Hinn 19 ára gamli Suleman Dawood sem lést í týndum Titanic kafbátnum, ásamt fjórum öðrum mönnum, samþykkti aðeins að fara í ferðina með pabba sínum á feðradaginn til að þóknast honum, sagði fjölskyldumeðlimur í samtali við NBC news í gær.
Suleman Dawood lést ásamt föður sínum Shahzada, kapteini kafbátsins og OceanGate forstjóra Stockton Rush, Paul-Henri Nargeolet herforingja í franska sjóhernum og breska milljarðamæringnum Hamish Harding.
Eftir að kafbáturinn lagði af stað á sunnudag rofnaði sambandið við móðurskipið eftir eina klukkustund og 45 mínútur. Í kjölfarið hófust leitaraðgerðir í hafinu undan ströndum Nýfundnalands, í kringum Titanic flakið. Í gær endaði leitin hins vegar með harmleik þar sem bæði fyrirtækið á bakvið Titan kafbátinn og bandaríska strandgæslan staðfestu að allir fimm mennirnir hefðu látist.
Bandaríska strandgæslan sagði að talið væri að allir farþegar væru látnir og vottaði fjölskyldum „innilegustu samúð“ eftir að skottkeila kafbátsins fannst um 1.600 fet frá boga Titanic-flaksins.
Eftir tilkynninguna sagði Azmeh Dawood, eldri systir Dawood að frændi hennar hefði verið hikandi við að fara í leiðangurinn. Upplýsti hún að hann hafi aðeins farið í ferðina vegna feðradagsins og hann vildi gleðja pabba sinn – sem hafði brennandi áhuga á Titanic. Hann hafi verið „hræddur“ fyrir ferðina. Hún bætti við að hann hafi „ekki verið til í þetta.“ „Hugsunin um að 19 ára gamall væri fastur í því var bara næsta stig, því þú veist að hinir áhafnarmeðlimirnir voru eldri, þeir voru þarna eigin hagsmunum.“
„Suleman var bara þarna vegna feðradagsins, og satt að segja, eins hræðilegt og það hljómar, að minnsta kosti vitandi að þeir hefðu ekki haft tíma til að vita það, hefðu þeir bara setið þarna og skemmt sér svo allt í einu búmm, og það var búið … að vita að Sule minn fann ekki fyrir augnabliki af sársauka. Að hann áttaði sig ekki einu sinni á …“
sagði systirin í samtali við NBC news.































Athugasemdir