Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Bæjarstjóri Grindavíkur vonast eftir endurbyggingu: „Þetta er gríðarlega öflugt bæjarfélag“

Bæjarstjóri Grindavíkur vonast eftir endurbyggingu: „Þetta er gríðarlega öflugt bæjarfélag“
Fannar horfir yfir Reykja­nesskag­ann. Mynd: Þráinn Kolbeinsson

Fannar Jónasson, bæj­ar­stjóri í Grinda­vík, hefur staðið þétt við bakið á sínu fólki í þeim jarð­hrær­ingum sem hafa skekið Reykja­nes. Í við­tali við Reyni Trausta­son ræðir hann um jarð­hrær­ing­arnar og áhrif þeirra, um Suð­ur­lands­skjálft­ann sem hann fann vel fyrir sum­arið 2000 og í haust var hann í Marokkó þegar mann­skæður jarð­skjálfti reið þar yfir.

Í við­tal­inu ræðir hann meðal ann­ars um þá end­ur­bygg­ingu sem bíður Grinda­vík­urbæ.

Hægt að end­ur­byggja

Fannar er spurður hvort Grinda­vík muni ná fyrri styrk.

„Það ætla ég hreint að vona. Þetta er gríð­ar­lega öfl­ugt bæj­ar­fé­lag og það er mikil sam­heldni í bæj­ar­búum sem standa þétt saman eins og gjarnan er með sjáv­ar­út­vegs­bæi. Menn þurftu að standa saman en oft koma skipin ekki að landi sem lögðu af stað að morgni. Sjórinn gefur en hann tekur líka og þá þurfti að vera mikil sam­staða. Þessi sam­kennd, sam­hjálp, lifir á meðal bæj­ar­búa.“

Þjappar fólk­inu saman.

„Og von­andi getum við horft fram á betri tíma. Það er hægt að end­ur­byggja bæinn. Það er ótrú­lega gott ástand. Það var svo gott að sjá hvað frá­veitan er í góðu standi en við ótt­uð­umst að hún væri veru­lega löskuð. Þannig að við þurfum kannski ekki að bíða mjög lengi eftir því að þau kerfi séu í lagi; það er kannski þessi óvissa um fram­haldið af því að við erum í miðjum atburði. Það er ennþá land­ris. Við erum að búa okkur undir það að geta ekki flutt heim næstu mán­uð­ina. Vonandi verður sá tími ekki mjög langur. En það þýðir heldur ekki að gera sér of miklar vænt­ingar. Við verðum að vera raunsæ með það að það sé í fyrsta lagi í lagi með veitu­kerfin, heitt og kalt vatn, ljós­leið­ara, frá­rennsli og raf­magn.

Margir þessir inn­viðir eru laskaðir og komnir að þol­mörkum þannig að það er ekki gott um miðjan vetur að það fari eitt­hvað af þessu að gefa sig og fólk að lenda í vand­ræðum. Við viljum taka það rólega og búa okkur undir það að vera nokkurn tíma í burtu frá Grinda­vík en von­andi komumst við öll heim fyrr en síðar; þau sem vilja á annað borð koma til baka.

Það er ekk­ert endi­lega víst að þeir sem hafa misst húsin sín vilji kaupa ný eða byggja. Margir eru búnir að fá nóg.“

Fannar hyggst ekki fara áfram í póli­tík; lengra í lands­málin.

„Ég held ég láti gott heita; ef allt gengur eftir í Grinda­vík eftir þetta kjör­tíma­bil læt ég kannski gott heita yfir­leitt. Ég er ofboðs­lega þakk­látur fyrir að fá tæki­færi til að vera á þessum frá­bæra stað. Okkur hjónum hefur verið tekið ein­stak­lega vel af bæj­ar­búum og ég hef átt mjög gott sam­starf við alla bæj­ar­full­trúa,“ segir bæj­ar­stjór­inn sem er ópóli­tískt ráð­inn. „Ég hef reynt að leggja mig fram við það að vinna fyrst og fremst fyrir íbú­ana og sinna þeim skyldum sem mér er ætlað sem sveit­ar­stjórnin, bæj­ar­stjórnin, felur mér.

Ég geri engan grein­ar­mun á minni­hluta og meiri­hluta í því efni. En auð­vitað er það meiri­hluti sem ræður hverju sinni, tekur af skarið, og þá ber mér nátt­úr­lega að fram­fylgja því sem meiri­hlut­inn ákveður.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum