Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Daníel gefur út plötur tvo daga í röð: „Stundum er alltof mikið að gera“

Daníel gefur út plötur tvo daga í röð: „Stundum er alltof mikið að gera“
Daníel vann til verð­launa sem Bjartasta Vonin – Mynd: Eyþór Árnason

Daníel Helgason, einn fær­asti gít­ar­leik­ari lands­ins, gefur loks­ins út fyrstu sóló­plöt­una.

Það eru ekki margir tón­list­ar­menn sem gefa út tvær plötur á einu ári en Daníel Helgason bætir um betur og gefur út plötur tvo daga í röð. Daníel hefur lengi verið einn af fær­ustu gít­ar­leik­urum lands­ins og hann hefur verið virkur þátt­tak­andi í íslensku tón­list­ar­lífi und­an­farin ár með Los Bomboneros, DÓH tríó, Unu Stef og fleirum en Daníel er einnig tón­list­ar­kenn­ari. Daníel er upp­al­inn Breið­hylt­ingur og býr þar með konu sinni og dætrum. Mannlíf ræddi við Daníel um hvernig það kom til að gefa út plötur tvo daga í röð.

„Þetta var nú engan veg­inn planað svona,“ sagði Daníel í sam­tali við Mannlíf. „Ein af hljóm­sveit­unum sem ég er í, Los Bomboneros, tók upp þessa plötu fyrir um það bil 2 árum síðan og við vorum alltaf að fresta útgáfu út af Covid. Okkur lang­aði að getað haldið upp á þetta með stæl og þegar það stóð til að koma fram á Jazzhátíð Reykja­víkur slógum við því bara upp sem útgáfu­tón­leikum og salsa­ball í leið­inni núna á laug­ar­dag­inn,“ en með Daníel í hljóm­sveit­inni eru þau Alex­andra Kjeld, Sigrún Krist­björg Jóns­dóttir og Kristofer Rodriguez Svönuson.

Daníel glæsi­legur með gít­ar­inn –

„Svo á meðan þessi vinna var í gangi lagði ég loks­ins í það að taka upp sóló­plötu. Eitthvað sem er búið að vera á dag­skránni í mörg ár,“ sagði gít­ar­leik­ar­inn knái um hans fyrstu sóló­plötu. „En ég lét loks­ins af því verða í byrjun árs og hóaði í þá Birgi Stein Theo­dórs­son, bassa­leik­ara, og Matthías Hemstock, trommu­leik­ara, og tók eina æfingu til að renna þessum lögum sem ég var að semja. Svo bók­aði ég stúd­íóið Sund­laug­ina í páska­frí­inu en náði ekk­ert að æfa aftur með þeim og hjólaði bara í eina óæfða jazzplötu. Fyrir vikið er þetta allt frekar „spont­ant“ og lif­andi og ég er mjög ánægður með útkom­una. Albert Finn­boga­son tók plöt­una upp og „mixaði“ alveg ein­stak­lega vel. Hönnun umslags var svo í höndum frænku minnar hennar Bergþóru Jóns­dóttur. Þannig að það end­aði bara sem fyndin til­viljun að bæði þessi verk­efni voru að gefa út plötur akkúrat á sama tíma og bæði valin inn á Jazzhátíð,“ en sóló­plata Daníels kemur út föstu­dag­inn 25. ágúst og báðir útgáfu­tón­leikar hans verða haldnir í Hörpu á Jazzhátíðinni.

En þó að plöt­urnar komi út nán­ast á sama degi þá eru þær gjör­ó­líkar.

„Það er gígantískur munur á þessum plötum,“ sagði Daníel um mun­inn á plöt­unum. „Platan mín, Particles, er ein­hvers­konar ambient free jazz með miklu spila­frelsi og spuna á meðan Los Bomboneros platan, ¡Mambó! er stuð­plata með áherslur á afro-latin músík inn­blásin af norð­ur­hluta Suður-Ameríku og Mið-Ameríku. Það var líka mik­ill munur á vinnslu þeirra. Particles var unnin frekar hratt því mús­íkin er þess eðlis að það þarf ekki að eyða miklum tíma í eft­ir­vinnslu á meðan ¡Mambó! var lengra ferli því það eru fleiri hljóð­færi og söngur og lúm­skt erfitt að ná þessu heim og saman. En okkur tókst vel til og platan hljómar mjög „retro“ og gam­al­dags en samt spenn­andi hljómur á henni.“

Los Bomboneros –

Daníel og hæfi­leikar hans hafa vakið athygli allt frá því að hann var ung­lingur að setja lög inn á heima­síð­una rokk.is. Þá hlaut Daníel fyrir verð­laun sem bjartasta vonin í djass og blús flokki á Íslensku tón­list­ar­verð­laun­unum árið 2018. Hverju breyttu þau verð­laun fyrir hann?

„Þau breyta í raun­inni ekki miklu, þannig séð. Ég er auð­vitað mjög þakk­látur að fá þessi verð­laun og var líka til­nefndur fyrir fleiri verð­laun það sama ár. Það var kannski svona næstu daga á eftir tón­list­ar­verð­launin að maður fór að hugsa hvort þetta myndi eitt­hvað auka vænt­ingar fólks fyrir því hvað maður væri að gera. En á sama tíma þá eru ekk­ert margir hér­lendis sem fylgj­ast með spuna-jazz sen­unni eða latín sen­unni þannig að ég held að það sé engin auka pressa ef út í það er farið.“

„Það er margt spenn­andi að ger­ast hér­lendis í öllum senum og gróskan er svo mikil,“ sagði Daníel um íslenskt tón­list­ar­líf í dag. „Hef mjög gaman af Unu Torfa og Árnýju Margréti því þær eru mjög flottir laga­höf­undar. Svo er margt spenn­andi á Jazzhátíð líka sem ég mæli með að kíkja á eins og trommu­leik­ar­ann Óskar Kjart­ans­son sem gaf út stór­kost­lega plötu, Gork, í fyrra. Einnig ber að nefna píanistana Benjamín Gísla og Önnu Grétu. Svo eru alls­konar spenn­andi lista­menn að koma fram á hátíð­inni eins og Insomnia Brass Band sem vann nýverið þýsku jazztónlistarverðlaunin og trommu­leik­ar­inn Gard Nilssen sem leiðir geggjað tríó á hátíð­inni í ár.“

Umslag sóló­plötu Daníels – Hönnun: Bergþóra Jóns­dóttir

„Það er bara svo­lítið upp og niður,“ sagði Daníel um hvernig væri að vera tón­list­ar­maður á Íslandi. „Stundum er alltof mikið að gera og stundum allt of lítið að gera. Þetta er heil­mikið „ströggl“ eins og sagt er og stundum ekki alltaf borið mikla virð­ingu fyrir því sem maður gerir og þá helst kannski launa­lega séð. Fólk biður um lif­andi músík og hættir að svara tölvu­póstum þegar umræðan um verð kemur upp.“

„Smá hvíld vona ég,“ svar­aði Daníel þegar hann var spurður út í fram­haldið. „Búið að taka aðeins á að und­ir­búa tvær útgáfur og allt til­heyr­andi. Kennsla að hefj­ast og ein­hverjir tón­leikar framundan. Mæli með að fylgja Los Bomboneros á Facebook og Instagram og kíkja á tón­leika og dansa. Svo verða líka seinna í vetur tón­leikar með mínu efni en það verður aug­lýst síðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu