Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hvítur Suður-Afríkubúi reiddist mótmælendum á Keflavíkurflugvelli: „Þetta er siðlaust“

Hvítur Suður-Afríkubúi reiddist mótmælendum á Keflavíkurflugvelli: „Þetta er siðlaust“
Frá mót­mæl­unum Mynd: Trausti Hafsteinsson

Árið 1990 tók hópur mót­mæl­enda sig til og mót­mæltu brott­för ferða­hóps Íslend­inga til Suður-Afríku í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar, með því að syngja söngva að hætti Bantu-fólks­ins.

Aðskiln­að­ar­stefnan var alls ráð­andi í Suður-Afríku allt þar til minni­hluta­stjórnin í land­inu afnam hana árið 1994. Fjórum árum áður hóf ferða­skrif­stofan Veröld að fljúga hópum frá Keflavík til Suður-Afríku en slíkt hugn­að­ist ekki öllum. Hópur sem kall­aði sig Suður-Afr­íku­sam­tök gegn aðskiln­að­ar­stefnu stóð fyrir mót­mæli í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar þegar fyrsti hópur Veraldar mætti til vega­bréfs­á­rit­unar, á leið sinni til Suður-Afríku. Sungu mót­mæl­end­urnir söngva að hætti Bantu-fólks­ins í Suður-Afríku og sett­ust á gólfið í til­raun sinni til að hindra för ferða­lang­anna. Einn for­svars­manna hóps­ins, Sunna Snædal sagði það „sið­laust“ hjá Veröld að bjóða upp á ferð­irnar og að ferða­fólkið væri með þessu að styðja við aðskiln­að­ar­stefn­una. Hvítur Suður-Afr­íku­búi reidd­ist mót­mæl­end­unum og sagði önnur Afr­íku­ríki eiga það verr en mót­mæl­end­urnir gáfu lítið fyrir það.

DV fjall­aði um málið á sínum tíma en frétt­ina má lesa hér fyrir neðan. Athugið að orða­valið í frétt­inni lit­ast af tíð­ar­and­anum árið 1994 en hefur sem betur fer breyst.

Negrasöngur S-Afr­íku­sam­taka í Keflavlk í morgun:

Reyndu að hindra ferða­menn við vega­bréfa­skoðun

– hópur Íslend­inga lagði af stað áleiðis til S-Afríku

Hópur fólks kyrj­aði negrasöngva að hætti bantúnegra í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar í morgun til að mót­mæla brott­för ferða­hóps íslend­inga sem voru að leggja af stað áleiðis til Suður-Afríku. Mót­mæl­endur sett­ust á gólfið við vega­bréfs­skoðun og reyndu að hindra far­þega í að ganga í gegn. Flug­verðir þurftu að stugga fólk­inu í burtu. Ekki kom þó til telj­andi átaka. Hópurinn nefn­ist Suður-Afr­íku­sam­tök gegn aðskiln­að­ar­stefnu. „Við erum að mót­mæla skipu­lögðum hóp­ferðum Veraldar til Suður-Afríku. Þetta var aug­lýst fyrst fyrir einum mán­uði og fyrsti hóp­ur­inn er að fara núna. Við mót­mælum brott­fór fólks­ins,“ sagði Sunna Snædal, einn for­svars­manna mót­mæl­enda, í sam­tali við DV í morgun. „Þetta er sið­laust. Í fyrsta lagi er fólkið að styðja við bakið á aðskiln­að­ar­stefn­unni með því að versla við flug­fé­lög sem fljúga til Suður-Afríku og styrkja yfir­völd. Auk þess er ólög­legt fyrir far­þeg­ana að taka með sér muni þaðan þar sem við­skipta­bann ríkir við Suður-Afríku. Það er ekki vafa­mál að ferða­fólkið mun taka slíkt með sér heim,“ sagði Sunna.

Hún segir að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu sé ekki ólög­legt að koma með muni frá Suður-Afríku þar sem slíkt stang­ast á við ferða­frelsi ein­stak­linga. „Við vitum að ef eitt­hvað kemur fyrir ferða­menn­ina er ekk­ert sendi­ráð frá Norð­ur­löndum í land­inu. Ef fólkið verður rænt eða brotið á því eiga íslend­ing­arnir engan að og eru algjör­lega á eigin ábyrgð. Við höfum setið og sungið bar­áttu­söngva á bantúmáli – sömu lög og negrar syngja við sín mót­mæli. Við sett­umst fyrir framan vega­bréfs­skoð­un­ina en vorum færð þaðan,“ sagði Sunna. Hún sagði að við­brögð far­þega hefðu verið á þá leið að flestir létu sem þeir heyrðu ekki söngvana. Hvítur Suður-Afr­íku­maður varð reiður og benti fólk­inu á að önnur ríki í Afríku væru verr stödd. „Ég get ekki séð hvað það kemur mál­inu við þegar við erum að berj­ast gegn mann­rétt­inda­brotum í hans landi,“ sagði Sunna Snædal. Ferða­lang­arnir áttu að fara með flug­vél klukkan hálf níu til London.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum