Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Sævar Daníel: „Ég skil eftir upptökur og fleira sem ég vona að kasti ljósi á hvernig ég var myrtur“

Sævar Daníel: „Ég skil eftir upptökur og fleira sem ég vona að kasti ljósi á hvernig ég var myrtur“

„Kæru Vinir. Þetta er komið á loka­spöl­inn hjá mér. Mér langar að þakka öllum sem lögðu hönd á plóg í því að reyna fá íslenskt heil­brigð­is­kerfi til að sinna hlut­verki sínu og hafa reynt að vera til staðar. Ég skil eftir upp­tökur og fleira sem ég vona að kasti ljósi á hvernig ég var myrtur úr hvað sem maður á eig­in­lega að kalla svona gjarðir, og verði til breyt­inga fyrir aðra. Takk fyrir sam­fylgd­ina og gangi ykkur vel.“

Svo hljóðar færsla sem Sævar Daníel Kol­anda­velu, sem einnig er þekktur undir lista­manns­nafn­inu Poetrix, birti fyrr í dag á Facebook. Í sam­tali við Mannlíf seg­ist Sævar, því miður, ekki sjá fram á að heil­brigð­is­kerfið muni gera nokkuð til að bæta heilsu hans. Hann segir að upp­tökur séu  til af því þegar heil­brigð­is­menn hóta honum útskrift með lög­reglu­valdi innan hálf­tíma, þegar hann seg­ist ósjálf­bjarga.

Sævar seg­ist þegar hafa sett á stað umsókn­ar­ferli til Dignitas, sam­taka sem veita dán­ar­að­stoð í Sviss. Heilsu hans hefur hrakað gíf­ur­lega und­an­farið og hefur hann verið ósjálf­bjarga um nokk­urt skeið. Sjálfur lýsir hann þessu svo:

„Þetta er til­komið vegna þess að hrygg­ur­inn á mér er svo illa slitin að hann tog­ast of langt í sundur, og ég þarf manu­ally að halda honum í stað, ekki ósvipað ef og tjald myndi missa eina fest­ing­una við jörð­ina, og byrja fjúka til him­ins. Ég þarf bók­staf­lega að liggja og halda mér föstum í ákveðnum stell­ingum svo hrygg­ur­inn á mér liggi ekki undir frek­ari skemmdum, en honum hefur hrakað gíf­ur­lega og eru nú mest­megnis lið­banda í hálsi og baki að slitna vegna ofhreyf­ing­ar­innar og ég er ber­sýni­lega afmynd­aður.“

Hann segir að að öll venju­leg hreyf­ing togi sig í sundur og meiði óstjórn­lega, að hann sé að örkuml­ast fyrir allra augum. „Ég get til dæmis ekki farið í sturtu né rakað mig eða staðið í störfum dag­legs lífs. Ég get ekki setið upp­réttur með neinu góðu móti,“ segir Sævar.

Hann segir að Land­spít­al­inn hafi aldrei tekið rétt á hans máli. „Land­spít­al­inn hefur aldrei unnið málið mitt skil­merki­lega. Sem dæmi þá hafa ein­kenni mín hvergi verið skráð rétt í sjúkra­skrár. Sjaldn­ast hefur verið tekið alvar­lega það sem ég hef sagt. Það er nán­ast eins og maður hefði aldrei sagt það. Eftir að hafa dvalið erlendis við illan leik og fengið aðstoð mýmargra sér­fræð­inga, vinna sem hefur núna tekið 3 ár, þá liggur málið nokkuð ljóst fyrir. Eftir að þekk­ing­ar­innar hefur verið aflað þá t.d. vitum við í dag, nákvæm­lega hvaða hlutir hafa verið gerðir og hverjir ekki, hér á Íslandi,“ segir Sævar.

Sævar er nú á Land­spít­al­anum. „Eftir aðgerð á fæti, sem var fram­kvæmd um dag­inn, hafði ég dvalið á sjúkra­hót­eli Land­spít­al­ans þar sem ég upp­fyllti ekki kröfur þeirra um að vera sjálf­bjarga, en maður þarf að vera fær um að bjarga sér sjálfur niður í mat­sal og slíkt til að geta verið þar. Ég hafði ekki getað kom­ist í mat­sal í tíu daga og þær sendu mig á bráða­mót­töku með þeirri umsögn að þessi maður væri hrein­lega ósjálf­bjarga, og þyrfti lækn­is­að­stoð. Ég hef verið hérna síðan, á bráða­mót­töku, og svo lagður inn á almenna deild,“ segir Sævar.

Hann segir að síðan hann kom aftur á Land­spít­al­ann nú þá hafi hann farið fram á að tekið væri fast á máli hans. „Síðan ég kom hefur verið gerð skýr ósk um að farið sé yfir þau gögn sem til eru í mál­inu, og það lækn­is­fræði­lega unnið vel, það er að segja að ein­kennum sé haldið til haga, farið sé yfir sögu máls­ins, klínískar athug­anir gerðar, svo það sé þeim sem að því starfar skýrt, og tekin séu til athug­unar þau vís­inda­legu gögn sem fyr­ir­liggja og varpa ljósi á málið. Óskað hefur verið eftir því að farið sé yfir ferlið hingað til, sem hefur verið gata­sigti og upp­lýs­inga óreiða, til dæmis vita lækn­arnir oft­ast aðspurðir ekki hvað ein­kennin mín eru. Farið hefur verið fram á að stuðst verði við við­ur­kennd vís­indi og aðferða­fræði, en ekki gisk og álykt­anir,“ segir Sævar.

Hann segir að honum hafi ekki enn tek­ist að fá lækna til að líta á gögnin sem hann hefur með sér að utan. „Þau sýna meðal ann­ars stað­festar grein­ingar frá hæfum sér­fræð­ingum á atriðum sem vitað er að fólk lifir sjaldn­ast við án lækn­is­inn­grips. Hvort þeir hér á Land­spít­al­anum hafi ein­hverja lausn fyrir mig við því, eða hvort þeir í lækn­is­fræð­inni hér séu almennt búnir að inn­leiða nýjasta skiln­ing­inn í vís­ind­unum, er svo allt annað sam­tal. Það er að sjálf­sögðu ekki hægt að gera kröfur á það að menn geti lagað allt sem er að í heim­inum. Það er hins­vegar hægt að gera kröfu á það að byggja máls­með­ferð á stað­reyndum,“ segir Sævar.

Hann segir að með þessu áfram­haldi þá sjái hann ekk­ert framundan nema dauð­ann: „Í klínískum skiln­ingi er mér ólíft, er ósjálf­bjarga og er á síð­ustu metr­unum. Ég hef þegar sett á stað umsókn­ar­ferlið til Dignitas, sam­tök sem hjálpa term­inally ill fólki, eða þeim sem lifa við ómann­úð­lega þján­ingu með líkn­ar­sjálfs­víg, in case að allt bregð­ist. Ekki því mér líki illa við lífið, i quite enjoy it actually, heldur það er engum líft með svona áverka til lang­tíma. Ég er löngu til­bú­inn að fara. Could not care less þannig séð. Aðstand­endur og vinir mínir eru ekki jafn game í það, af ein­hverjum ástæðum, og eru að krefj­ast þess ég lifi því þeim finnst ómögu­legt ég sé að fara frá ókláruðum skáld­sögum sem voru búnar að cliffhanger-a þau og slíkt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ