Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ísraelskir öfgaþjóðernirsinnar réðust að fjölmiðlum á Fánadeginum: „Dauði til Araba“

Ísraelskir öfgaþjóðernirsinnar réðust að fjölmiðlum á Fánadeginum: „Dauði til Araba“
Þessi palest­ínska frétta­kona leit­aði skjóls bak­við tré­hurð.

Þúsundir ísra­el­skra þjóð­ern­is­sinna hafa mar­serað í gegnum múslim­ska hverfið í gömlu borg­inni í Jer­úsalem, með ofbeldi sem beinst hefur gegn fjöl­miðlum sem fjalla um við­burð­inn.

Fána­gangan er partur af Jer­úsalem-deg­inum í Ísrael en þá er því fagnað er ísra­els­menn náðu austur hluta borg­ar­innar á sitt vald í stríð­inu 1967.

Ráðist að fjölmiðlum

BBC segir að hópur göngu­fólks hafi kastað grjóti, spítum og flöskum að palest­ínskum og erlendu fjöl­miðla­fólkið við inn­gang Damascus hliðs­ins. Þá hefur hóp­ur­inn einnig fagnað og öskrað rasísk ummæli á borð við „Dauði til Araba“.

Ráð­herrar úr öfga-hægri rík­is­stjórn Benjamin Net­anyahu mættu einnig í göng­una en þjóðar­ör­ygg­is­ráð­herr­ann Itamar Ben-Gvir lýsti því yfir: „Jer­úsalem er okkar að eilífu.“

Palest­ínu­menn lok­uðu heim­ilum og versl­unum með­fram göng­unni í morgun af ótta við skemmd­ar­verk.

Fána­gangan hefur und­an­farin ár verið sífellt meira notuð til að sýna mátt öfga­þjóð­ern­is­sinn­aðra Gyðinga, á meðan Palest­ínu­menn líta á göng­una sem aug­ljósa ögrun til að grafa undan tengsl þeirra við borg­ina. Rasískir and-Arab­ískir söngvar hafa oft verið sungnir af þjóð­ern­issinnum í göng­unni en áður hefur við­burð­ur­inn ollið mun gróf­ara ofbeldi.

Ísra­elska lög­reglan hefur lofað að stöðva lög­brot á göng­unni en kennir svæð­is­bundnum „hryðju­verka­þáttum“ um „villta hvatn­ingu til afbrota“ í göng­unni á sam­fé­lags­miðlum. Sagði lög­reglan einnig að um væri að ræða aðeins „lít­inn minni­hluta­hóp báðum megin lín­unnar sem reyni að ögra“.

Palest­ínskir leið­togar segja Austur-Jer­úsalem við­burð­inn vera „ögrandi athöfn“ og segja að öfga hægri ráð­herr­arnir Ben Gvir og Bezalel Smotrich, sem séu traustir stuðn­ings­menn göng­unnar, vera að „planta fræum átaka“.

Ráðlagt að loka búðum sínum

Ísra­elski for­sæt­is­ráð­herr­ann, Benjamin Net­anyahu gaf grænt ljós á að við­burð­ur­inn yrði hald­inn eins og planað var og lög­reglan gaf leyfi á að gengið yrði hinu venju­legu leið í gegnum borg­ina.

Meðfram göngu­leið­inni í gömlu borg­inni lok­aði Samir Abu Sbeih nammi­búð sinni og sagði að lög­reglan hefði ráð­lagt palesínskum fyr­ir­tækjum að gera það fyrir miðjan dag.

„Þetta er ekki þeirra land að fagna,“ sagði hann um göng­una. „Við búum undir her­námi og þess vegna verðum við að sætta okkur við þetta.“

Kebab-veit­inga­staða­eig­andi Basti, sem vill ekki gefa upp sitt fulla nafn, sagði að við­burð­ur­inn hafi „versnað“ frá ári til árs.

„Stundum reynir fólkið sem er að dansa með fán­ana, að troða honum í and­litið á þér, stundum hrækja þau í and­litið á þér. Og þetta er ekki þægi­legt.“

Sagði hann að lög­reglan hefði sagt honum að það væri ekki verið að neyða hann til að loka, en ef að hann héldi veit­inga­staðnum opnum í dag, væri það á hans eigin ábyrgð.

„Fyrir mína parta, þá vil ég bara vera inn­an­dyra. Mér líkar ekki vand­ræði, fyrir báðar hliðar,“ sagði Basti.

Fer versnandi ár frá ári

Jer­úsalem dag­ur­inn hefur verið hald­inn hátíð­legur af Ísraelum í ára­tugi en síð­ustu ár hefur borið á hækk­andi spennu.

Seinni part dags fara tugir þús­unda Ísraela frá vest­ur­hluta Jer­úsalem til Gömlu borg­ar­innar og enda með svoköll­uðum fána­dansi við Vestur-vegg­inn, heilag­asta bæn­ar­stað Gyðinga.

Áður en kemur að fána­dans­inum fara göngu­menn sitt­hvora leið­ina, en þús­undir, aðal­lega karl­menn og ung­ings­drengir fara inn í Austur-Jer­úsalem. Þar ganga þeir í gegnum Damascus hliðið, en þá hefur Ísra­els­her oft­ast hreinsað svæðið af Palest­ínu­mönnum fyr­ir­fram, og svo inn í múslim­ska fjórð­ung Gömlu borg­ar­innar.

Und­an­farin ár hafa hópar göngu­manna farið um syngj­andi „dauði til Araba“ og „Megi þorp ykkar brenna“, á meðan aðrir berja glugga­hlera palest­ínskra versl­ana.

„Ekkert sem heitir Palest­ínu­menn“

Einn af göngu­mönn­unum, Pini, sem ekki vildi gefa upp fullt nafn, sagði að hann hefði mætt í ára­tugi í göng­una sem fagn­aði því að „Jer­úsalem var sam­einuð og aftur færð í hend­urnar á Gyðingum. Frá 1948 til 1967, var okkur mein­aður aðgangur að Vestur-veggnum,“ sagði hann og átti þá við tíma­bil þegar Austur-Jer­úsalem var stjórnað af Jórdaníu. „Við snérum aftur að Vestur-veggnum,“ bætti hann við.

Aðspurður út í ógn­andi and­rúms­loftið fyrir Palest­ínu­menn sagð­ist hann vera á móti allri áreitni. En bætti svo við nokkru sem berg­málar afar umdeildar athuga­semdir frá öfga hægri ráð­herrum þessa árs: „Það er ekk­ert sem heitir Palest­ínu­menn; hvenær var Palest­ína stofnuð? Er palest­ínskur kon­ungur til? Er til palest­ínskur gjald­eyrir?“

Hin her­skái Hamas hópur Palest­ínu var­aði Ísrael í vik­unni, við að kveikja ófrið, með því að fara yfir strikið í Jer­úsalem á meðan á við­burð­inum stendur.

Á fána­deg­inum árið 2021, skaut hópur eld­flaugum að Jer­úsalem frá Gaza-strönd­inni eftir að spennan á milli þjóð­anna hafði byggst upp viku fyrir hátíð­ina og breytt­ist í stríðs­á­tök.

Þetta árið virð­ist minni áhugi vera fyrir átökum eftir að enn ein blóð­ugu átökin á milli Ísrael og víga­manna frá Gaza-strönd­inni end­aði fyrir stuttu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco