Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sigríður nýtir allan mat:„Baka úr mjólkurvörum sem eru að renna út á tíma“

Sigríður nýtir allan mat:„Baka úr mjólkurvörum sem eru að renna út á tíma“
Sigríður Ingv­ars­dóttir. Mynd úr einka­safni.

Neytandi vik­unnar er Sigríður Ingv­ars­dóttir, bæj­ar­stjóri Fjalla­byggðar og rit­stjóri Hús­freyj­unnar. Sigríður var áður for­stjóri Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands. Hún er gift Daníel Gunn­ars­syni, lyfja­fræð­ingi hjá Vistor. Samtals eiga þau sex börn og ell­efu barna­börn, sem sagt alvöru ríki­dæmi. Sigríður býr á Siglu­firði og býr við þann góða kost, að eigin sögn, að þar er ein besta fisk­búð lands­ins og ein­stak­lega gott bak­arí.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég er dug­leg að kaupa það sem er á til­boði hverju sinni. Eins kaupi ég 10 kílóa fiskiöskjur í Fiskbúð Fjalla­byggðar, með sjó­frystum þorsk­flökum. En við í fjöl­skyld­unni erum mjög mikið fyrir fisk. En helsti sparn­að­ur­inn hjá mér varð­andi mat felst í því að henda aldrei mat og nýta alla afganga. Mér finnst skelfi­legt að hugsa til allrar þeirrar mat­ar­só­unar sem á sér stað, hér á landi og ann­ars staðar, því þetta þarf alls ekk­ert að vera svona. Það er hægt að nýta afganga á svo marg­vís­legan hátt og gera girni­lega rétti úr þeim. Til dæmis ef rjómi er að renna út á tíma hjá mér, þá frysti ég hann. Alltaf gott að eiga rjóma í frysti til dæmis til að bæta út í súpur og sósur. Ef mjólk­ur­vörur eru að renna út á tíma hjá mér þá baka ég úr þeim. Ef ég er með alla fjöl­skyld­una í mat og það er mik­ill afgangur, þá sendi ég liðið mitt heim með afganga.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Já, ég end­ur­nýti suma hluti. Ég nota t.d. gler­krukkur undir sultur og hlaup sem ég útbý. Eins nota ég gömul hand­klæði og visku­stykki í tuskur og bón­klúta. Ég er mark­visst farin að kaupa frekar vörur sem er ekki pakkað í miklar umbúðir. Til dæmis kaupi ég frekar ávexti og græn­meti sem er ekki hlaðið umbúðum.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Ég hef nota­gildið í huga. Ég kaupi ekki bara eitt­hvað, heldur það sem virki­lega er að nýt­ast. Þegar gjafa­kaup eru ann­ars vegar erum við hjónin með­vituð um að reyna að kaupa gjafir sem við­kom­andi þarf á að halda. Við erum dug­leg að hafa sam­band við börn og barna­börn og athuga hvort eitt­hvað vanti, s.s. fatnað í leik­skól­ann, eitt­hvað til heim­il­is­ins o.s.frv. Eins erum við dug­leg að gefa góðar sam­veru­stundir eða upp­lifun, þ.e. eitt­hvað sem við­kom­andi getur notið, í stað þess að gefa ein­hverja hluti.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Ég elska ferska ávexti og ber, ferskar krydd­jurtir og gott græn­meti. Því á ég mjög erfitt með að neita mér um að kaupa þessar vörur. Því má segja að ég bruðli svo­lítið þegar ég kem í ávaxta- og græn­met­is­deildir í versl­unum. En á móti kemur, að ég nýti allar þessar vörur upp til agna. Þetta eru hollar og góðar vörur og því finnst mér í lagi að gera vel mig og fjöl­skyld­una á þessu sviði. Við kaup á þessum vörum reyni ég alltaf að kaupa frekar inn­lent, ef það er í boði, heldur en inn­flutt.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Umhverf­is­mál skipta mig miklu máli og sem betur fer er almenn­ingur far­inn að veita umhverf­is­málum mun meiri athygli en áður. Við eigum að hafa áherslur
hringrás­ar­hag­kerf­is­ins að leið­ar­ljósi, þ.e. að draga úr óhóf­legri neyslu, auka líf­tíma auð­linda jarðar og koma í veg fyrir að efni og hlutir hverfi úr hag­kerf­inu sem úrgangur.
Ég ákvað þegar ég flutti norður að nota bíl­inn minn sem allra minnst. Hér í Fjalla­byggð búum við við þau for­rétt­indi að maður kemst fót­gang­andi á alla staði innan byggða­kjarn­anna Ólafs­fjarðar og Siglu­fjarðar. Þegar maður leggur bílnum og fer allra sinna ferða gang­andi, þá er það allt í senn; sparn­aður varð­andi elds­neytis­kaup, gott fyrir umhverfið, þar sem ekki er verið að menga, og síð­ast en ekki síst góð og ókeypis lík­ams­rækt, því ekki er hægt að byrja né enda vinnu­dag­inn á betri hátt en með hressandi göngu­ferð í öllum veðrum.

Bestu sparn­að­ar­ráð sem ég get gefið er að nota aldrei yfir­drátt og taka helst ekki lán og ALDREI að taka smá­lán. Auðvitað kemst fólk varla hjá því að taka hús­næð­is­lán, en það er svo ofboðs­lega dýrt að skulda pen­inga. Því er besta sparn­að­ar­ráðið sem ég get gefið, að safna fyrir því sem á að kaupa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum