Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Biden biðlar til mótmælenda eftir að lögreglumenn drápu svartan mann: „Hann var mennskt piñata“

Biden biðlar til mótmælenda eftir að lögreglumenn drápu svartan mann: „Hann var mennskt piñata“
Blessuð sé minn­ing hans Mynd: Trausti Hafsteinsson

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti hvetur mót­mæl­endur í Tennessee til að halda frið­inn áfram en í dag stendur til að birta hrotta­legt mynd­band opin­ber­lega, þar sem fimm lög­reglu­þjónar sjást berja mann til bana, eftir umferða­stopp.

Myndband frá lík­ams­mynda­vél (e. bodycam) sem sýnir and­lát hins 29 ára Tyre Nichols, verður að sögn BBC birt opin­ber­lega í dag en fjöl­skylda hans og lög­fræð­ingar hennar, sem hafa séð mynd­bandið, segja það sýna Nichols bar­inn til bana af lög­reglu­mönnum.

Lög­reglu­menn­irnir fimm hafa allir verið reknir og verða kærðir fyrir morð en Nichols lést nokkrum dögum eftir að hafa verið stöðv­aður við umferða­eft­ir­lit 7. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Memphis-búar eru sagðir brjál­aðir yfir mál­inu og hefur lög­reglan aukið eft­ir­lit.

Mennskt piñata

„Mér er illt yfir því sem ég sá,“ sagði for­stjóri rann­sókn­ar­lög­reglu Tennessee, David Rausch í gær eftir að hafa horft á mynd­skeiðið en hann sagði bar­smíðar lög­reglu­mann­anna „algjör­lega skelfi­legar“.

Nichols, sem er dökkur á hör­und, var stopp­aður af fimm lög­reglu­mönnum, sem einnig eru dökkir, á leið sinni heim eftir að hafa tekið ljós­myndir af sól­setr­inu í lysti­garði í nágrenn­inu, að sögn lög­manns fjöl­skyldu hans. Lög­reglan segir að hann hafi verið stöðv­aður vegna gruns um gáleys­is­legan akstur. Samkvæmt yfir­völdum byrj­uðu átökin er Nichols reyndi að flýja á fótum af vett­vangi þegar lög­reglan nálg­að­ist bif­reið hans. Næstu átök hafi svo orðið þegar lög­reglu­menn­irnir reyndu að hand­járna hann. Síðar kvart­aði Nichols yfir önd­un­ar­erf­ið­leikum og var fluttur á sjúkra­hús, að sögn lög­regl­unar en þar var hann sagður í lífs­hættu­legu ástandi.

Lögmaður fjöl­skyldu Nichols segir að mynd­skeið frá lík­ams­mynda­vél lög­regl­unnar sýni að Nichols hafi verið spreyjaður með pip­ar­spreyi, stuð­aður með raf­byssu, honum haldið og í hann sparkað. Líkti hann atvik­inu við það sem Rodney King mátti þola af hendi lög­regl­unnar í Los Angeles fyrir meira en 30 árum.

Allir fimm lög­reglu­menn­irnir eru kærðir fyrir morð af annarri gráðu, grófa lík­ams­árás, mann­rán, brot í opin­beru starfi og kúgun í opin­beru starfi. Þeir Tadarrius Bean, Dem­etrius Haley, Desmond Mills Jr, Emmitt Martin III og Justin Smith voru allir sendir í fang­elsi í gær en þeir byrj­uðu allir hjá Mempis lög­regl­unni síð­ustu sex árin en voru reknir í síð­ustu viku.

Frá vinstri: Dem­etrius Haley, Desmond Mills, Jr, Emmitt Martin III, Justin Smith and Tadarrius Bean

Biden biðlar

Banda­ríkja­for­seti sendi frá sér yfir­lýs­ingu í gær þar sem hann bað fólk um að halda ró sinni en von er á að yfir­völd birti mynd­skeiðið í dag. „Ég bið líkt og fjöl­skyld Tyre, um frið­sam­leg mót­mæli. Reið er skilj­an­leg en ofbeldi er aldrei ósætt­an­legt. “

Lög­reglu­stjóri Memphis lögegl­unnar, Cerelyn Davis, sem er fyrsta dökka konan til að gegna þeirri stöðu í borg­inni, kall­aði einnig eftir frið­sam­legum mót­mælum gegn því sem hún kall­aði „vöntun á mennsku gagn­vart annarri mann­eskju.“

Fjöl­skylda Nichols og lög­fræði­teymi hennar hefur fengið að líta á mynd­skeiðið af hand­tök­unni fyrr í vik­unni. „Hann var mennskt piñata,“ sagði Antonio Romanucci lög­maður um inni­haldið. „Þetta voru óhindr­aðar, gengd­ar­lausar og stans­lausar bar­smíðar  sem ungi mað­ur­inn þurfti að þola í þrjár mín­útur.“

Á blaða­manna­fundi í gær sögðu lög­menn tveggja af þeim fimm sem kærðir voru fyrir mann­drápið, ætli að berj­ast gegn kærunni. „Enginn þarna vildi Tyre Nichols dauðan þessa nótt,“ sagði lög­fræð­ingur ann­ars þeirra.

Góður strákur

Fjöl­skylda Nichols mun minn­ast hans sem „góðs stráks“ sem elskaði ljós­myndun og hjóla­bretti. Hinn eins barna faðir vann hjá FedEx-flutn­inga­fyr­ir­tæk­inu en hann þjáð­ist af Crohn´s sjúk­dómnum og hafði orðið fyrir miklu þyngd­ar­tapi að sögn ætt­ingja hans.

Mann­rétt­inda­fröm­uð­ur­inn, Séra Al Sharpton sagði BBC a hinn meinti glæpur sé sér­stak­lega sár vegna kyn­þáttar lög­reglu­mann­anna. „Við börð­umst fyrir því að fá svart fólk í lög­regl­una,“ sagði hann. „Það að þeir skuli brjóta svo gróf­lega af sér er hrikla­legra en ég get útskýrt fyrir þér. Ég trúi ekki að þessi fimm svörtu lög­reglu­menn hefðu gert þetta ef um ungan hvítan mann væri að ræða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco