Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Starfsmaður félagsmiðstöðvar í Fjarðabyggð sendur í leyfi nokkrum dögum eftir gagnrýni á myglu

Starfsmaður félagsmiðstöðvar í Fjarðabyggð sendur í leyfi nokkrum dögum eftir gagnrýni á myglu
Eski­fjörður – Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint – Mynd: Fjarðarbyggð

Jóhann Valgeir Dav­íðs­son íþrótta­kenn­ari í Fjarða­byggð er afar ósáttur við vinnu­brögð starfs­manna Fjarða­byggðar í tengslum við alvar­legar ásak­anir á hendur honum.

Jóhann Valgeir starf­aði einnig í félags­mið­stöð­inni Knellan á Eski­firði en kvörtun barst Fjarða­byggð frá for­eldra eins barns en full­yrti for­eldrið að Jóhann Valgeir hefði sýnt krökkum Netflix-þátt­inn um raðmorð­ingj­ann Jeffrey Dahmer en þætt­irnir eru eðli máls­ins sam­kvæmt strang­lega bann­aðir innan 16 ára og van­virt börnin. Var honum fljót­lega sagt upp störfum á meðan á rann­sókn máls­ins stóð yfir. Gagn­rýnir Jóhann Valgeir verk­ferla mannauðs­stjóra sveit­ar­fé­lags­ins, sem og yfir­manna hans harð­lega í Facebook-færslu í dag.

Full­yrðir hann þar að krakk­arnir hefðu sjálf sett þátt­inn í gang án hans vit­undar og að hann hafi aldrei van­virt börnin. Segir hann í færsl­unni að málið hafi haft and­legar afleið­ingar fyrir sig enda um þungar ásak­anir að ræða. „Ég sé ekk­ert annað úr út þessu máli að þarna eru yfir­menn í stöðu Fjarða­byggðar að reyna að ná á mig höggi,“ skrifar hann meðal ann­ars í færsl­unni.

Nokkrum dögum áður en málið í Knell­unni kom upp, hafði Jóhann Valgeir kvartað í fjöl­miðlum vegna mögu­legrar myglu í íþrótta­hús­inu á Eski­firði þar sem hann kennir grunn­skóla­börnum, sem og annað sem þyrfti að laga enda húsið komið til ára sinna. Hafði hann áður vakið athygli á ástandi húss­ins en í færslu frá árinu 2014 gagn­rýndi hann hús­næðið og birt ljós­myndir af skemmdum sem þar var að finna. Skal þó taka fram að ekk­ert bendir til þess sér­stak­lega að málin tvö teng­ist.

Færsla Jóhanns Valgeirs er hér í heild sinni:

„Sælir for­eldrar barna í Knell­unni Eski­firði.

Ég sendi hér bréf til að útskýra- þar sem ég fæ fleirri og fleirri spurn­ingar frá for­eldum sem ég get svarað en einnig fleirri og fleirri spurn­ingar frá börnum sem ég vill ekki /get ekki svara á heið­ar­legan máta.Eins hafa börn okkar fengið ótelj­andi spurn­ingar sem þau geta ekki svarað og eiga ekki að þurfa að svara.Með þessu bréfi vill ég koma því frá mér af hverju ég starfa ekki í félags­mið­stöð­inni á Eski­firði lengur, sem mér finnst miður- því ég hefði svo sanna­lega vilja vera þar áfram.Mál kom upp- það barst kvörtun sem er allt að hinu góða.Verk­ferlar hjá mannauðs­stjóra og yfir­mönnum mínum tvem í félags­mið­stöð­inni voru eft­ir­far­andi:– Töluðu ekki við mig vegna kvört­unar.– Sendu mér bréf ,í því stóð að til skoð­unar væri að segja mér taf­ar­laust upp störfum vegna brots í starfi og á starfs­reglum.– Vísuðu mer frá störfum á meðan á rann­sókn máls var í gangi.– Settu mál í form­lega rann­sókn byggða á einni kvörtun for­eldris.– Rannsókn unnu þær unnu sjálfar.– Rannsókn sett í gang án þess að hafa sam­ráð við bæj­ar­stjóra.– Rannsókn sett í gang byggða á einni kvörtun- án þess að fá tvær hliðar eða upp­lýs­ingar.Kvörtun­inn eða ásök­un­inn var í minn garð þess eðlis að ég hafi sýnt þætt­ina Monster- The Jeffery Dahmer Story sem eru bann­aðir innan 16.ára og ég hafi van­virt börn­inn í knell­unni 14.okt­o­ber frá kl 17-19.Rann­sókn­ina ákveða þær að setja af stað án þess að vinna neina for­vinnu- án þess að tala við mig sem starf­mann sem var á svæð­inu, án þess að vita hvort þetta væri bara rétt eða ekki.Fyrir það fyrsta eru þessar ásak­anir mjög alvar­legar í minn garð og eru rangar báðar.Einnig hafði ég á þessum tíma alltaf verið einn á vakt en það eiga að vera tveir starfs­menn.Ég hvorki sýndi þessa mynd né van­virti börnin og sagði ég það á fundi sem ég var boð­aður á með þeim 24.okt.Á fundi sem ég var boð­aður á 24.okt tjáði ég þeim að mér þætti þetta alvar­lega ásak­anir og þær væri rangar. Þrátt fyrir það að ég hafi tjáð á fundi að ég hafi ekki sýnt þætt­ina og ekki van­virt börn­inn, þrátt fyrir pósta sem bár­ust frá for­eldum barna sem settu mynd­ina á án minnar vit­undar, þrátt fyrir fund með kvör­un­ar­að­ila bar það í ljós að þessar ásk­anir voru rangar, þá hélt ég áfram að fá pósta þess eðlis frá yfir­mönnum mínum að ég hafi sýnt mynd­ina og hafi van­virt börn­inn.Svo margir punktar í mál­inu sem ég get ekki talið upp hér, en í heild­ina er það ófag­lega og óheið­ar­lega unnið. Þær höfðu ekk­ert í hönd­unum til að setja þetta mál í það ferli sem þær gerðu.Slíkar ásak­anir hafa haft and­legar afleið­ingar fyrir mig ég sé ég mér ekki fært um að starfa undir starfs­fólki sem kemur svona fram og finnst mér galið að yfir­menn í störfum hjá sveita­fé­la­inu hafi heim­ildir til að vinna svona líkt og þær gera.Ég sé ekk­ert annað úr út þessu máli að þarna eru yfir­menn í stöðu Fjarða­byggðar að reyna að ná á mig höggi.Upphaf máls er þegar póstur barst til mín 20.okt- en í dag 1.Des eða 6 vikum síðar er ég ekki enn búin að fá lokun á þessu máli, þar sem þær neita af afhenda mér rann­sókn­ar­gögn sem ég veit að eru til, þrátt fyrir að ég hafi ítrekað að fá þau. Einungis hef ég fengið sem þær telja til rann­sókn­ar­gagna fund­ar­gerð með kvört­un­ar­að­ila, ekki einu sinni strokar út nafn kvört­un­ar­að­ila.Vill taka það fram að ég hef ekk­ert út á það að setja að við sem for­eldrar kvörtum og tel ég einmitt að það er að hinu góða í því skyni að þá er hægt að taka sam­talið, laga eða gera betur og það er eng­inn það heil­agur að ekki megi benda á eitt­hvað eða taka upp síman og tala.

En vildi bara koma þessu frá mér í þeirri von um að þurfa ekki að fara yfir þetta nokkru sinnum á dag.“

Mannlíf heyrði í Þórði Vilberg Guð­munds­syni, For­stöðu­maður stjórn­sýslu- og upp­lýs­inga­mála hjá Fjarða­byggð en hann sagði blaða­manni að hann gæti ekki tjáð sig um ein­staka mál Fjarða­byggðar en sagði að almennt í slíkum málum væri farið eftir þeim lögum og reglum sem gilda og þeim verk­ferlum sem sveit­ar­fé­lagið hefur sett sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil