Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Anna minnist fyrstu daga faraldursins á Tenerife: „Þetta voru æsilegir dagar“

Anna minnist fyrstu daga faraldursins á Tenerife: „Þetta voru æsilegir dagar“
Anna Krist­jáns.

Anna Krist­jáns­dóttir minn­ist þess er hún fest­ist næstum því á Íslandi vegna útgöngu­banns vegna Covid-far­ald­urs­ins fyrir þremur árum.

Hin bráð­fyndna Anna Krist­jáns­dóttir skrifar dag­lega dag­bók­ar­færslu og birtir á Facebook við fádæma vin­sældir les­enda en á þessu byrj­aði hún er hún flutti til Tenerife fyrir þremur árum. Í nýj­ustu færsl­unni rifjar hún meðal ann­ars upp mars­mánuð fyrir þremur árum er Covid-far­ald­ur­inn var far­inn að láta á sér kræla svo tekið væri eftir. Hafði hún átt pantað flug til Íslands en ákvað að fara ekki. Sem var senni­lega fyrir bestu því lík­leg­ast hefði hún orðið föst á Íslandi en flug­inu til baka var aflýst. Við­ur­kennir hún að þó hún hafi verið óhrædd hafi hún verið með smá kvíða­hnút í mag­anum. Hér fyrir neðan má lesa færsl­una í heild sinni:

„Dagur 1308 – Enn um sum­arið.

Ég skrapp á Klaust­ur­bar í gær, enda pönnu­köku­dagur. Abbadísin hún Herdís hund­skamm­aði mig fyrir að segja að sum­arið væri komið. Það er rétt komið vor og varla meira en það sagði hún enda margir kaldir dagar framundan. Ég skamm­ast mín alveg oní tær og iðr­ast orða minna. Það breytir ekki því að 26. mars næst­kom­andi verður klukk­unni flýtt og þá verður sum­ar­tími og við getum byrjað að brosa í átt að sól­inni og sumr­inu.Sævar ábóti söng fyrir mig og þá lagði ég á flótta, enda sá ég fram að skíttap­aðan leik í hand­bolta og vildi vera eins fjarri og mögu­legt var til að sleppa við tára­flóð Íslend­ing­anna er leik­ur­inn tap­að­ist. Jæja, ýmis­legt fór öðru­vísi en ætlað var. Til ham­ingju Íslend­ingar.Í dag er sá þrett­ándi, reyndar mánu­dagur (eitt­hvað annað en föstu­dag­ur­inn þrett­ándi sem var tvisvar í jan­úar) og í hug­ann koma minn­ingar frá því fyrir þremur árum og smitum vegna Cóvið fór snar­fjölg­andi á Spáni sem og hér og rætt um það í alvöru að loka land­inu og setja á útgöngu­bann. Á þessum tíma átti ég pantað far til Íslands, hafði ætlað að skreppa þangað í fáeina daga, en sá fram á að ef ég færi, myndi ég þurfa að eyða öllum tím­anum á Íslandi í sótt­kví og ég hætti við ferð­ina, enda ljóst að ef ég hefði farið, hefði ég ekki kom­ist til baka eftir að flug­inu til baka var aflýst. Þetta voru æsi­legir dagar og eng­inn vissi hvað fram­tíðin bæri í brjósti sér, kjöt­kveðju­há­tíð­inni í Los Cristianos aflýst og eng­inn vissi hve veiran væri alvar­leg, hvort þetta þýddi jafn­vel enda­lok mann­kyns og fyrstu ein­stak­ling­arnir voru byrj­aðir að deyja.Ég var samt óhrædd þó kannski með örlít­inn kvíða­hnút í mag­anum. Ég var jú búin að lifa líf­inu, með fjöl­breytta lífs­reynslu að baki, en sá jafn­framt fram á að ef að útgöngu­bann brysti á, gæti ég bætt slíku við afreka­skrána á efsta degi og ég ætl­aði sko ekki að missa af því.Í dag er ég reynsl­unni rík­ari.—–Ég set inn færslu dags­ins dálítið snemma og til­kynni hér með að ég verð bíl­laus næstu tvo dag­ana hið minnsta. Hún Mjall­hvít mín er að fara í dek­ur­með­ferð sem endar með árlegri+skoðun. Ég er viss um að Höski vinur minn og Maggi mágur verða ánægðir með þetta, enda gamlir skoð­un­ar­menn hjá Frum­herja. Reglunni skal haldið áfram þótt búið sé í öðru landi, að láta skoða bíl­inn á réttum tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu