Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Guðlaugur Þór bað um óskalag

Guðlaugur Þór bað um óskalag
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son Mynd / Alþingi

Guð­laugur Þór Þórð­ars­son umhverf­is­ráð­herra mun í dag lýsa því yfir form­lega hvort hann muni taka slag­inn við Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra um for­manns­stól­inn í flokknum. Guð­laugur Þór var búinn að segja sínum nán­ustu sam­herjum í Huldu­hernum frá því fyrir nokkru að hann væri ákveð­inn að fara í slag­inn, eins og Mannlíf greindi frá í síð­ustu viku. Und­ir­bú­ingur hefur staðið um langt skeið og telja menn Guðlaugs sig ráða nógu stórum hluta lands­fund­ar­full­trúa til að leggja Bjarna að velli.

Reiknað var með yfir­lýs­ingu hans í um miðja sein­ustu viku. En svo virt­ist sem hann fengi skynd­lega kalda fætur, stuðn­ings­mönnum sínum til undr­unar. Hann lýsti ekki yfir fram­boði en sagð­ist vera hugsi. Þannig hafa dag­arnir liðið áfram án þess að hann kveði upp úr um það hver áformin eru. Hann hefur lítið tjáð sig í fjöl­miðlum en var þó í stuttu við­tali í popp­þætti á útvarps­stöð­inni Bylgj­unni í gær þar sem hann bað um óska­lagið Bohemian Rhaps­hody með Queen. „Is this just fantasy …,“ er spurt í text­anum og svo „I’m just a poor boy“.

Í dag mun þó draga til tíð­inda. Guð­laugur Þór hefur boðað til fundar þar sem hann ætlar að upp­lýsa um áform sín Sumir telja það klókt hjá honum að segja ekk­ert en leyfa umræð­unni að grass­era. Bjarni ber þess merki að vera tauga­veikl­aður og það kann að hjálpa.

Vandinn er hins vegar sá að Bjarni kann sitt fag. Þegar Hanna Birna Krist­jáns­dóttir dóms­mála­ráð­herra fór gegn honum kom Bjarni með grát­staf­inn í kverk­unum í sjón­varps­við­tal, sýndi mann­lega hlið, og sóp­aði til sín fylgi sem dugði til að stand­ast áhlaup ráð­herr­ans sem seinna hætti með skömm vegna Leka­máls­ins.

Nú er staðan sú að Guð­laugur Þór hefur engu að tapa lengur. Líklegt er að Bjarni hendi honum út úr rík­is­stjórn við fyrsta tæki­færi, hvort sem Guð­laugur Þór tekur slag­inn eða ekki. Það er skollið á stríð í flokknum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Slúður