Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Karl Ágúst greindist með heilaæxli: „Það er breytt starfsemi heilans sem háir mér“

Karl Ágúst greindist með heilaæxli: „Það er breytt starfsemi heilans sem háir mér“
Karl Ágúst Úlfsson.

Karl Ágúst Úlfsson hefur nú greinst með heila­æxli; hann er núver­andi for­maður Rit­höf­unda­sam­bands Íslands.

Hefur hann vegna þessa dregið sig í hlé frá þeim störfum af heilsu­fars­á­stæðum, en það er DV sem greindi fyrst frá.

Karl Ágúst birti til­kynn­ingu um málið í Facebook-hópi félaga í Rit­höf­unda­sam­bandi Íslands. Í færslu Karls Ágústs kemur fram að hann greind­ist með æxlið fyrir þremur mán­uðum síðan og reynd­ist það vera góð­kynja; var það skorið burt í aðgerð sem heppn­að­ist afar vel.

Útlitið hjá Karli Ágústi er því gott; samt er langt þangað til hann hefur end­ur­heimt fyrri styrk.

„Kæru félagar Á aðal­fundi RSÍ á síð­asta ári var ég end­ur­kjör­inn for­maður til tveggja ára. Í ljósi þess reikn­aði ég með að gegna því starfi í sex ár sam­an­lagt, eða frá 2018 til 2024. En ekki er fram­tíð manns alltaf fyr­ir­sjá­an­leg og nú hefur komið í ljós að svo muni ekki verða.

Það eru heilsu­fars­leg skakka­föll sem valda því. Fyrir um það bil þremur mán­uðum var ég greindur með heila­æxli. Það reynd­ist vera góð­kynja, ég var snar­lega skor­inn og æxlið fjar­lægt. Aðgerðin heppn­að­ist vel, en ég á þrátt fyrir það langt í land með að stunda þau störf sem ég hafði tekið að mér.

Eitt af þeim er for­mennska RSÍ.

Áhrif skurð­að­gerðar á heila manns geta verið mikil og erfið viður­eignar. Aðgerðin dró stór­lega úr lík­am­legri getu minni, en ég hef náð að end­ur­heimta hluta hennar með sjúkra­þjálfun.

Það er þó einkum og sér í lagi breytt starf­semi heil­ans sem háir mér og á að öllum lík­indum eftir að skila sér til baka á löngu tíma­bili. Það hefur kveikt hjá mér alvar­legan efa á að ég búi nú um all­nokk­urt skeið yfir and­legri og vits­muna­legri getu sem mér þykir nauð­syn­leg til að sinna for­mennsku sam­bands­ins jafn vel og æski­legt er. Af þeirri ástæðu óska ég eftir að stíga út úr starfi for­manns RSÍ. Ég mun sem sagt ekki gegna emb­ætt­inu fram að aðal­fundi árs­ins 2024.

Margrét Tryggva­dóttir vara­for­maður mun gegna skyldum for­manns þangað til annað verður ákveðið.

Mér þykir afar vænt um Rit­höf­unda­sam­band Íslands og hef tekið að mér marg­vís­leg verk­efni fyrir það á þeim fjöru­tíu árum sem liðin eru frá því ég gerð­ist þar félagi. Ég hef haft mikla ánægju af starfi sem for­maður og þykir því býsna sárt að kveðja það fyrr en ég ætl­aði.

Ég tel það þó rétta ákvörðun og óska eftir að ein­hver taki við kefl­inu sem ræður við það betur en ég um þessar mundir. Loks vil ég þakka það traust sem mér hefur verið sýnt og gott sam­starf við annað stjórn­ar­fólk, samn­inga­nefndir og alla þá sem tekið hafa að sér að þjóna hags­munum rit­höf­unda á öllum sviðum. Bestu kveðjur til ykkar allra Karl Ágúst Úlfsson.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum