Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kolla notar hugvíkkandi plöntur til ferðalaga – Dvaldi meðal frumbyggja Amazon í tvo mánuði

Kolla notar hugvíkkandi plöntur til ferðalaga – Dvaldi meðal frumbyggja Amazon í tvo mánuði
Kolla með frum­byggjum Amazon. Mynd: Aðsend

Nýjasti gestur Arnórs og Gunnars í Alkast­inu er ferða­fröm­uð­ur­inn Kolbrún Karls­dóttir. 

Kolla, eins og hún er kölluð er þó ekki ferða­fröm­uður í hefð­bundnum skiln­ingi heldur er um hug­víkk­andi ferða­lög að ræða. Kolla kynnt­ist plönt­unni ayahuasca fyrir mörgum árum síðan og hefur tekið algjöra stefnu­breyt­ingu í lífi sínu, síðan að hún fór í sína fyrstu athöfn. Síðan þá hefur hún farið í yfir 100 ayahuasca-athafnir og upp­lifir að í gegnum það ferli hafi hún heil­ast og öðl­ast alveg nýja sýn á bæði sitt eigið líf sem og sam­fé­lagið sem hún til­heyrir. 

Snemma í ferl­inu varð hún fyrir reynslu þar sem hún sér og upp­lifir kyn­ferð­is­lega mis­notkun sem hún varð fyrir aðeins árs gömul er hún var í gæslu hjá dag­mömmu. Þessi reynsla kom til hennar í einu ferða­lag­inu og erf­iðir tímar tóku við þar sem hún þurfti að ná að horfast í augu við hvað hafði gerst og að finna leið, eða leiðir, til að ná að umlykja þetta litla barn öllum þeim kær­leik sem það átti skilið. Afleið­ingin af því er sátt og fyr­ir­gefn­ing sem gerir henni kleift til að fara í þessa reynslu og deila henni án þess að detta inn í þær erf­iðu til­fin­ingar sem fylgdu því að hafa upp­lifað kyn­ferð­is­lega mis­notkun. 

Ayahuasca-athafnir eru orðnar gríð­ar­lega útbreiddar á Íslandi sem og víðar. Þær eru haldnar við alls­konar aðstæðum og af alls­konar fólki. Kolla segir að mik­il­vægt sé að réttir aðilar haldi utan um þessar athafnir þar sem fólk kemst í sitt við­kvæm­asta ástand oft á tíðum. Þessir aðilar sem hún er að vísa til eru frum­byggjar Amazon, en í tvígang hefur hún ferð­ast til Suður Ameríku og þá síð­ast inn í frum­skóg Amazon þar sem hún dvaldi í tvo mán­uði með inn­fæddum. Þessir frum­byggjar segir hún að séu mann­eskjur með allt aðra sýn og nálgun gagn­vart öllu lif­andi og félags­lega standi þau framar okkur Vest­ur­landa­búum. Þau mæta fólki með algjörum kær­leik og dæmi ekki annað fólk eins og við á Vest­ur­lönd­unum erum svo gjörn á að gera. Þessir seið­menn eða sham­anar eru á annarri tíðni sem þýðir að þeir lesa orku fólks eins og opna bók og geta meira að segja kallað fram rými sem í dag er ekki hægt að mæla með nútíma vís­indum þar sem heilun fer fram. Kolla vill meina að út af þess­ari háu tíðni geti þessir frum­byggjar átt sam­skipti, ekki bara við skóg­inn og plönt­urnar, heldur líka við verur úr öðrum víddum sem eru hér á jörð­inni aðeins í þeim til­gangi að leið­beina okkur. Þessar verur sem Kolla sjálf hefur tals­verða reynslu af, segj­ast ekki gera sig sýni­legar hverjum sem er því mann­fólkið er ein­fald­lega of gróft og óheflað í sam­skiptum og flest með engu móti til­búin í sam­spil kær­leika og flæðis. Þess vegna haldi þessar verur sér á tíðni sem við náum ekki að fanga nema með hjálp hinna ýmsu hug­víkk­andi efna og nefnir í því sam­hengi ayahuasca og psilocybin-svepp­inn.

Shaman frá Amazon.

Kolla not­ast mikið við psilocybin-svepp­inn en hún fer með vin­konum sínum í ferða­lög þar sem ásetn­ing­ur­inn er að heila og bæta jörð­ina og færa hana og okkur mann­fólkið sem henni til­heyrir yfir á hærri tíðni svo við hættum að meiða hvort annað í orðum og gjörðum. Svepp­ur­inn, sam­kvæmt Kollu, er gef­inn okkur til þess einmitt að opna hug okkar og hjarta svo að við náum betur að stíga upp fyrir ein­stak­lings­bundin, sem og sam­eig­in­leg áföll; kom­ast úr ótta sem ann­ars virkar sem und­ir­liggj­andi afl allra þeirra skap­gerð­ar­bresta sem hindra okkur mann­fólkið í and­legum og félags­legum þroska.

Kolla dvaldi meðal frum­byggja Amazon í tvo mán­uði.

Þessa dag­ana eru tveir töfra­læknar, frum­byggjar frá Amazon, staddir á Íslandi og munu þeir dvelja hér á landi út apr­íl­mánuð og bjóða upp á alls­konar heil­un­ar­ferðir þar sem plöntur og seiði úr frum­skóg­inum eru notuð. Hægt er að ná sam­bandi við Kollu á Facebook undir nafn­inu Kolbrún Karls­dóttir þar sem hún getur veitt upp­lýs­ingar um hvernig er hægt að kom­ast í teng­ingu við frum­byggj­ana sem hún fór svo vel yfir í við­tal­inu. 

Alkastið er í boði Þvotta­húss­ins og hægt er að sjá þátt­inn í heild sinni hér á spil­ar­anum fyrir neðan en einnig má finna Alkast Þvotta­húss­ins á öllum helstu streym­isveitum eins og Spotify og Youtube þar sem hægt er að tengja við rás­ina og fá nýj­ustu við­tölin frítt heima í stofu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum