Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Arnar Þór kærir skopmynd Vísis: „Framsetningin er hlutdræg og meiðandi“

Arnar Þór kærir skopmynd Vísis: „Framsetningin er hlutdræg og meiðandi“
Arnar Þór Jónsson er for­maður Lýð­ræð­is­flokks­ins

Arnar Þór Jónsson for­seta­fram­bjóð­andi er allt annað en sáttur með mynd sem Halldór Bald­urs­son teikn­ari birti fyrr í dag á Vísi og hefur tekið þá ákvörðun að kæra Halldór til siða­nefndar Blaða­manna­fé­lags Íslands.

Arnar Þór sem er sjálfur fyrr­ver­andi hér­aðs­dóm­ari telur að ýjað sé að því að hann sé nas­isti í mynd­inni sem Halldór teikn­aði en alls eru sjö for­seta­fram­bjóð­endur á mynd­inni og er t.d. Jón Gnarr klæddur sem trúður og Ásdís Rán í bik­iní með kan­ínu­eyru. Arnar greinir frá þess­ari ákvörðun sam­fé­lags­miðl­inum Facebook.

„Í dag birt­ist á for­síðu Vísis mynd eftir Halldór Bald­urs­son sem brýtur gegn siða­reglum Blaða­manna­fé­lags Íslands. Þessa mynd­birt­ingu hef ég kært til siða­nefndar félags­ins og kraf­ist þess að málið verði tekið til skjótrar með­ferðar. Á mynd­inni er und­ir­rit­uðum stillt upp í bún­ingi sem aug­ljós­lega er ætlað að líta út fyrir að vera bún­ingur alræð­is­sinna. Þessi fram­setn­ing er hvorki mál­efna­leg né fyndin, heldur meið­andi og ómál­efna­leg. Und­ir­rit­aður hefur á síð­ustu árum ritað tugi greina í blöð og tíma­rit, sam­tals ca. 1400 bls. Ekkert í því efni rétt­lætir þá fram­setn­ingu sem sjá má á umræddri mynd Halldórs Bald­urs­sonar. Und­ir­rit­aður hefur flutt fjölda fyr­ir­lestra og erinda á almennum vett­vangi, haldið úti blogg­síðu, flutt útvarps­á­vörp, mætti í tugi við­tala o.fl. Þar er heldur ekk­ert sem gefur Halldóri né Vísi lög­mætt til­efni til að setja per­sónu mína í það sam­hengi sem þarna getur að líta. Sá bún­ingur sem hér um ræðir er tákn­mynd alls þess sem ég hef talað gegn, þ.e. vald­boðs, stjórn­lyndis, ofríkis, kúg­unar, mann­fyr­ir­litn­ingar, stjórn­lyndis og alræðis. Ég er málsvari klass­ísks frjáls­lyndis, frjáls­ræðis, ein­stak­lings­frelsis, lýð­ræðis, mann­úðar, mann­gæsku, mann­rétt­inda og vald­dreif­ingar. Fram­setn­ing Halldórs og Vísis er gróf aðför að mann­orði mínu og þess er kraf­ist að bæði teikn­ar­inn og fjöl­mið­ill­inn verði áminntir fyrir brot, rang­færslur leið­réttar, umrædd mynd fjar­lægð og ég beð­inn afsök­unar, bæði form­lega og skrif­lega,“ skrifar dóm­ar­inn fyrr­ver­andi.

„Fram­setn­ingin er bæði óheið­ar­leg og ósann­gjörn. Hefði Halldór skrifað þetta og vísir birt aðdrótt­anir þess efnis að und­ir­rit­aður væri nas­isti / fas­isti, þá félli það vænt­an­lega undir skil­grein­ingu á hat­urs­orð­ræðu, þar sem alið væri andúð og for­dómum gegn mér. Fram­setn­ingin er hlut­dræg og meið­andi. Myndin krist­allar ófag­leg vinnu­brögð og brýtur gegn skyldum blaða­manna með því að grafa undan lýð­ræð­is­legri tján­ingu og afbaka mál­efna­lega umræðu. Fram­setn­ingin brýtur gegn skyldum blaða­manna gagn­vart almenn­ingi sem á rétt á að fá sannar upp­lýs­ingar settar fram á sann­gjarnan og heið­ar­legan hátt. Fram­setn­ingin hefur ekki sann­leik­ann að leið­ar­ljósi, brenglar stað­reyndir og felur í sér órök­studdar ásak­anir. Blaða­maður og fjöl­mið­ill­inn hafa ekki gætt að þeirri skyldu sinni að byggja fram­setn­ingu sína á áreið­an­legum upp­lýs­ingum. Fram­setn­ingin styðst ekki við neitt sem kalla mætti hlut­lægni. Þegar þetta er ritað hefur Blaða­manna­fé­lagið stað­fest mót­töku á kæru minni,“ skrifar hann að lokum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum