Glímugoðsögnin Billy Graham er látin. Var hann 79 ára gamall.
Andlátsfréttin barst frá annarri goðsögn úr WWE-glímuheiminum, Ric Flair sem skrifaði minningarorð um hina föllnu stjörnu á Twitter. „Stórstjarnan Billy Graham hefur yfirgefið okkur. TAKK FYRIR ÖLL ÁHRIFIN SEM ÞÚ ÁTTIR á feril minn!“
Graham, sem hét réttu nafni Eldridge Wayne Coleman, lést í gær þegar slökkt var á öndunarvél hans, samkvæmt TMZ. Fjölskylda kappans sagði frá því á mánudaginn að hann hefði verið lagður inn á spítala og á gjörgæsludeild síðustu vikur þar sem hann barðist við ónafngreind veikindi. Eiginkona Grahams og dóttir voru við hlið hans er hann lést.
Áður en Graham fann köllun sína var hann líkamsræktarfrömuður og lék í Kanadísku ruðningsdeildinni, áður en hann byrjaði feril sinn hjá amerískur glímu samtökunum á sjöunda áratug síðustu aldar. Árið 1975 steig hann fyrst í hringinn hjá WWE-deildinni sem þá kallaðir Word Wrestling Federation.
Ric Flair er aðeins einn af fjölmörgum glímuköppum sem Graham leiðbeindi en nefna má til dæmis stjörnur á borð við Hulk Hogan, Jesse Ventura, Scott Steiner og fjöldi annarra. Graham keppi í síðasta skiptið í WWE-hringnum árið 1987 en árið 2004 var hann innlimaður í Frægðarhöll WWE.
Síðustu tvo áratugi glímdi Graham við fjölmarga heilsukvilla, meðal annar lifrarbilun, hjartabilun, sykursýki, sýkingu í eyrum og höfuðkúpu ásamt fjöldi annarra kvilla sem að lokum olli síðustu spítalainnlögninni. Að öðru leiti var hann heilsuhraustur.































Athugasemdir