Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Páll Vilhjálmsson heldur ásökunum áfram: „Sigríður Dögg játar skattsvik“

Páll Vilhjálmsson heldur ásökunum áfram: „Sigríður Dögg játar skattsvik“
Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir

Páll Vil­hjálms­son segir Sigríði Dögg Auð­uns­dóttur hafa játað skatt­svik í færslu á Facebook sem hún skrif­aði í gær, sem svar við ásök­unum fram­halds­skóla­kenn­ar­ans. Fyr­ir­sögn blogg­færsl­unnar er „Sigríður Dögg játar skatt­svik.“

Fram­halds­skóla­kenn­ar­inn og Mogga­blogg­ar­inn umdeildi, Páll Vil­hjálms­son, segir í blogg­færslu í dag að Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands, hafi í færslu á Facebook, við­ur­kennt skatt­svik er hún skrif­aði: „Við hjónin fengum end­ur­á­lagn­ingu opin­berra gjalda vegna útleigu­tekna fyrir nokkrum árum og greiddum þá skatta.“

Páll segir Sigríði Dögg hafa leigt út hús­næði á Airbnb en ekki gefið leigu­tekj­urnar upp á skatt­fram­tali. „Það kall­ast að stela undan skatti.“ Bendir hann á að skatt­rann­sókn­ar­stjóri hafi fengið upp­lýs­ing­arnar frá höf­uð­stöðvum Airbnb á Írlandi eftir dóms­mál þar í landi. Segir hann að aðeins hafi feng­ist upp­lýs­ingar um stærstu upp­hæð­irnar sem skotið var undan skatti og vitnar í Bryndísi Krist­jáns­dóttur skatt­rann­sókn­ar­stjóra: „„Þannig að það eru ekki smæstu aðil­arnir sem eru þarna með,“ sagði Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókna­stjóri er hún fékk upp­lýs­ing­arnar frá Írlandi.“

Mogga­blogg­ar­inn bendir einnig á að Sigríður Dögg hafi notað orðið „end­ur­á­lagn­ing“ um upp­gjörið við skatt­inn í svari sínu á Facebook í gær­kvöldi. „En það er sjálfur vinnu­veit­andi Sigríðar Daggar, RÚV, sem kallar verkn­að­inn skatt­svik. Fyr­ir­sögn RÚV á frétt af konu sem, eins og Sigríður Dögg, taldi ekki fram Airbnb-leigu­tekjur er eft­ir­far­andi: Sektuð um 15 millj­ónir fyrir skatt­svik í Airbnb-útleigu“

Þá segir Páll enn­fremur að lík­indi Sigríðar Daggar og kon­unnar í frétt­inni hér að ofan, sé tölu­verð. „End­ur­á­lagn­ing og skatt­svik er ekki sami hlut­ur­inn. RÚV kallar það skatt­svik sem frétta­maður stofn­un­ar­innar er upp­vís að. Líkindi Sigríðar Daggar og kon­unnar í skattsvika­frétt RÚV eru tölu­verð. Báðar lentu þær í fjár­hagskröggum. Sigríður Dögg og maki hennar, Valdimar Birg­is­son, áttu mis­heppnuð útgáfu­æv­in­týri, gáfu út Krónik­una og Frétta­tím­ann. Eins og skattsvika­konan í frétt RÚV redd­aði Sigríður Dögg sér með ólög­mætri útleigu á Airbnb.“

Páll skýtur svo föstum skotum á Rík­is­út­varpið í næstu orðum sínum. „Ef það er stefna RÚV að gera skattsvik­urum hátt undir höfði og normalisera und­an­skot á opin­berum gjöldum þá heldur Sigríður Dögg stöðu sinni á Kast­ljósi og þýfgar mann og annan um vafa­samar athafnir ver­andi sjálf skattsvik­ari. Varla trú­verð­ugt fyr­ir­komu­lag, að ekki sé sagt sið­laust.“

Sigríður Dögg var í færslu sinni á Facebook að svara frétt Mbl.is um gróða Miðlar ehf en þar var sagt að Sigríður Dögg væri eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins. Sagði hún það rangt, eig­in­maður hennar, Valdimar Birg­is­son væri eig­andi en hún stjórn­ar­for­maður. Morg­un­blaðið leið­rétti frétt­ina en bætti eft­ir­far­andi orðum við: „Frétt mbl.is byggði á því að fé­lagið hét, þar til í apríl á þessu ári, SDA Ráðgjöf ehf. og Sig­ríður Dögg skráð sem hlut­hafi þess.“

Á þetta bendir Páll í blogg­færslu sinni og bætir við: „Verið getur að útleigan á íbúðum hafi verið á kenni­tölu SDA-ráð­gjafar ehf. eða á kenni­tölu Sigríðar Daggar sjálfrar. For­mað­ur­inn á eftir að upp­lýsa máls­at­vik.“

Páll stað­hæfir einnig að Sigríður Dögg hafi fengið sér­með­ferð hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra, þvert á það sem hún segir í færslu sinni í gær. „Skatt­svik Sigríðar Daggar hafi numið hærri fjár­hæð en svo að rétt­lætti sátt með sekt. Aðrir í sömu sporum og Sigríður Dögg, en sviku undan lægri fjár­hæð, sættu opin­berri ákæru.“ Segir hann aukreitis hafa heim­ildir fyrir því að fyr­ir­spurn verði lögð fyrir haust­þingið, um Airbnb-skatt­svikin. „Þá verður einnig spurt um máls­með­ferð; við hvaða fjár­hæð var miðað við er ákveðið var hverjir sættu ákæru og hverjir fengu til­boð um sátt og sekt­ar­greiðslu. Þeir sem sættu ákæru gátu ekki falið nafn og kenni­tölu. Sigríður Dögg fékk nafn­leynd. Allt bendir til að for­maður Blaða­manna­fé­lags­ins og frétta­maður RÚV hafi notið fyr­ir­greiðslu skatt­rann­sókn­ar­stjóra sem aðrir í sömu stöðu nutu ekki.“

Að lokum giskar Páll á að Sigríður Dögg muni fljótt leita sér að nýrri vinnu. „Til­fallandi gisk er að Sigríður Dögg leiti sér brátt að nýjum starfs­vett­vangi og Blaða­manna­fé­lag Íslands fái nýjan for­mann, – þó ekki Aðal­stein Kjart­ans­son vara­for­mann og sak­born­ing í byrl­unar- og síma­stulds­mál­inu. “

Séu ásak­anir Páls rangar er borð­liggj­andi fyrir Sigríði Dögg að kæra hann fyrir meið­yrði en hann hefur áður tapað meið­yrða­máli.

Líkt og Mannlíf sagði frá í gær hefur Sigríður Dögg ekki svarað spurn­ingum mið­ils­ins um meint skatta­laga­brot, þrátt fyrir ítrek­anir. Hér má sjá spurn­ing­arnar:

1. Kannast þú og /eða eig­in­maður þinn við að hafa leigt út íbúðir á air­bnb?
2. Voru tekjur af leig­unni ekki gefnar upp til skatts upp­haf­lega? Eru ásak­anir um slíkt rangar?
3. Er rétt að þú/þið hafið gert sátt við skatta­yf­ir­völd um að greiða skatt af inn­kom­unni og 25 pró­senta álag.
4. Er rétt að einka­hluta­fé­lag ykkar, Miðlun, hafi í fram­hald­inu tekið yfir þann rekstur sem snýr að útleig­unni.
5. Ef rétt er hermt með sátt­ina: Telur þú að í þessu felist brot af þinni hálfu sem þú þurfir að axla af ábyrgð? Ef svo. Hvernig munt þú bregð­ast við?
Hefur þú gert stjórn Blaða­manna­fé­lags­ins og yfir­stjórn Rík­is­út­varps­ins grein fyrir þessu máli?

Hér má sjá færslu Sigríðar Daggar:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag