Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Jóhann Valgeir er Austfirðingur ársins: „Núverandi hús hefur þurft mikla ást en ekki fengið hana“

Jóhann Valgeir er Austfirðingur ársins: „Núverandi hús hefur þurft mikla ást en ekki fengið hana“
Jóhann Valgeir Dav­íðs­son Mynd: Gunnar Gunnarsson

Jóhann Valgeir Dav­íðs­son, íþrótta­kenn­ari á Eski­firði er Aust­firð­ingur árs­ins 2022.

Aust­ur­frétt segir frá því að Jóhann Valgeir, hafi verið kos­inn Aust­firð­ingur árs­ins 2022 af les­endum mið­ils­ins en tit­il­inn hlýtur hann fyrir dugnað sinn við að benda á bágt ástand á íþrótta­hús­inu á Eski­firði.

„Það er mik­ill heiður að vera Aust­firð­ingur árs­ins. Sá hópur sem áður hefur verið val­inn er fjöl­breyttur og sýnir hvað vakið hefur mesta athygli ár hvert. Kannski man fólk vel eftir þessu máli hér því það kemur upp í lok árs og var heitt í bæj­ar­fé­lag­inu,“ segir Jóhann Valgeir í sam­tali við Aust­ur­frétt.

Barðist fyrir rannsókn á íþróttahúsinu

Und­an­farin ár hefur hann verði ötull við að vekja athygli á hræði­legu ástandi húss­ins en það hefur til að mynda lekið eftir stór­rign­ingar. Það var svo í haust að botn­inn tók þó úr þegar hann birti ljós­myndir í hóp Esk­firð­inga á Facebook en á þeim mátti sjá vatn vella út úr blöðrum sem mynd­ast höfðu í veggjum íþrótta­húss­ins. Vakti þetta það mikla athygli að Rík­is­sjón­varpið gerði frétt um málið og tók við­tal við Jóhann Valgeir.

Sjá einnig: Starfs­maður félags­mið­stöðvar í Fjarða­byggð sendur í leyfi nokkrum dögum eftir gagn­rýni á myglu

Eftir þetta fór að bera á áhyggjum bæj­ar­búa af myglu og var sett tals­verð pressa á Fjarð­ar­byggð að rann­saka málið. Það var svo gert og kom í ljós í byrjun jan­úar að myglu var sann­ar­lega að finna í hús­inu en það var tekið úr notkun fyrir ára­mót og er nú verið að skoða með fram­haldið.

„Fyrsta myndin sem ég set inn úr hús­inu er frá 2014. Fólki fannst hún hræði­leg en það gerð­ist lítið. Það var leki sem var lag­aður en þá fór að leka ann­ars staðar. Þakið var loðið, trú­lega myglað. Það var ekk­ert loft­ræsti­kerfi en nokkur ár eru síðan því var komið upp.

Lekinn hefur auk­ist síð­ustu ár. Í haust var hægt að nota þriðj­ung sal­ar­ins því það var allt á floti. Það er hund­leið­in­legt að vinna við slíkar aðstæður.

Þetta hljómar eins og nöldur á Facebook, sem það vissu­lega er að vissu leyti, en það breytir því ekki að sveit­ar­fé­lagið átti að vita um stöð­una. Ef ég hefði ekki verið byrj­aður að nöldra þá væri ekk­ert að ger­ast núna heldur málið í ein­hverri nefnd. Stundum þarf að grípa til örþrifa­ráða. Íþrótta­húsið er ekki vel nýtt af bæj­ar­búum, það er fyrst og fremst notað af skól­anum. Það er því kannski bara við kenn­ar­arnir, starfs­fólk húss­ins og stöku þjálf­ari sem vitum hversu slæmt ástandið var. Síðan fer fólk að hugsa til þess að barnið þess geti verið í mygl­uðu húsi og þá vaknar það. For­eldrar hafa kvartað yfir veik­indum sem hafa lag­ast við að barnið var tekið úr íþróttum. Ég get ekki sagt til um hvort það sé rétt, ég er ekki læknir. En maður hugsar líka um sjálfan sig, um hvort maður vilji starfa í mygl­uðu hús­næði. Þess vegna er gott að fá viss­una. Ef húsið er ekki myglað þá er það gott en ef svo er þá þarf að díla við það. En burt­séð frá því þá nennir eng­inn að vinna í mygl­uðu húsi,“ sagði Jóhann Valgeir.

Hitafundur á Eskifirði

Mikill hita­fundur var hald­inn fyrir tveimur vikum á Eski­firði en þar kröfð­ust íbúar nýs íþrótta­húss. Bæj­ar­full­trúar sögðu hins vegar að ekki væri til pen­ingur fyrir nýju húsi eins og er en mik­il­vægt væri að kom­ast að því hversu alvar­legt málið væri.

„Ég kom þessu bara af stað, nú hafa Íbúa­sam­tökin og fleira gott fólk tekið við bolt­anum. Það sást á fund­inum að þetta skiptir fólk máli. Það mætti margt fólk og það var reitt. Núver­andi hús hefur þurft mikla ást en ekki fengið hana. Íþrótta­húsin eru hverjum stað mik­il­væg. Á okkar hús vantar til dæmis stórar dyr. Við ætl­uðum eitt sinn inn með leik­tæki af bæj­ar­há­tíð en þau voru of stór. Með umbótum er hægt að nýta íþrótta­húsið betur. Ég er ánægður með að hreyf­ing sé komin á hlut­ina. Hvort nýtt hús rísi hér við skól­ann eða inni í landi (sam­kvæmt skipu­lagi á að reisa íþrótta­hús við hlið sund­laug­ar­innar í botni fjarð­ar­ins, um 1,5 km frá skól­anum) skal ég ekki segja til um. Ég skil hvort tveggja vel. Ég veit heldur ekki hvort það borgi sig að rífa niður í núver­andi húsi til að gera við það eða rústa því og byggja nýtt eða hvort hægt sé að stækka húsið þar sem það er nú. Það hlýtur að þurfa að meta á ein­hverjum tíma­punkti. Hvort það borgi sig verður fólkið sem til þess er kjörið að ákveða. Per­sónu­lega vil ég bara stærra hús og góða vinnu­að­stöðu, að við fáum hús sem bæj­ar­búar sætta sig við næstu 50 árin en ekki skíta­mix til að þagga niður í fólki. Það er ekki nóg að setja upp loft­ræsti­kerfi ef þakið heldur áfram að mygla,“ sagði Jóhann Valgeir við Aust­ur­frétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil