Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Tveggja barna móðir ákærð fyrir að nauðga tvíburabræðrum undir lögaldri

Tveggja barna móðir ákærð fyrir að nauðga tvíburabræðrum undir lögaldri
Watts fjöl­skyldan Mynd: Trausti Hafsteinsson

Þrjátíu og sjö ára gömul móður frá Virg­iniu­fylki í Banda­ríkj­unum hefur verið ákærð fyrir nauðgun eftir að lög­reglan fann hana nakta með 15 ára dreng sem leitað hafði verið að. Tví­bura­bróðir hans sakar kon­una einnig um mis­notkun.

Fanga­mynd af Watts.

Fram kemur í frétt The New York Post að Ashleigh Watts hafi upp­runa­lega verið nöppuð af lög­regl­unni er hún kom heim til hennar í Chesepeake í Virg­iniu­fylki í júlí, í leit að týndum ung­lings­strák. Hún bað lög­regl­una um að bíða fyrir utan á meðan hún færi í brjósta­hald­ara og setti hundana út. „Lög­reglu­full­trúar sögðu að þó nokkrum mín­útum síðar hafi Watts komið aftur að dyr­unum með hundana sína tvo, og hleypti þeim inn,“ segir í dóms­skrám.

Þar segir enn­fremur: „Þegar lög­reglu­full­trú­arnir fjar­lægðu dýnu í svefn­her­bergi á efri hæð­inni, sáu þeir hvítan ung­linga­strák fela sig í litlu rými, aðeins klæddur boxer-nær­buxum. Þegar hann var spurður hvort hann væri sá sem hafði strokið að heiman, ját­aði hann því og sýndi þeim æfinga­öku­skír­teini sitt.“

Í byrjun var Watts ákærð fyrir að hafa stuðlað að afbrotum ung­menna, en kæran hefur síðan stækkan en hún er nú ákærð fyrir þrjú til­vik um ósið­sama hátt­semi gagn­vart börnum undir lög­aldri, vegna sjúkra sam­skipta sem hún er sökuð um að hafa átt við ung­ling­ana.

Tví­burarnir bjuggu á móti ein­býl­is­húsi Watts og voru vinir sonar hennar, sem er á svip­uðum aldri og þeir. Watts er grunuð um að hafa byrjað að gera sér dælt við bræð­urna, ári áður en hún var nöppuð. Lög­reglan hóf að rann­saka hina tveggja barna móður eftir nafn­lausa ábend­ingu um meint kyn­ferð­is­legt saman hennar við tví­burana, í febr­úar.

Watts.

Sama mánuð hafði eig­in­maður Watts komið að henni um klukkan tvö eftir mið­nætti, þar sem hún var ber að ofan í sóf­anum við hlið­inni á öðrum tví­bur­anum, sem „þótt­ist vera sof­andi,“ sam­kvæmt játn­ingu hans síðar í rann­sókn máls­ins.

Þegar for­eldrar drengs­ins spurðu hann út í atvikið sagð­ist hann hafa farið á heim­ili Watts til að reykja gras og að hann hafi sofnað í sóf­anum. Fjöl­skyld­urnar tvær voru „mjög nánar“ og höfðu þá reglu að dyr beggja heim­ila stæðu ætið opnar fyrir með­limi fjöl­skyld­anna.

For­eldrar bræðr­anna sögðu lög­reglu­full­trúum að þeir hefðu eytt miklum tíma á heim­ili Watts en að þau hefðu gert ráð fyrir að þeir væru að hanga með syni hennar.

Watts er þó grunuð um að hafa, á bak­við luktar dyr, hafa mis­notað tví­burana kyn­ferð­is­lega sem og til­finn­inga­lega en annar þeirra sagði öðrum nágranna sínum frá sjúkri mis­notkun Watts. „Nágrann­inn sagði að hann hefði sagt sér að hann hafi verið að stunda kyn­líf með frú Watts síðan í júní 2022,“ skrif­aði lög­reglan í yfir­lýs­ingu um lík­legt til­efni. „Hann sagði nágrann­anum að hann og frú Watts væru ást­fangin og þegar hann yrði 17 ára myndi hún skilja við eig­in­mann sinn og gift­ast sér.“

Yfirvöld segja að eftir að hið meinta 13 mán­aða sam­band var afhjúpað hafi ung­ling­ur­inn strokið að heima og fund­ist í felum í svefn­her­bergi Watts, þremur vikum síðar, þann 26. júlí, sam­kvæmt WAVY.

Tví­burar­bróðir drengs­ins ját­aði við rann­sókn­ar­að­ila að Watts hefði boðið honum í heim­sókn til að reykja gras og að hún hefði gefið honum nær­buxnapar af henni. Hann heldur því einnig fram að hún hefði snert sig á óvið­eig­andi hátt, þrátt fyrir að hann hefði beðið hana um að hætta. For­eldrar tví­bu­r­anna, sem og eig­in­maður Watts, hafa kraf­ist nálg­un­ar­banns á hana.

Skýrsla sem eig­in­maður kon­unnar lagði fram, lýsir miklu magni af pen­ingum, mari­júana og fyr­ir­fram­greiddum far­síma sem að sögn fannst á heim­il­inu eftir hand­töku hennar.

Watts getur átt þrjá­tíu ára fang­elsi yfir höfði sér, verði hún fundin sek.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco