Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Tónlistarmaðurinn missti allt eftir ásakanir um nauðgun: Birgir kærir Dagmar til lögreglu

Tónlistarmaðurinn missti allt eftir ásakanir um nauðgun: Birgir kærir Dagmar til lögreglu
Birgir er búinn að kæra. Mynd: rt

Tón­list­ar­mað­ur­inn Birgir Sæv­ars­son hefur kært konu til lög­reglu fyrir að bera á sig rangar sakir og fyrir meið­yrði. Konan, Dagmar Rós Svövu­dóttir, kærði Birgi fyrir nauðgun. Hún steig fram í þætt­inum Eigin konur og sak­aði Birgi um að hafa nauðgað sér þegar hún var gestur í brúð­kaupi hans á Ítalíu 6. júlí 2019. Lög­reglan felldi niður rann­sókn og mál­inu var vísað frá.

Birgir sagði sögu sína í podcastinu Mann­líf­inu. Þar kom fram að hann missti vinn­una og hrakt­ist úr landi vegna ásak­ana sem vísað var frá. Hann og eig­in­kona hans skildu og Birgir reyndi sjálfs­víg. Í dag býr hann í Noregi.

Sævar Þór Jónsson lög­maður fer með málið fyrir hönd Birgis. „Fyrir hönd Birgis Sæv­ars­sonar, sbr. fylgi­skjal 1, er hér með lögð fram kæra á hendur Dagmar Rós Svövu­dóttur fyrir rangar sak­ar­giftir og meið­yrði og þess kraf­ist að málið fari í við­eig­andi far­veg hjá lög­reglu,“ segir í kærunni sem Mannlíf hefur undir höndum.

Birgir hefur lagt fram kæru vegna rangra sak­ar­gifta.

Málið er reifað frá sjón­ar­hóli Birgis í kærunni og sam­skipti hans og Dagmarar í brúð­kaup­inu á Ítalíu fyrir tæpum 5 árum rakin:

„Í stuttu máli eru atvik máls­ins þessi að kær­andi og fyrr­ver­andi eig­in­kona hans, Sylvía Dögg Ást­þórs­dóttir, héldu brúð­kaup sitt í stórri lúx­usvillu, Villa Teloni, í litlu þorpi á Ítalíu hinn 6. júlí 2019. Lúx­usvillan er á þremur hæðum og hjóna­svítan er stað­sett á efstu hæð. Kærða var gestur í brúð­kaup­inu en hún var þar stödd ásamt unnusta sínumi, sem var vinur kær­anda. Eftir mið­nætti brúð­kaups­nótt­ina, þegar klukkan var rétt að verða eitt, var kær­andi staddur við sund­laug lúx­usvill­unnar og vinir hans hentu honum í laug­ina. Kærandi fór upp úr laug­inni, gekk að dans­gólf­inu, tók upp hljóð­nema, þakk­aði gestum fyrir kom­una og bauð þeim að fá sér pylsur á grill­svæði. Sagði kær­andi eig­in­konu sinni að hann ætl­aði að skipta um föt og ná í pen­inga til að greiða þjón­unum þjórfé. Kærða heyrði sam­talið og spurði hvort hún mætti koma með kær­anda en hann taldi kærðu ætla að fara á sal­ernið. Þegar upp á her­bergi var komið fékk kærða sér sæti á rúm­inu en kær­andi þurrk­aði sér, hafði fata­skipti og tók saman þjórfé. Á meðan spjöll­uðu þau og kær­andi varð fljótt áskynja að kærða var nokkuð ölvuð og end­ur­tók sig mikið. Kærða sagði að hún og unnust­inn ætl­uðu að gista í vill­unni þessa nótt en ekki á hót­el­inu sem þau voru á eins og til stóð. Kærandi sagði að þau gætu gist í auka rúmi í her­bergi þeirra hjóna en þá hafi kærða svarað svo: „Nei, þetta er rúmið ykkar Sylvíu“. Í kjöl­farið hafi þau knús­ast í um það bil 10 sek­úndur og hafi það verið eina snert­ingin milli þeirra og þau bæði verið full­klædd. Voru þau um 15-20 mín­útur í her­berg­inu og gengu saman út. Nokkru eftir að þau komu út aftur sá kær­andi kærðu fyrir utan húsið og var hún að leita af unnusta sínum. Bað kærða kær­anda, eig­in­konu hans og fleiri brúð­kaups­gesti að aðstoða sig við að finna unnust­ann og sýndi kærða kær­anda skila­boð frá unnust­anum, þar sem unnust­inn krafði kærðu svara um hvað gefði gerst í her­berg­inu nokkru áður. Kærandi fékk sér að borða og fór svo að sofa ásamt eig­in­konu sinni. Fór svo að kærða ásamt unnusta dvöldu í lúx­usvill­unni yfir nótt­ina.

Leitað að sjúkrahúsi

Daginn eftir hittu kær­andi og eig­in­kona hans hann unnusta Dagmarar, sem horfði illi­lega á hjónin en þau fengu ekki neinar skýr­ingar á hvað var í gangi fyrr en síðar um dag­inn. Kærða hélt því fram að kær­andi hafi nauðgað henni um nótt­ina. Á mánu­deg­inum hafi kær­andi ásamt eig­in­konu ekið á milli sjúkra­húsa í því skyni að fá ein­hvers konar skoðun vegna ásak­ana kærðu en það hafi ekki gengið.

Dagmar Rós Svövu­dóttir kærði og var kærð.

Eins og að framan greinir lagði kærða fram kæru á hendur kær­anda og var málið fellt niður og vís­ast til afstöðu rík­is­sak­sókn­ara til kæru á fylgi­skjali 2.

Byggir kær­andi á að kærða hafi með rangri kæru og röngum fram­burði við skýrslu­tökur hjá lög­reglu leit­ast við að kær­andi yrði sak­aður um kyn­ferð­is­brot. Með kæru þess­ari kærir kær­andi því kærðu til lög­reglu vegna rangra sak­ar­gifta“.

Allt frá því að kærða ásak­aði kær­anda um nauðgun hefur líf hans umturn­ast enda var hann sak­aður um alvar­lega refsi­verða hátt­semi. Kærandi stendur í þeirri trú að kæra kærðu á sínum tíma hafi hrint af stað fleiri ásök­unum á hendur honum, þ.e. að tvær vin­konur kærðu ákváðu að kæra kær­anda fyrir kyn­ferð­is­brot en á fylgi­skjali 3 má sjá þær allar saman á mynd áður en þær lögðu fram kærur á hendur kær­anda.

Rekinn frá þorrablóti

Kærða hefur farið mik­inn á sam­fé­lags­miðlum og tjáð sig um að kær­andi hafi brotið á sér kyn­ferð­is­lega og jafn­framt nafn­greint kær­anda og birt myndir af honum, sbr. fylgi­skjöl 4-8. Auk þess hefur kærða jafn­framt fylgst með því sem kær­andi er að gera og reynt að hafa áhrif á líf hans, svo sem að hann fái verk­efni við tón­list eða sem trú­bador, nú síð­ast í tengslum við að kær­andi var ráð­inn sem trú­bador á þorra­blóti Íslend­inga­fé­lags­ins í Stavan­ger sem átti að fara fram hinn 17. febr­úar sl. en var aflýst sökum þess að kærða sendi félag­inu kvart­anir vegna þessa, sbr. fylgi­skjöl 9 og 10.

Fjöl­miðlar hafa fjallað um málið, sbr. fylgi­skjöl 11-13, sem hefur reynst kær­anda erfitt. Jafn­framt hefur aðgerð­ar­hóp­ur­inn Öfgar sent frá sér yfir­lýs­ingar og stuðn­ing við kærðu, sbr. fylgi­skjöl 14-18, ásamt því að nafn­greina og birta myndir af kær­anda. Þá hefur skap­ast umræða um kær­anda opin­ber­lega á sam­fé­lags­miðlum, í lok­uðum og opnum hópum, sbr. fylgi­skjöl 19 og 20. Hefur kærði því stigið fram og veitti við­tal við Mannlíf í nóv­em­ber 2023 vegna máls­ins, sbr. fylgi­skjöl 21-23.

Hjónaskilnaður

Hinn rangi fram­burður kærðu hefur haft umfangs­mikil áhrif á kær­anda. Í kjöl­far þessa varð m.a. hjóna­skiln­aður en kær­andi og fyrrum eig­in­kona eiga saman þrjú börn. Ásamt því hefur fram­an­greint leitt til þess að kær­andi missti störf sín en hann starf­aði ann­ars vegar sem tón­mennta­kenn­ari í Folda­skóla og hins vegar sem tón­list­ar­maður og trú­bador, sbr. fylgi­skjöl 24-25. Aukin heldur hefur kær­andi orðið fyrir miklu and­legu tjóni. Hann glímir við alvar­legt þung­lyndi, kvíða og áfallastreituröskun. Hefur þetta leitt til þess að kær­andi hefur upp­lifað hugs­anir um dauð­ann og hefur hann í tvígang reynt sjálfs­víg, sem hefur ekki tek­ist en voru þess eðlis að hann þurfti inn­lögn á spít­ala eftir til­raun­irnar. Þá hefur hann stundað komur til sál­fræð­ings sl. fjögur ár. Haustið 2023 flutti kær­andi til Noregs vegna and­legrar van­líð­unar þrátt fyrir að eiga nú fjögur börn á Íslandi.

Að teknu til­liti til atvika sem lýst er hér að framan og þeim gögnum sem lögð eru fram með kærunni er þess kraf­ist að málið fari í við­eig­andi far­veg hjá lög­reglu. Með kæru þess­ari vill kær­andi leita réttar síns gagn­vart kærðu. Kærandi telur fram­an­greinda hátt­semi kærða varða við XV. kafla almennra hegn­ing­ar­laga nr. 19/1940, einkum ákvæði 148. gr. lag­anna og eftir atvikum XXV. kafla sömu laga. Jafn­framt er óskað eftir að lög­regla heim­færi brot þessi á við­eig­andi laga­á­kvæði almennra hegn­ing­ar­laga.

Í ljósi alls fram­an­greinds er þess kraf­ist að málið verði rann­sakað og hin kærða látin sæta refsi­á­byrgð lögum sam­kvæmt. Þá áskilur kær­andi sér allan rétt til þess að leggja fram bóta­kröfu á síð­ari stigum máls­ins eftir því sem til­efni gefur til“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag