Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kristín ráðin rektor Listaháskóla Íslands: „Mikill fengur”

Kristín ráðin rektor Listaháskóla Íslands: „Mikill fengur”
Kristín Eysteins­dóttir.

Kristín Eysteins­dóttir hefur verið ráðin nýr rektor Lista­há­skóla Íslands frá og með 1. ágúst næst­kom­andi.

Hún tekur við kefl­inu af Fríðu Björk Ingv­ars­dóttur sem lýkur sinni 10 ára starfs­festu við skól­ann í ár.

Kristín er ráðin til fimm ára með mögu­leika á end­ur­ráðn­ingu til ann­arra fimm ára.

Alls sóttu tutt­ugu um stöð­una.

Að sögn Magnúsar Ragn­ars­sonar, stjórn­ar­for­manns Lista­há­skóla Íslands er það stjórn mikið ánægju­efni að kynna Kristínu sem kom­andi leið­toga háskól­ans:

„Það er Lista­há­skól­anum mik­ill fengur að hafa fengið svo öfl­ugan stjórn­anda og góðan lista­mann til að stýra næsta áfanga í starfi skól­ans. Stjórn skól­ans býður Kristínu vel­komna til starfa í haust og væntir mik­ils af sam­starf­inu næstu ár.”

Kristín Eysteins­dóttir lauk meistara­gráðu í leik­stjórn frá Goldsmiths, Uni­versity of London árið 2007 en áður hafði hún lokið BA námi í drama­t­úrgíu frá Árós­ar­há­skóla árið 2002.

Hún hefur leik­stýrt um 20 sýn­ingum í atvinnu­leik­húsum og var fast­ráð­inn leik­stjóri við Borg­ar­leik­húsið frá 2008 – 2014. Árið 2008 var hún valin leik­stjóri árs­ins á Grímunni fyrir sýn­ing­una Sá ljóti og var einnig til­nefnd til til sömu verð­launa árin 2010, 2012 og 2013.

Kristín hefur jafn­framt leik­stýrt við Útvarps­leik­húsið og starfað sem drama­t­úrg við fjölda sýn­inga og hefur gegnt fjöl­mörgum ábyrgð­ar­stöðum með stjórn­ar­setu og for­mennsku í ýmsum stjórnum og nefndum sem tengj­ast leik­list, menntun og útgáfu.

Kristín var ráðin leik­hús­stjóri Borg­ar­leik­húss­ins árið 2014 og gegndi þeirri stöðu til árs­ins 2020.

Undir hennar stjórn náði Borg­ar­leik­húsið eft­ir­tekt­ar­verðum árangri bæði list­rænt og rekstr­ar­lega, aðsókn­ar­met í leik­húsið voru slegin og leik­húsið hlaut Grímuna, íslensku sviðs­lista­verð­launin, fyrir sýn­ingu árs­ins öll þau ár sem hún var leik­hús­stjóri.

Þá lauk hún nýverið við fyrstu stutt­mynd sína og hefur síð­ast­liðin tvö ár verið að und­ir­búa sína fyrstu kvik­mynd í fullri lengd sem er komin vel á veg í þróun.

Kristín hefur starfað sem pró­fessor og fag­stjóri við sviðs­lista­deild Lista­há­skóla Íslands síðan í ágúst 2022. Í til­efni af þessum tíma­mótum segir Kristín:

„Ég trúi því að listir og skap­andi hugsun gegni lyk­il­hlut­verki í við­fangs­efnum fram­tíð­ar­innar. Við Lista­há­skóla Íslands mót­ast fram­tíðin og það eru for­rétt­indi að fá að leiða þessa mik­il­vægu mennta- og menn­ing­ar­stofnun næstu árin. Ég hlakka mikið til að starfa með nem­endum skól­ans og þeim öfl­uga hópi sem þar starfar.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum