Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Robert C. Clark í viðtali við Hampfélagið: „Íslendingar þurfa eigið afbrigði af kannabis“

Robert C. Clark í viðtali við Hampfélagið: „Íslendingar þurfa eigið afbrigði af kannabis“
Mynd / Robert C. Clark

„Í sann­leika sagt þá er þetta ekki réttur staður á jarð­kringl­unni. Þið eruð of nálægt pólnum,“ segir banda­ríski rit­höf­und­ur­inn og fræði­mað­ur­inn Robert C. Clark í nýjasta þætti HAMPKASTSINS, umræðu­þætti Hamp­fé­lags­ins, um ræktun kanna­bis­plönt­unnar á Íslandi. Robert hefur rann­sakað kanna­bis frá því snemma á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar og fylgt eftir gríð­ar­legum breyt­ingum á lands­lag­inu þegar kemur að kanna­bis í Banda­ríkj­unum en einnig í Evrópu þar sem hann var búsettur lengi í Amster­dam.

Robert C. Clark: „Íslend­ingar þurfa eigið afbrigði af kanna­bis“

Robert er borin og barn­fæddur í Kali­forn­íu­ríki í Banda­ríkj­unum og útskrif­að­ist frá Háskól­anum í Santa Cruz í sama ríki. Áhugi hans á kanna­bis­plönt­unni kvikn­aði í háskóla­nám­inu og leiddi hann út í fræði­störf sem enn sér ekki fyrir end­ann á. Eftir námið flutti hann til Amster­dam þar sem hann fór til starfa hjá Hor­toph­arm B.V. en það er rann­sóknar- og þró­un­ar­fyr­ir­tæki og það fyrsta sem fékk leyfi frá hol­lenskum stjórn­völdum til rann­sókna á kanna­bis. Hann seg­ist enn sífellt fá meiri og breið­ari áhuga á plönt­unni og nú síð­ast á sam­bandi kanna­bis­plönt­unnar og manns­ins í gegnum ald­irnar. „Þetta er planta sem ég sá að var mik­il­væg og því meira sem ég rann­saka hana því meira sé ég hversu mik­il­væg hún er. […] Það er ekki til önnur planta til í heim­inum sem hefur haft jafn mikil áhrif á mann­kynið.“

Robert hefur einnig skrifað bækur um kanna­bis sem hafa haft mikil áhrif þegar kemur að fræðslu til almenn­ings. Meðal bóka Roberts eru Mari­ju­ana Botany. An Advanced Study: The Propagation and Breeding of Distinctive Cannabis, Hashish!, Hemp Diseases and Pests og Cannabis: Evolution and Etho­bot­any.

Þarf lengra ræktunartímabil á Íslandi

Á ferða­lagi sínu um Ísland hefur Robert heim­sótt akra þar sem rækt­aður er iðn­að­ar­hampur. Kalt sumar framan af hefur haft mikið að segja um rækt­un­ina á sunnan- og vest­an­verðu land­inu og Robert var ekki von­góður um fram­tíð íslenskra rækt­enda. „Það er hægt að rækta háar plöntur en þar með er ekki öll sagan sögð. Það þarf að þurrka þær, verka þær, ná trefj­unum og ég held að það þurfi lengra rækt­un­ar­tíma­bil. Ég er ekki sann­færður um að ræktun gangi hér á landi þrátt fyrir yrki á borð við Finola og önnur sem vaxa mjög hratt.“

Hann segir að það séu að sjálf­sögðu tæki­færi hér á landi en þau virð­ist þá bundin við góð ár veð­ur­fars­lega séð. Aðspurður um yrki sem hent­ug­ast væri að rækta á norð­lægum svæðum sagði Robert aðeins eitt koma til greina: „Það sem þið Íslend­ingar þurfið að gera er að rækta upp ykkar eigið afbrigði. Það er svarið. […] Það getið þið gert með því að rækta áfram út frá þeim plöntum sem vaxa og dafna vel. […] Það getur verið ein af hund­rað eða ein af þús­und og krefst þraut­seigju og ein­beit­ingar.“

Afglæpavæðing besta skrefið

Robert fer í við­tal­inu einnig yfir stöð­una í Banda­ríkj­unum en veru­lega breyt­ingar hafa orðið vest­an­hafs á við­horfi til kanna­bis­efna á und­an­förnum árum og ára­tugum eða frá því að opin­ber­lega var lýst yfir stríði gegn vímu­efnum og efnt til sér­stakrar her­ferðar gegn kanna­bis­efnum. Nú er svo komið að kanna­bis­efni eru ólög­leg að fullu í ein­göngu tíu ríkjum. Þau eru lög­leg í 23 ríkjum, lög­leg í lækn­is­fræði­legum til­gangi í fimmtán til við­bótar og afglæpa­vædd í tveimur. Aðspurður um áhrif á sam­fé­lagið segir Robert: „Breyt­ing­arnar snúa helst að því að taka glæp­inn út úr jöfn­unni. Ég veit að það hljómar heimsku­lega því það er verið að leyfa notk­un­ina en fólk getur núna nálg­ast plönt­una án þess að hafa áhyggjur af almenn­ings­á­lit­inu, af lög­brotum, af því að missa for­sjá yfir börnum sínum, missa vinn­una eða fara í fang­elsi. Þá fyrst nær þetta sama fólk að skilja plönt­una. […] Það opnar sömu landa­mæri og við rann­sóknir og gerir okkur öll jafn sett.“

Hann segir að langt sé í það að notkun á kanna­bis­efnum verði afglæpa­vædd á heims­vísu þrátt fyrir að það muni ger­ast á end­anum. Enn séu lönd að herða á lögum og reglum þegar kemur að kanna­bis og þrátt fyrir að mikið sé talað fyrir afglæpa­væð­ingu í Evrópu þá ger­ist hlut­irnir afskap­lega hægt. Hann tekur sem dæmi Þýska­land þar sem afglæpa­væð­ing er á umræðu­stigi hjá stjórn­völdum. „Fyrsta sem þar á að gera er að afglæpa­væða kanna­bis­efni og það er besta skrefið,“ segir Robert og bætir við að þrátt fyrir að enn eigi eftir að útfæra reglu­verk eigi að stefna að því að minnka gróða­von­ina og þar með sleppa mark­aðnum lausum. Stjórn­völd vilji halda um taumana, settir verði upp klúbbar þar sem með­limir greiði mán­að­ar­gjald en ekki verði greitt fyrir kanna­bis­efni með pen­ingum. En hann tekur fram að enn sé ekk­ert fast í hendi.

Sprengja í rannsóknum á kannabis

Robert segir að enn sé of lítil almenn þekk­ing um kanna­bis­plönt­una og gagn­semi hennar. Rann­sóknir fyrri ára hafi allar verið því marki brenndar að nið­ur­staðan var gefin fyrir fram, þ.e. að kanna­bis sé nei­kvætt á allan hátt. Þegar ekki hafi tek­ist að fá fram það svar hafi fjár­magn ekki lengur feng­ist til rann­sókna. „Fólk í dag talar um CBD en allar rann­sóknir sem gerðar voru þar til fyrir nokkrum árum sneru að THC. […] Það voru fleiri rann­sóknir gerðar á kanna­bis á fyrstu þremur mán­uðum þessa árs en öllu árinu í fyrra,“ segir Robert og tekur þá ekki inn í töl­una rann­sóknir í lækn­is­fræði­legum til­gangi því þær séu of margar og það sé ekki hans sér­svið. „Banda­rískir háskólar hræð­ast ekki lengur að leyfa nem­endum sínum að rann­saka það sem þeir hafa áhuga á og áhug­inn á rann­sóknum á kanna­bis hefur auk­ist stór­kost­lega enda er plantan sífellt í fréttum og er orðin stór hluti af lífi okkar.“

Spurður um það hvar lyfja­fyr­ir­tækin vold­ugu standi þegar kemur að kanna­bis seg­ist Robert telja að þeim sé nokk sama um plönt­una og afurðir hennar. Hann segir þau kannski líta á kanna­bis sem ógnun og hafa áhyggjur af því að fólk lækni sig sjálft en í raun hafi lyfja­fyr­ir­tækin ekki áhuga á kanna­bis. Lyfja­fyr­ir­tækin hafi áhuga á einka­leyfum og þau vilja geta stýrt neysl­unni og fram­leiðsl­unni. Þau vilji alla kök­una. En það geti þau ekki þegar kemur að kanna­bis. Þau fái ekki einka­leyfi á plönt­una. „Í raun eru það ekki lyfja­fyr­ir­tækin sem eru hrædd heldur áfeng­is­fram­leið­endur. […] Fólk drekkur minni bjór ef það notar kanna­bis­efni. Ég veit ekki hvort það sé til bein töl­fræði um það en það er þetta sem áfeng­is­iðn­að­ur­inn hræð­ist.“

Þáttinn má sjá í heild sinni í spil­ar­anum hér að neðan, Gunnar Dan Wiium, stjórn­ar­maður í Hamp­fé­lag­inu, tók við­talið við Robert, Mickael Omar Lakhlifi sá um tækni­mál og Andri Karel sá um frétta­skrif.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu