Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Halldór Benjamín Þorbergsson er „fulltrúi 5 til 8 ríkustu fjölskyldna á Íslandi“

Halldór Benjamín Þorbergsson er „fulltrúi 5 til 8 ríkustu fjölskyldna á Íslandi“
Myndin er sam­sett.

Hlað­varpið Ein pæl­ing fékk Gunnar Smára Egilsson í við­tal þar sem margt for­vitni­legt kemur fram, eins og búast má við úr þeim ranni.

Gunnar Smári Egilsson. Mynd / Sig­tryggur Ari Jóhanns­son.

Gunnar Smári segir við­horf íslenskra atvinnu­rek­enda verra en þræla­hald­ara og að við­horf Samtaka atvinnu­lífs­ins til lág­launa­fólks sé lak­ara heldur en við­horf Rómverja forðum til þræla sinna.

Róm­verjar fóru ekki vel með þræla sína.

Gunnar Smári segir að áður hefðu verið „lög um að atvinnu­rek­and­inn þyrfti að tryggja end­ur­nýjun vinnu­aflsins. Það mætti ekki eiga þræl og hafa hann úti þannig að hann veikt­ist og dræp­ist. Þetta sið­ferð­is­við­mið sem að þræla­hald­arar höfðu virð­ist bara vera fallið í SA.“

Þá gagn­rýnir Gunnar Smári fjöl­miðla; segir að í stjórn­mála­þátt­unum sé saman komið „eitt­hvað elítu­lið, ekki bara í Silfrinu heldur einnig í Viku­lok­unum, kallað inn í frétta­tíma, farið á stað­inn og talað við hátekju­fólk sem hefur rosa­lega þungar áhyggjur af því að verka­mað­ur­inn eigi fyrir mat út mán­uð­inn.

Þetta fólk fær bara æðis­legt plat­form í íslensku sam­fé­lagi og við látum eins og að þetta sé sið­legt. Ef ég væri frétta­stjóri Rík­is­út­varps­ins, þá myndi ég segja að við getum talað við Halldór Benjamín svona þriðja hvert ár. Af því að Sólveig Anna er full­trúi 21.000 manna og Halldór Benjamín er í ólýð­ræð­is­legum sam­tökum sem heita Samtök atvinnu­lífs­ins þar sem fyr­ir­tæki sem að borga mest til félags­ins hafa hæstan atkvæða­rétt. Þannig hann er raun­veru­lega full­trúi svona 5-8 rík­ustu fjöl­skyldna á Íslandi.“

Halldór Benjamín.

Bætir við:

„Í alvöru, afhverju erum við með þessa svið­setn­ingu, eins og að Halldór Benjamín sé einn hluti af sam­fé­lag­inu og Sólveig Anna annar hluti af sam­fé­lag­inu. Halldór Benjamín er svo lít­ill minni­hluti, það er svo frá­leitt að færa þessu fólki völd í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi þar sem allur almenn­ingur á að hafa jafnan aðgang.“

Sólveig Anna Jóns­dóttir.

Spurður hvort hann sé að meina að Samtök Atvinnu­lífs­ins komi verr fram við sitt vinnu­afl heldur en Róm­verjar við sína þræla segir Gunnar Smári:

„Hefurðu séð tölur um örorku á seinni tíma starfsæv­innar? Hefurðu séð tölur um hversu stór hluti er bara að gef­ast upp útaf því að lík­am­inn brestur útaf vinnu­þrælkun? Og eigum við bara að láta eins og að þetta sé ekki svona? Það er bara stað­reynd að í íslensku sam­fé­lagi er fólk, sem Halldór Benjamín er að reka áróður fyrir, sem gengur á þrek og heilsu fólks­ins sem að vinnur þar. Fólks sem hefur ekki í nein hús að venda. Það verður að eiga í sig og á. Og verður því að gang­ast undir hinn vonda þræla­sala sem lætur það ekki hafa nóg að borða og né hús­næði. Þetta er bara stað­reynd í íslensku sam­fé­lagi. Og ég skil ekki af hverju við látum eins og að þetta sé ekki svona.“

Gunnar Smári segir að end­ingu að þessum raun­veru­leika sé haldið fyrir utan hina almenna umræðu í sam­fé­lag­inu:

„Þannig að við göngum á þræl­ana. Brjótum þau niður þannig að þau geta ekki verið þrælar eftir fimm­tugt, en það má ekki ræða þetta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum