Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mogginn stal mynd af Degi og klippti í burtu vinina: „Ég var að borða epli, eldrauður í framan“

Mogginn stal mynd af Degi og klippti í burtu vinina: „Ég var að borða epli, eldrauður í framan“
Skjámynd af síð­unni í Mogganum.

Dagur B. Egg­erts­son, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, er ósáttur vegna mynd­birt­ingar Morg­un­blaðs­ins og þjófn­aði blaðs­ins á mynd sem Dagur birti á Facebook-síðu sinni.

„Morg­un­blaðið er stað­ráðn­ara en nokkru sinni fyrr í að verða að atlægi og verður hlægi­legra og hlægi­legra með hverjum deg­inum. Í stað­inn fyrir að leið­rétta (vís­vit­andi?) rangar fréttir sínar um orlofs­mál í sam­ræmi við hefð­bundin vinnu­brögð í blaða­mennsku og siða­reglur Blaða­manna­fé­lags­ins nær hall­æris­gang­ur­inn nýjum hæðum í blaði dags­ins,“ skrifar Dagur á Facebook og vísar til þess að Mogginn tók mynd sem hann birti á Facebook um helg­ina, sjálfum sér og vinum sínum til skemmt­unar „þar sem ég var að borða epli, eld­rauður í framan, nýkom­inn í mark eftir Reykja­vík­ur­mara­þonið. Ég not­aði þau orð að fólk þyrfti að passa sig á að borða ekki epli á myndum og líkti sjálfum mér við teikni­mynda­hetj­una Shrek,“ skrifar Dagur.

Dagur B. Egg­erts­son, fyrrum borg­ar­stjóri í Reykja­vík

Hann segir að blaða­menn hafi klippt vini sína út af mynd­inni og birt hana án skýr­inga í dag með slúð­ur­dálk­inum Stak­steinum þar sem, harka­lega er veist að borg­ar­stjór­anum fyrr­ver­andi. Við hlið Stak­steina, sem gjarnan eru skrif­aðir af Davíð Oddssyni, er teiknuð grín­mynd með text­anum Dagur í orlofi.

„Það á vænt­an­lega að vera mér til háð­ungar. Óskap­lega líður blað­inu illa. Er eng­inn full­orð­inn með fullu viti sem vinnur þarna?“ spyr Dagur og segir að þetta sé því miður eitt af mörgu sem und­ir­strikar það nið­ur­læg­ing­ar­skeið sem þetta gamla blað sé að ganga í gegnum.

Guðbjörg Matth­í­as­dóttir

„Aðstand­endum Morg­un­blaðs­ins sendi ég mínar inni­leg­ustu sam­úð­ar­kveðjur,“ eru loka­orð Dags.
Morg­un­blaðið hefur und­an­farið fjallað með óvægnum hætti um orlofs­mál Dags. Aðal­eig­andi blaðs­ins er Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, auð­kona í Vest­manna­eyjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum