Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Mest lesnu fréttir ársins – Endurkoma Gylfa, harmleikir og nýjar ástir

Mest lesnu fréttir ársins – Endurkoma Gylfa, harmleikir og nýjar ástir

Árið 2023 var ár end­ur­komu, ofbeldis, harm­leika og ást­ar­innar ef marka má lestr­ar­tölur Mannlífs. Í heild­ina voru frétt­irnar lesnar yfir 18 milljón sinnum, sem þýðir að með­al­flett­ingar á dag var um 50.000. Verður það að telj­ast nokkuð gott hjá litlum miðli sem þessum. Nokkar fréttir stóðu upp úr en um leið og við rifjum upp tíu mest lesnu fréttir árs­ins 2023, þakka rit­stjórn Mannlífs fyrir stuðn­ing­inn á árinu og óskum þjóð­inni gæfu­ríks kom­andi árs.

10. Gylfi Þór er kom­inn heim – „Þegar maður bjó á Íslandi gat maður ekki beðið eftir að flytja í burtu“ – 38.800 les­endur

Gylfi Þór Sig­urðs­son

Fyrr­ver­andi óska­barn þjóð­ar­innar snéri heim á árinu eftir tveggja ára rann­sókn bresku lög­regl­unnar á meintu kyn­ferð­is­broti Gylfa Þórs gegn ólög­ráða ein­stak­lingi en hann sætti far­banni á meðan rann­sóknin stóð yfir. Að lokum fór að málið var látið niður falla og hin fallna knatt­spyrnu­stjarna snéri aftur heim. Fréttin af heim­komu Gylfa er 10. mest lesna frétt Mannlífs á árinu.

9. Eig­in­maður Svövu myrtur og hún segir lög­reglu brjóta á sér:„Þeir komu inn með byssur og allt saman“ – 39.500 les­endur

Svava

Enginn skortur var á harm­leikum á árinu, því miður en Mannlíf ræddi við Svövu Guð­munds­dóttur sem missti eig­in­mann sinn í októ­ber í fyrra er hann var stung­inn til bana. Svava þurfti að sitja í fanga­klefa í fjóra daga og var eftir það færð í ein­angrun. Að lokum fór þó svo að henni var sleppt og hreinsuð af öllum grun um að hafa komið að morði eig­in­manns síns. Þegar við­talið var tekið við Svövu hafði lög­reglan hand­tekið hana og kunn­ingja hennar á hót­eli fyrir norðan. Sagði hún lög­regl­una hafa brotið á sér og að hún væri öll lurkum lamin eftir hand­tök­una.

8. Gylfi Þór mættur – „Fyrsta dag­inn eftir síð­asta leik­inn þá flyt ég strax“ – 41.400 les­endur

Gylfi Þór

Lesendur Mannlífs höfðu greini­lega mik­inn áhuga á Gylfa Þór á árinu en önnur frétt um heim­komu kappans var lesin í drasl. En hún snérist um að hann hefði mætt á leik Tinda­stól og Vals er þau léku í úrslitum Íslands­mót karla í knatt­spyrnu. Var þetta í annað skiptið sem Gylfi sást opin­ber­lega frá því að hann kom heim eftr tveggja ára far­bann frá Bret­landi vegna rann­sóknar á meintu kyn­ferð­is­broti hans gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Málið var líkt og áður kemur fram, látið niður falla.

7. Gunna Dís kynnir nýju ást­ina í lífi sínu: „Ég er með hann á heil­anum“ – 43.000 les­endur

Gunna Dís og KóKó

Tvennt er það sem gleður land­ann hvað mest en það er hin frá­bæra fjöl­miðla­kona Guðrún Dís Emils­dóttir og ann­ars vegar krútt­leg dýr. Ef þetta tvennt er sett saman ger­ist eitt­hvað töfr­andi. Sjöunda mest lesna frétt Mannlífs á árinu fjallar um nýjasta með­lim fjöl­skyldu Guðrúnar Dísar og eig­in­manns hennar, Krist­jáns Þórs Magn­ús­sonar en það var hvolp­ur­inn KóKó. Gunna Dís, eins og hún er ávalt kölluð, kol­féll fyrir krútt­inu og skyldi engan undra, hvutti er algjör krútt­bomba!

6. Sævar Daníel: „Ég skil eftir upp­tökur og fleira sem ég vona að kasti ljósi á hvernig ég var myrtur“ – 43.800 

Sævar
Mynd – YouTube-skjá­skotSjötta mest lesna frétt árs­ins er um sorg­ar­sögu Sævars Daníels Kol­anda­velu, sem einnig gengur undir lista­manns­nafn­inu Poetrix. Hafði hann skrifað átak­an­lega færslu á Facebook þar sem hann lýsir því hvernig heil­brigð­is­kerfið á Íslandi brást honum í hans miklu veik­indum. Sagði hann frá því hversu ósjálf­bjarga hann væri orð­inn vegna afar sjald­gæfs ástands lík­am­ans. Lýsti hann því á þennan hátt:

„Þetta er til­komið vegna þess að hrygg­ur­inn á mér er svo illa slitin að hann tog­ast of langt í sundur, og ég þarf manu­ally að halda honum í stað, ekki ósvipað ef og tjald myndi missa eina fest­ing­una við jörð­ina, og byrja fjúka til him­ins. Ég þarf bók­staf­lega að liggja og halda mér föstum í ákveðnum stell­ingum svo hrygg­ur­inn á mér liggi ekki undir frek­ari skemmdum, en honum hefur hrakað gíf­ur­lega og eru nú mest­megnis lið­banda í hálsi og baki að slitna vegna ofhreyf­ing­ar­innar og ég er ber­sýni­lega afmynd­aður.“

5. Harkaleg hand­taka í Ármúla – Óður öku­maður réðst að lög­regl­unni MYNDBAND – 45.800 les­endur

Mynd / aðsend

Sú frétt sem var sú fimmta mest lesna fjall­aði um harka­lega hand­töku í Ármúl­anum, sem náð­ist á mynd­band sem minnti helst á atriði í kvik­mynd. Þar sást dökk­leit Honda nauð­hemla eftir að lög­reglan hafði veitt bif­reið­inni eft­ir­för. Öku­mað­ur­inn steig svo út og æddi í átt að lög­reglu­mönn­unum. Greip þá annar lög­reglu­mað­ur­inn piparúða og beindi að mann­inum óða. Stuttu síðar var hann yfir­buð­aður og skellt í göt­una. Bárust öskrin frá öku­mann­inum um allan Ármúlann eða því sem næst. Reyndist mað­ur­inn vera síbrota­maður eða svo­kall­aður góð­kunn­ingi lög­regl­unnar. Sann­kallað bíó.

4. Sonur Guð­bjargar rek­inn – 46.600 les­endur

Fjórða mest lesna frétt árs­ins er ekki eig­in­leg frétt, heldur það sem Mannlíf kallar orðróm. Þar er sagt frá fjöl­skyldu­ó­ein­ingu meðal einnar auð­ug­ustu fjöl­skyldu lands­ins. Í orðróm­inum er sagt frá því að sonur einnar rík­ustu konu Íslands, Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur, hann Sigurður Sig­urðs­son hafi verið rek­inn sem skip­stjóri og stýri­maður af einu upp­sjáv­ar­skipa Ísfé­lags­ins sem er í meiri­hluta­eign sona Guð­bjargar. Í kjöl­farið mætti Sigurður ekki í Kaup­höll­ina þegar móðir hans fékk þann heiður að hringja félagið inn í Kaup­höll­ina. Sann­kall­aður fjöl­skyldu­harm­leikur.

3. Nafn kon­unnar sem lést í bílslys­inu á Vest­ur­lands­vegi – 49.600 les­endur

Þriðja mest lesna fréttin kom ekki af neinu góðu enda allta harm­leikur þegar fólk deyr í bílslysum. Fréttin er í raun til­kynn­ing um and­lát Jóninnu Huldar Har­alds­dóttir, sem lést í bílslysi á Vest­ur­lands­vegi í des­em­ber, er bif­reið hennar lenti á bif­reið ungs pars sem mætti henni. Parið lifði af en framundan er erfið end­ur­hæf­ing.

2.

Alex­andra eig­in­kona Gylfa mætt aftur – „Það hefur verið draumur hjá okkur“ – 53.600 les­endur

Það var ekki bara end­ur­koma Gylfa Þórs sem vakti athygli les­enda Mannlífs heldur einnig end­ur­koma eig­in­konu hans, Alexöndru. Hún hafði hætt á Instagram þegar eig­in­mað­ur­inn var rann­sak­aður vegna meints kyn­ferð­is­brots á ólög­ráða ein­stak­lingi árið 2021. En þegar fréttin, sem lesin var 53.600 sinnum, var skrifuð var Gylfi kom­inn heim eftir að rann­sókn máls­ins var hætt. Og þá not­aði Alex­andra tæki­færið og byrj­aði aftur á Instagram en hún rekur barna­v­ör­yversl­un­ina Móa&Mía ásamt Móeiði Lár­us­dóttur.

1. Guðbjörg Svava er látin – Faðir hennar missti eig­in­konu og dóttur sama dag­inn 56.200 les­endur

Blessuð sé minn­ing Guð­bjargar Svövu Guð­munds­dóttur

Mest lesna frétt árs­ins er um mik­inn harm­leik en Guð­mundur Sigurður Guð­munds­son missti bæði eig­in­konu sína, Anniku Hillbracken og dóttur, Guð­björgu Svövu Guð­munds­dóttur, sama dag­inn. Guðbjörg Svava hafði árið 2021 misst eig­in­mann sinn er hann var stung­inn til bana á Ólafs­firði en hún sat inni um stund, grunuð um að tengj­ast mál­inu en var svo sleppt er sannað þótti að hún væri alsak­laus. Anikka lést í örmum eig­in­manns síns og sama dag lést Guðbjörg Svava en hún var þá nýorðin 37 ára. Lét hún eftir sig tvo syni, annar þeirra aðeins þriggja ára gam­alt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina