árið; að opna flokk­inn: Að halda áfram að eiga sam­tal við fólk um allt Ísland. Við munum boða til efn­is­legrar umræðu um þá mála­flokka sem við setjum í for­gang fyrir næstu ár, halda opna fundi og mál­þing. Kalla til sér­fræð­inga; fólkið á gólf­inu – fólk sem er hokið af reynslu og ungt fólk sem vill móta fram­tíð sína hér á landi.“

Bætti við:

„Þetta er ákall til ykkar kæru félagar, um að koma með í þetta verk­efni; ákall til þeirra sem þetta land byggja um að virkja sam­stöðu. Við getum öll lagt okkar af mörkum; virkjum jafn­að­ar­taug­ina og gerum þetta skipu­lega; tökum sam­talið; öflum upp­lýs­inga og vinnum úr þeim með átta­vit­ann rétt stilltan.“

Hún vill að Sam­fylk­ingin sýni ábyrgð í orði sem á borði:

„Það gerum við með því að vera ábyrg; ekki með því að skora ódýrt; ekki með því að elt­ast við læk, eða lúta þeim sem hafa hæst á sam­fé­lags­miðlum; þeim sem eru reið­astir í þjóð­mála­um­ræð­unni og nota stærstu orðin. Við verðum að brjót­ast úr berg­máls­hell­inum.“

Kristrún vill bæta stöðu Sam­fylk­ing­ar­innar og sagði í ræðu sinni að staða flokks­ins væri ekki nægi­lega góð; það væri hell­ings verk að vinna:

„Staðan í lands­mál­unum er ekki ásætt­an­leg. Síðustu Alþing­is­kosn­ingar voru tals­verð von­brigði, þar sem stóru lín­urnar eru lagðar. Frá­far­andi for­maður axl­aði sína ábyrgð. En við vitum öll í hjarta okkar að það er ekki nóg að skipta bara um for­ystu­sveit. Enda kall­aði Logi (Ein­ars­son frá­far­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar) sjálfur eftir breyttu skipu­lagi og öðru­vísi for­ystu.“

Kristrún sagð­ist hafa ákveðið „að svara því kalli – eftir að hafa ferð­ast vítt og breitt um landið; haldið mik­inn fjölda opinna funda með fólki í heima­byggð þess. Ég hef ekki staðið á stalli, heldur leit­ast við að ber­skjalda mig og standa með báða fætur á gólf­inu; til að hlusta á fólk í augn­hæð. Fátt hefur gefið mér eins mikla póli­tíska inn­sýn og inn­blástur.

Þessi sam­töl hafa mótað mig og hér stend ég í dag: Með skýrar og sterkar áherslur sem og hug­myndir í fartesk­inu sem ég hef kynnt ítar­lega á und­an­förnum vikum.“

Kristrún segir að „vel­ferð­ar­málin kalla á alla okkar athygli; mál sem snerta allt dag­legt líf fólks hér á landi; hvernig það kemst á milli staða. En trú­verð­ug­leiki okkar þar byggir líka á trú­verð­ugri efna­hags­stefnu; val­kosti við efna­hag­spóli­tík núver­andi rík­is­stjórnar sem yfir­gnæfir allar þeirra aðgerðir: Öllu heldur aðgerða­leysi. Okkar efna­hags­stefna tekur mið af hags­munum heild­ar­innar; heild­ar­mynd, skiln­ingi á því hvernig vel­ferð­ar­kerfið verður best rekið sem og fjár­magnað.“

Hinn nýbak­aði for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar telur að „skamm­tíma­lausnir skila sér í meiri kostn­aði síðar; skuldir finn­ast víðar en í bók­haldi rík­is­sjóðs. Stór­tækar fram­farir á Íslandi velta á því að hér kom­ist til valda stjórn­mála­flokkur sem sér þessa stóru mynd og getur veitt Íslandi for­ystu með fast land undir fótum, og sam­fellu í hugsun; ekki til­vilj­un­ar­kenndum fjár­út­látum og stefnu­lausu aðhaldi sem engum árangri skilar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum