Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Guðni Ágústsson: „Ég lék bæði Lykla – Pétur og Jón Hreggviðsson“

Guðni Ágústsson: „Ég lék bæði Lykla – Pétur og Jón Hreggviðsson“
Guðni Ágústs­son

„Þetta er frá­sagn­ar­bók,“ segir Guðni Ágústs­son um nýj­ustu bók­ina sína í við­tali við Reyni Trausta­son. Guðjón Ragnar Jónasson skráði. „Það eru margar skemmti­sögur í bók­inni en fyrst og fremst er þetta bók sveit­anna. Ég fer um mína fæð­ing­ar­sveit, Hraun­gerð­is­hrepp­inn í Flóa, og ferð­ast nán­ast bæ frá bæ og get þar tekið upp per­sónur sem voru í minni æsku; gríð­ar­lega merki­legt, magnað og dug­legt fólk. Fólk sem hafði nú ekki gengið í skóla. Það hafði verið í far­skóla og í mesta lagi í barna­skóla. Góðir bændur og lif­andi per­sónu­leikar sem kunna að svara fyrir sig með þeim hætti að það eru ógleym­an­leg til­svör í bók­inni.“

Hún var hóg­vær og vildi ekki láta sviðs­ljósið skína á sig þó Ágúst væri hér­aðs­höfð­ingi og alþing­is­maður.

Í bók­inni er meðal ann­ars fjallað um æsku­heimli Guðna. „Ég segi frá móður minni ekki síst sem kölluð var stundum „huldu­konan“ af því að hún var hóg­vær og vildi ekki láta sviðs­ljósið skína á sig þó Ágúst væri hér­aðs­höfð­ingi og alþing­is­maður. Hún átti sín 16 börn með honum og vann sín verk og hefur ábyggi­lega unnið á við tvo þrjá.“

Guðni talar um æsku­heim­ilið að Brúna­stöðum. Það var gam­alt hús. Um 70 fer­metrar að stærð. „Það voru fæddir einir 12 – 13 krakkar í gamla bænum, 70 fer­metra húsi. Þar sváfum við tveir og tveir í hverju rúmi.“

Og hann nefnir líka Snata gamla og kött­inn.

Allir þarna í kös.

Hvar ert þú í röð­inni

„Ég er númer sjö.“

Sjö af 16.

„Og fædd­ust níu eftir það.“

Miðju­barn.

„Og öll börnin fædd­ust heima nema yngsti dreng­ur­inn. Amma tók á móti okkur. Hún var ljós­móðir.“

Það er ákveðin hóg­værð í þessu fólki sem ein­kenndi móð­ur­ina.

Guðni segir að systur sínar og bræður hafi verið í sveit­ar­stjórnum í sinni sveit og tekið þátt í félags­málum. „En þau hafa ekki verið valin í það erf­iða verk­efni eins og ég eða sóst eftir því. Það er ákveðin hóg­værð í þessu fólki sem ein­kenndi móð­ur­ina.“

Guðni fór að heiman 14 ára gam­all og fór í Hér­aðs­skól­ann á Laug­ar­vatni. Þar fór hann í leik­hús­hóp­inn. „Ég lék bæði Lykla-Pétur og Jón Hregg­viðs­son. Tvær mik­il­vægar per­sónur í sög­unni.“

Barðist fyrir lífi sínu

Í bók­inni eru sagðar sögur af föður Guðna.

Þetta hefur senni­lega verið jafn­mikil þrekraun eins og þegar Gretti sterki glímdi við Glám.

„Ágúst var helj­ar­menni. Varð helj­ar­menni þótt hann hafi búið við sult og seyru á Eyr­ar­bakka fyrstu 10 árin og væri fátæka barnið og ríku strák­arnir reyndu að atast í honum. En hann drakk lýsið úr tunn­unni til að seðja hungrið og það rann í köggl­ana sagði hann en kraft­arnir voru gríð­ar­legir. Að taka í hend­urnar á Ágústi var þrekraun stundum þegar hann gleymdi sér. Hann vissi ekki hvað hann var sterkur. En þarna segi ég frá því þegar hann glímdi við Núma sem var 10 vetra grið­ungur og ekki með hring í nef­inu. Nautið brjál­að­ist og þetta urðu gríð­ar­leg átök. Ágúst sagð­ist síðan hafa haldið naut­inu niðri í ábyggi­lega hálf­tíma til klukku­tíma áður en hjálp barst sem hefur verið gríð­ar­leg þrekraun og reyndi mjög á hann. Þetta hefur senni­lega verið jafn­mikil þrekraun eins og þegar Gretti sterki glímdi við Glám. Svo varð hann undir vöru­bíl í Kömbum og fékk hann yfir brjóstið og þá bjarg­aði honum Grímur á Syðri-Reykjum. Þegar þeir sáu Ágúst undir vöru­bílnum og hann lá á brjóst­inu á honum þá sögðu þeir „hann er dauður“. Pabbi heyrði engla­söng úr himna­ríki og rank­aði við sér við þessa setn­ingu og Grímur sagði „gefið honum brenni­vín, brenni­vín er allra meina bót“ og svo hellti hann upp í hann einum gúl­sopa. Þá fór Ágúst að hósta.“

Þá hrökk hann í gang.

„Þá hrökk hann í gang. Og Lúðvík, afi Davíðs, kom til hjálpar.

Það eru margar svona sögur.“

Þegar nautið réðst á hann þá var vænt­an­legri til­veru þinni ógnað.

„Í báðum þessum til­fellum. Hann barð­ist fyrir lífi sínum í báðum til­fellum.“

Á ekki að meiða neinn

Minnst er á Bobby Fischer í bók­inni.

„Ég gerði Bobby Fischer að sveit­unga mínum,“ segir Guðni en Fischer er jarð­aður í Lauga­dæla­kirkju­garði. „Það eru gríð­ar­lega merki­legar sögur sem ég er að segja af Bobby Fischer. Þar er hann graf­inn. Það var séra Kristinn sem jarð­söng hann sex sinnum og jarð­aði hann einu sinni. Svo var það kaþ­ólskur prestur sem jarð­aði hann. Fyrst þurfti að grafa hann upp.“

Af hverju jarð­söng hann Fischer sex sinnum?

„Það var af því að menn sökn­uðu þess að vera ekki í jarð­ar­för­inni.“

Svo kom svartur boli sem breytt­ist í land­bún­að­ar­ráð­herra.

Guðni talar um drauma sem hann heyrði um. „Bjarni Stef­áns­son í Túni, sem er núver­andi bóndi í hreppnum, kall­aði mig á sinn fund í einka­við­tal þegar ég var ráð­herra. Þá hafði hann dreymt að hann væri í heima­slátrun og þar lýsti hann draumi sínum sem hann dreymdi í tvígang. Inn í heima­slátr­un­ina gekk Halldór Ásgríms­son og mikið lið með honum til að verða vitni að því og svo kom svartur boli sem breytt­ist í land­bún­að­ar­ráð­herra. Þetta eru magn­aðir draumar og sögur. Þetta var um átökin á milli okkar Halldórs um hug­sjónir okkar og mis­mun­andi skoð­anir.“

Það var þungt undir það síð­asta.

„Já, það var þungt. Hann var auð­vitað hinn mæt­asti stjórn­mála­maður og mik­il­feng­legur á margan hátt. En eins og margir var hann kannski of lengi.“

Það getur verið hættu­legt. Þú hafðir vit á því að fara tím­an­lega.

„Ég stóð frammi fyrir því að bjarga flokki mínum.“

Þegar þú sagðir af þér sem for­maður?

„Lýðurinn gerði aðsúg að mér. Æsku­lýð­ur­inn í flokknum. Eða Evr­ópu­lýð­ur­inn. Ég kaus að víkja og velja nýjan for­mann. Sig­mundur Davíð kom upp úr því.“

Hann braust út úr hvaða tugt­húsi sem var og stundum braust hann aftur inn.

Í bók­inni eru meðal ann­ars sögur af föngum á Litla-Hrauni sem brut­ust út hvað eftir annað. „Þetta eru skemmti­legar sögur. Jóhann Víglunds­son var í æsku minni jafn­frægur og stjórn­mála­menn­irnir og við dáðumst nátt­úr­lega að honum. Hann braust út úr hvaða tugt­húsi sem var og stundum braust hann aftur inn. Ég er að lýsa því.“

Guðni segir Reyni frá fleiri sögum sem hann fjallar um í bók­inni.

„Ég vona að menn verði ekki sárir út af neinum sögum. Þessi bók á ekki að meiða neinn ein­asta mann því mér var ekki illa við neinn í minni sveit. Ég hafði gaman af þessu fólki og á glæstar minn­ingar frá þorra­blótum og rétt­unum og öllum þessum atburðum. Svo kom þetta fólk á Brúna­staði þegar ég var drengur að alast upp til að hitta odd­vita sinn og alþing­is­mann.“

Þar sem tveir regndropar koma saman

Guðni var hálf­hrak­inn úr for­mennsku Fram­sókn­ar­flokks­ins á sínum tíma og hann hætti. Hann hefur samt sjaldan verið jafn­frægur eins og núna og er minnst á uppi­stand hans.

„Ég er ein­hver þjóð­ar­eign. Sumir stjórn­mála­menn hafa orðið þjóð­ar­eign. Og ég þakka fyrir það að ég er svona þjóð­ar­eign.

Ég er þó fyrst og fremst ræðu­maður.

Ég næ hljóði í sal. Ég fæ athygli.“

Það er gríð­ar­lega mikið af fólki út um allt Ísland sem hermir eftir mér.

Talið berst að eft­ir­hermum sem hafa hermt eftir honum. „Stjórn­mála­menn voru oft og tíðum sárir ef það var ekki hermt eftir þeim. Ég varð snemma frægur ef því að menn fóru að herma eftir mér; ná rödd minni. Það er gríð­ar­lega mikið af fólki út um allt Ísland sem hermir eftir mér.“

Guðna hefur verið strítt og hann þolir það vel. Þar má nefna hina frægu setn­ingu „staður kon­unnar er á bak við elda­vél­ina“.

„Þetta er ein af hinum frægu setn­ingum. Það voru alls konar svona setn­ingar smíð­aðar upp í mig og fólk trúði því að ég hafi sagt þetta. Og ég er löngu hættur að þræta fyrir það. Það er alls konar svona eins og „þar sem tveir regn­dropar koma saman – þar er rign­ing“. Þetta var mjög algengt á þessum ráð­herra­árum mínum.“

Þar sem tveir menn koma saman þar er podcast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum