Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fötluð samfélagsmiðlastjarna mætir gríðarlegu hatri í athugasemdum:„Þú ættir bara að drekkja honum“

Fötluð samfélagsmiðlastjarna mætir gríðarlegu hatri í athugasemdum:„Þú ættir bara að drekkja honum“
Shane og Hannah, eig­in­kona hans. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Rit­höf­und­ur­inn og sam­fé­lags­miðla­stjarnan Shane Burcaw skrif­aði hjart­næma færslu á Facebook á dög­unum en þar tal­aði hann um and­styggi­legar athuga­semdir sem skrif­aðar voru við mynd­band sem hann birti á sam­fé­lags­miðlum en mynd­bandið sló ræki­lega í gegn.

Shane er bund­inn við hjóla­stól en mynd­bönd sem hann og eig­in­kona hans, Hannah birta á sam­fé­lags­miðl­unum vekja gjarnan athygli fyrir húmor en þau birta einnig mynd­bönd þar sem þau ræða um fatl­anir og hjálpa áhorf­endum að skilja betur heim fatl­aðra. Fyrir ólymp­íu­leik­ana í París í ágúst, tóku þau þátt í vin­sælu „trendi“ eins og það kall­ast á ensku, þar sem fólk birti mynd­skeið af sér þar sem sjá mátti hversu arfa­slakir íþrótta­menn það væri og við mynd­skeiðin var yfir­leitt ritað eitt­hvað á borð við „ég náði því miður ekki ólymp­íu­lág­mark­inu“. Shane og Hannah birtu mynd­skeið þar sem Hannah kemur Shane var­lega ofan í sund­laug en við mynd­skeiðið skrif­aði Shane: „Því miður komst ég ekki í dýf­ing­ar­liðið fyrir Ólymp­íu­leik­ana 2024“.

„Hæ allir, Shane hér. Þetta er sárs­auka­fullt að skrifa, en verður að vera gert. Mynd­skeið frá okkur hefur nú slegið ræki­lega í gegn, sem ætti að vera ástæða til þess að gleðj­ast. Þess í stað neyðir þetta mig til þess að horfast í augu við þá sárs­auka­fullu stað­reynd að bók­staf­lega hund­ruðir þús­unda mann­eskja hata mig og telja mig til­gangs­lausan vegna fötl­unar minnar.“ Þannig hefst færsla Shane en því næst útskýrir hann málið:

„Ég skal útskýra … Mynd­skeiðið er nokkuð ein­falt: Það er æði í gangi þar sem fólk birtir fyndin mynd­skeið þar sem þau sjást mis­takast hrap­ar­lega í íþróttum, með kald­hæðnum texta þar sem fólk „til­kynnir“ að það hafi ekki náð Ólymp­íu­lág­mark­inu þetta árið. Þar sem við höfum gaman af því að gera grín að okkur sjálfum, pass­aði þetta æði full­kom­lega við okkur, þannig að við tókum þátt í æðinu og birtum mynd­skeið af mér „dýfa“ mér í sund­laug, nema að dýf­ingin mín var aug­ljós­lega bara Hannah að leggja mig var­lega ofan í vatnið. Textinn minn til­kynnti  að ég hefði „því miður ekki kom­ist í dýf­ing­ar­liðið fyrir Ólymp­íu­leik­ana 2024“. Í besta falli kjána­legt, nokkuð heimsku­legt í versta falli, en pass­aði æðinu full­kom­lega.“

Mynd­bandið sló ræki­lega í gegn eins og áður segir en nærri því 20 millj­ónir hafa skoðað það. „Í augna­blik­inu, hafa nærri því 20 millj­ónir horft á mynd­bandið. Í okkar starfi, er það frá­bær árangur. Ég ætti að vera him­in­lif­andi. Ég ætti að vera stoltur. Ég ætti að vera að fagna. En vitið þið hvað gerir það erfitt fyrir mig að finna þessar til­finn­ingar? Athuga­semd­irnar sem birt­ast í hrönnum við mynd­bandið. Leyfið mér að deila með ykkur sumu af þeim hrotta­lega fáfróðu og skelfi­lega hat­urs­fullu hlut­unum sem fólk fann sig knúið til að láta út úr sér við þetta létta og skemmti­lega mynd­band sem ég bjó til.“

Sagt er að grimmasta dýr ver­aldar sé mann­eskjan og athuga­semd­irnar sem Shane birtir næst í færsl­unni rennur sanna­lega stoðum undir þá stað­hæf­ingu.

„Í efstu athuga­semd­inni segir: „Það er alltaf mik­il­vægt að þvo græn­metið sitt“, en þar er átt við að ég sé græn­meti. Athuga­semdin er með yfir 97.000 „læks“. Það þýðir að næstum því hund­ruð þús­und raun­veru­legar mann­eskjur á þess­ari jörð, eru sam­mála þess­ari nið­ur­lægj­andi móðgun! Í næstu athuga­semd, sem er með 79.000 „læks“ segir: „Ég er enn að reyna að átta mig á því að þau séu í sam­bandi“. 10.000 „læks“: „Einn dag­inn mun hún ekki draga hann aftur upp úr“. Og önnur athuga­semd: „Að deita hann er eins og að vinna góð­gerð­ar­starf“. „Þú ættir bara að drekkja honum“. Það eru þús­undir ann­arra athuga­semda í þessa átt­ina. Þúsundir.“Shane seg­ist vera þreyttur á að eyða ævinni í að reyna að fá heim­inn til að sam­þykkja sig.„Ég er þreyttur, krakkar. Þreyttur á að eyða öllu lífi mínu í að reyna að fá heim­inn til að sam­þykkja mig. Þreyttur á að helga feril minn því að fræða fólk um hina sönnu upp­lifun fatl­aðra, aðeins til að vera minntur á það – DAGLEGA, af hund­ruðum þús­unda manna – að ég er enn almennt álit­inn „græn­meti“ sem að þeirra mati ætti frekar að vera dauður. Þreyttur á að vera nið­ur­lægður og vísað frá. Mikið magn þess­ara skelfi­legu athuga­semda er yfir­þyrm­andi, svo vin­sam­leg­ast, ég bið þig, ekki segja mér að hunsa þau ein­fald­lega. Þetta er raun­veru­legt, raun­veru­legt fólk, með fjöl­skyldur og störf, með áhrif og atkvæði, sem er úti í heim­inum á hverjum degi og geymir þessar algjör­lega ógeðs­legu hug­myndir um fatlað fólk. Það er sjúk­legt.“

Og Shane heldur áfram:

„Það eru augna­blik eins og þessi þegar ég vil bara kasta inn hand­klæð­inu. Ég og Hannah höfum gefið heim­inum þús­undir klukku­stunda af ekta og per­sónu­legu efni um líf okkar. Við höfum unnið af ástríðu og sleitu­laust að því að sýna fólki að fatlað líf er jafn gilt, verð­ugt, þrosk­andi og gleði­legt og hvert annað, en samt fyllir hatur öll athuga­semda­kerfi sem við mynd­böndin sem við búum til.“

Að lokum seg­ist Shane ekki ætla að gef­ast upp.

„Ég mun þó ekki gef­ast upp. Þetta er of mik­il­vægt fyrir mig og það er of mikið í húfi. Þangað til fatlað fólk er tekið af heim­inum okkar sem jafn­ingjar, mun ég vera hér, deila fötl­uðu lífi mínu sem ég hef svo gaman af og þykir vænt um og vona (kannski gegn skyn­semi) að það breyti ein­hverju.
Ég trúi því að fólk geti skipt um skoðun. Ég trúi því að fólk geti vaxið.
Ef þú trúir því líka og ef þú trúir því að það sé eng­inn staður í þessum heimi fyrir það hatur sem við fáum, þá myndi það skipta mig öllu máli ef þú myndir deila þess­ari færslu. Berjumst gegn hatri með ást. Þakka þér af öllu mínu hjarta fyrir allan stuðn­ing­inn sem þú gefur okkur. Þú heldur mér svo sann­ar­lega gang­andi þegar ég stend frammi fyrir því sem lítur út eins og yfir­þyrm­andi skrímsli.
Ást­ar­kveðjur, Shane“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco