Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Þorvaldur Örlygsson býður sig fram: „Síðustu mánuði hef ég fengið fjölda áskorana“

Þorvaldur Örlygsson býður sig fram: „Síðustu mánuði hef ég fengið fjölda áskorana“
Þor­valdur Örlygs­son, for­maður KSÍ – Mynd: Aðsend

Þor­valdur Örlygs­son, rekstr­ar­stjóri og íþrótta­stjóri knatt­spyrnu­deildar Stjörn­unar, hefur ákveðið að gefa kost á sér í emb­ætti for­manns KSÍ en Þor­valdur er reyndur þjálf­ari og leik­maður. Spilaði hann meðal ann­ars með Nott­ing­ham Forest, Stoke City og Oldham Athletic og þá spil­aði 41 lands­leik með íslenska lands­lið­inu. Síðan hann hætti sem leik­maður hefur hann þjálfað 8 mis­mun­andi lið með ágætis árangri. Eins og málin standa í dag eru þeir Guðni Bergsson einu fram­bjóð­end­urnir en Vanda Sig­ur­geirs­dóttir, núver­andi for­maður, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér. Kosið verður um for­manns­emb­ættið 24. febr­úar á árs­þingi KSÍ.

Frétta­til­kynn­ing Þor­valdar í heild sinni er hér fyrir neðan:

Þor­valdur Örlygs­son, rekstr­ar­stjóri og íþrótta­stjóri knatt­spyrnu­deildar Stjörn­unar, hefur ákveðið að bjóða sig fram til for­manns KSÍ á árs­þingi sam­bands­ins í næsta mán­uði. Þor­valdur, sem var atvinnu­maður í Þýska­landi og á Englandi um ára­bil, spil­aði með KA, Fram og íslenska lands­lið­inu, þjálf­aði í efstu deildum, auk þess að þjálfa yngri lands­lið Íslands, þekkir íslenska knatt­spyrnu afar vel frá öllum hliðum og segir mörg verk­efni bíða KSÍ.

„Síðustu mán­uði hef ég fengið fjölda áskor­ana um að gefa kost á mér í þetta mik­il­væga starf og eftir að hafa rætt við félags- og for­ráða­menn íslenskra knatt­spyrnu­fé­laga og heyrt skoð­anir þeirra á fjöl­mörgum þáttum íþrótt­ar­innar, hef ég ákveðið að taka áskor­un­inni. Ég deili skoð­unum, við­horfum, áherslu­at­riðum, áhyggjum og fram­tíð­ar­sýn fjöl­margra félaga minna í íslenska bolt­anum og er þeirrar skoð­unar að við þurfum betri bolta, bæði innan og utan vallar. Knatt­spyrnan hefur verið í fyrsta sæti hjá mér frá því að ég mætti með eldri bróður mínum á fyrstu æfing­una fimm ára gam­all og hún er það enn. Ég veit að þekk­ing mín, reynsla og áhugi mun reyn­ast KSÍ vel í þeim verk­efnum sem framundan eru.“

Meðal áherslu­at­riða nefnir Þor­valdur end­ur­skoðun á stefnu og hlut­verki KSÍ, ábyrgan rekstur, efl­ingu knatt­spyrnu á lands­byggð­inni, styrk­ingu kvenna­bolt­ans, end­ur­skoðun dóm­ara­mála og bygg­ingu þjóð­ar­leik­vangs.

„Við þurfum að fara í end­ur­skoðun á stefnu og hlut­verki KSÍ og rekstur þess þarf að vera ábyrgur. Ég vil auka og bæta sam­skipti lyk­il­að­ila í íslenskri knatt­spyrnu, eins og til að mynda KSÍ og ÍTF. Þá hef ég, eins og fleiri, áhyggjur af auk­inni ein­angrun félaga á lands­byggð­inni. Liðum fækkar, ferða­kostn­aður hækkar og við þurfum að grípa þar inn í. Dóm­ara­mál eru mér að sama skapi hug­leikin. Ég vil fjölga dóm­urum og myndi vilja sjá þann þátt koma inn í skóla­kerfið og auka áhuga yngri kyn­slóða á dóm­ara­starf­inu, efla þannig stétt­ina og þar með bæta dóm­gæsl­una. Ég vil taf­ar­lausar við­ræður við ríki og borg um þjóð­ar­leik­vang og tel að við eigum að end­ur­byggja Laug­ar­dals­völl upp sem slíkan.“

Meðal helstu áherslu­at­riða Þor­valdar má nefna: 

End­ur­skoða stefnu og hlut­verk KSÍ 

Tryggja ábyrgan rekstur KSÍ 

Auka og bæta sam­skipti lyk­il­að­ila í íslenskri knatt­spyrnu, t.d. KSÍ og ÍTF 

Stofna fram­kvæmda­stjórn KSÍ 

Efla kvennaknatt­spyrnu á öllum sviðum, frá gras­rót til lands­liða 

Tryggja jafn­rétti og fjölga konum innan stjórn­kerfis KSÍ 

Koma hreyf­ingu á bygg­ingu þjóð­ar­leik­vangs sem áfram verði í Laug­ar­dal 

Styrkja félags­lið á lands­byggð­inni og lækka ferða­kostnað 

Fjölga dóm­urum og koma þeim þætti inn í skóla­kerfið

Þor­valdur segir fjöl­mörg önnur atriði þarfn­ast nán­ari skoð­unar, breyt­inga og end­ur­skoð­unar við og mun hann gera grein fyrir þeim þegar nær dregur árs­þingi KSÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum