Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Kakódrottningin Júlía: „Hristi upp í fólki með því að vera algjörlega ég sjálf“

Kakódrottningin Júlía: „Hristi upp í fólki með því að vera algjörlega ég sjálf“
Júlía Ótt­ars­dóttir Mynd: Trausti Hafsteinsson

Júlía Ótt­ars­dóttir gjör­breytti um lífs­stíl aðeins 19 ára gömul og fór frá djammi og stór­reyk­ingum yfir í að halda kakóser­emón­íur fyrir Íslend­inga. Júlía, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, seg­ist hafa fundið köllun í að breyta lífi sínu og að eftir það hafi hún aldrei snúið við:

„Það ger­ist í lífi okkar allra að við fáum kall til að vakna til vit­undar, en svo er bara spurn­ing hvort við séum nógu tengd til þess að hlusta. Ég fékk þetta kall þegar ég var mjög ung og hlýddi því sem betur fer. Ég flutti til Dan­merkur þegar ég var 19 ára gömul. Mér leið eins og ég yrði að kom­ast aðeins í burtu frá Íslandi. Ég var byrjuð að djamma og það var mjög gaman, en svo varð það meira og meira og á ein­hverjum punkti varð það of mikið fyrir mig. Ég fann að það væri eitt­hvað meira í líf­inu en bara þessi lífs­stíll og það var eitt­hvað að kalla mig í aðra átt. Þannig að ég flutti til systur minnar í Danmörku, þar sem ég var allt í einu komin bara út í nátt­úr­una, byrjuð að borða hollan mat, hægja á öllu og allt breytt­ist. Ég hafði alltaf verið mikið nátt­úru­barn, en teng­ingin hafði rofnað, en þarna kvikn­aði hún aftur og hægt og rólega breytt­ist allt. Ég hafði verið að reykja pakka á dag, en ég hætti bæði að reykja og drekka á þessu tíma­bili og ég fann hvernig ég fór öll að end­ur­nær­ast og tengj­ast upp á nýtt. Ég trúi því að við séum öll nátt­úru­börn og getum tengt okkur við inn­sæið með því að tengj­ast móður jörð. En afteng­ingin er orðin mikil út af lífs­stílnum okkar. Hvort sem það er mat­ar­ræði, streita, of lítil hvíld, hreyf­ing­ar­leysi eða skortur á nánd.“ segir Júlía, sem fékk að kynn­ast alls kyns óhefð­bundnum hlutum í Danmörku. Eitt af því var að fara í kakóser­emóníu:

„Ég var nýkomin til Kaup­manna­hfnar og þar er mér boðið í kakóser­emóníu í fyrsta skipti. Ég hafði ekki hug­mynd um hvað það væri, en ákvað að slá til og láta koma mér á óvart. Það má segja að það hafi ekki verið aftur snúið eftir það. Ég end­aði svo í Gvatemala, þar sem ég lærði allt sem hægt er að læra um þessa mögn­uðu plöntu og hvernig er hægt að vinna með hana. Fyrst þegar ég kom með þetta til Íslands og byrj­aði að halda ser­emí­ón­íur fann ég hvað fólki fannst þetta skrýtið og það var góð æfing í áliti ann­arra. En hægt og rólega hefur þetta gjör­breyst og fólk er upp til hópa orðið mjög opið í dag,“ segir Júlía sem lærði af heima­fólki hvernig ætti að vinna með kakó-plönt­una og hefur í meira en tíu ár haldið kakó-ser­emón­íur á Íslandi. Hún segir að fyrst um sinn hafi hún fengið góða æfingu í áliti ann­arra, sem sé frá­bær skóli:

„Ég finn mikla breyt­ingu, en það er samt örugg­lega ennþá fullt af fólki sem dæmir mig fyrir það sem ég er að gera. Hvort sem það er að vera alls­ber úti í nátt­úr­unni, halda kakóser­emón­íur eða annað. En mér er bara skít­sama. Af hverju ætti ég að vera að gefa lífs­ork­una mína í ótta við álit ann­arra. Það er eig­in­lega bara alveg galið ef maður hugsar um það. Fyrst var þetta alveg æfing og ég fann dóm­hörk­una mjög vel, en núna lít ég nán­ast á það sem skyldu mína að hrista aðeins upp í fólki með því að vera ég sjálf.“

Júlía seg­ist trúa því að fólk sé að vakna til vit­undar um að taka ábyrgð á eigin lífi og eigin hegðun:

„Við lifum á tímum þar sem sjálfs­á­byrgð er algjört lyk­il­at­riði. Við höfum lifað í þeirri trú að kerfið muni ein­hvern vegin bjarga okkur, eða að það sé ein­hver að passa upp á okkur, en það er ekki þannig. Við verðum sjálf að taka ábyrgð á eigin heilsu og vellíðan. Við getum ekki bara gefið kraft­inn okkar frá okkur með því að fara í sömu átt og allir hinir og treysta því að ein­hver annar muni bjarga okkur. Við búum í heimi sem er upp­fullur af eit­ur­efnum, skökku mat­ar­ræði og slæmum lífs­stíl, en svo verðum við stein­hissa ef við verðum kvíðin eða þung­lynd og gerum ekki teng­ingu við lífs­stíl­inn.“

„Leiðin áfram er að við byrjum að átta okkur á því að innst inni erum við öll eitt og við erum öll í þessu saman. Þessi aðskiln­aður sem stöðugt er verið að selja okkur inn í gerir engum gott. Við og hinir virð­ist hafa verið lög­málið í langan tíma, en ég trúi því að við séum að vakna til vit­undar um að aðskiln­aður og dóm­harka er það sem hefur búið til flest okkar vanda­mál í gegnum mann­kyns­sög­una. Þegar maður bendir á aðra þá eru þrír fingur að benda til baka á mann sjálfan. Það er gott að vera alveg viss um að maður sé búinn að taka til hjá sjálfum sér áður en maður bendir á aðra og dæmir annað fólk. En vakn­ingin er hafin og ég er sann­færð um að það verður ekki aftur snúið og að það er eitt­hvað mjög fal­legt framundan.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Júlíu og öll við­töl og pod­köst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu