Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Ríflega helmingur ökumanna notar síma undir stýri – Sláandi niðurstöður Samgöngustofu

Ríflega helmingur ökumanna notar síma undir stýri – Sláandi niðurstöður Samgöngustofu

Rúmlega fjórð­ungur Íslend­inga lætur síma­notkun ann­arra í umferð­inni trufla sig mikið en nota samt sjálf sím­ann undir stýri. Þetta kemur fram í nýrri könnun Gallup fyrir Sam­göngu­stofu sem fram­kvæmd var í júní 2024. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu Sam­göngu­stofu.

Í maí ýttu Sjóvá og Sam­göngu­stofa úr vör her­ferð­inni Ekki taka skjá­hætt­una. Markmið hennar er að vekja athygli á þeirri hættu sem skjá­notkun skapar í umferð­inni. Töluverð umfjöllun hefur verið um her­ferð­ina og ákvað Sam­göngu­stofa því að láta kanna aftur við­horf öku­manna til far­síma­notk­unar undir stýri.

Samkvæmt frétta­til­kynn­ing­unni eru nið­ur­stöður könn­un­ar­innar þær að næstum helm­ingur öku­manna segir far­síma­notkun ann­arra í umferð­inni trufla sig mjög mikið eða frekar mikið, eða 45,7 pró­sent, og 30 pró­sent segja hana trufla sig lítið sem ekk­ert. Um 60 pró­sent af þeim 45,7 pró­sentum sem trufl­ast mikið af síma­notkun ann­arra nota sím­ann sjálf við akstur og því er rúm­lega fjórð­ungur Íslend­inga í þeim hópi fólks sem trufl­ast af síma­notkun ann­arra í umferð­inni en notar þó sím­ann sjálft undir stýri.

Rúmlega helm­ingur öku­manna á það til að nota far­sím­ann undir stýri.

54,1 pró­sent eiga það til að nota far­sím­ann á ferð og 55,4 pró­sent eiga það til að nota hann á rauðu ljósi sem bendir til að nán­ast allir sem eiga það til að nota sím­ann á rauðu ljósi gera það líka á ferð. Athygli vekur að mjög fáir eru með harða afstöðu gagn­vart því að nota sím­ann aðeins á rauðu ljósi en aldrei á ferð.

Í ljós kom að 10,6 pró­sent nota alltaf akst­urs­still­ingu á far­síma, fáir nota hana stundum, sjaldan eða oft. Einnig kom fram að 23,8 pró­sent vita af henni en nota hana ekki og 56,1 pró­sent hafa ekki heyrt um hana. Hér er því rými til úrbóta en akst­urs­still­ing er góð leið til að hafa hemil á síma­notkun undir stýri.

Fram kemur í frétta­til­kynn­ing­unni að her­ferð Sjóvá og Sam­göngu­stofu, Ekki taka skjá­hætt­una varpi ljósi á þá síma­notkun sem á sér stað undir stýri í dag og er henni líkt við sam­bæri­lega notkun tækja sem frekar voru notuð á síð­ustu öld. Sem dæmi hefði engum dottið í hug, hvorki á síð­ustu öld né núna, að skrifa bréf á rit­vél sam­hliða því að aka bíl en sú hegðun er í raun sam­bæri­leg við að skrifa skila­boð á síma. Trufl­unin er sú sama, það er að segja, hug­ur­inn snýr sér að skila­boð­unum og við erum ekki með athygl­ina við akst­ur­inn. Hættan er sam­bæri­leg en af ein­hverjum ástæðum sam­þykkjum við aðra hegð­un­ina en ekki hina.

Hægt er að kynna sér átakið á vef­síð­unni https://skjahaetta.is/. Þar má nálg­ast góð ráð og upp­lýs­ingar til að sporna gegn akstri undir skjá­hrifum en þar er einnig að finna fræðslu­mynd­bönd sem sýna hvernig setja á upp akst­urs­still­ingu fyrir far­síma. Þannig má forð­ast það að taka skjá­hættu í umferð­inni og stuðla með því að eigin öryggi og ann­arra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum