Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Krefjast rannsóknar á drápi á bandarískri konu á Vesturbakkanum: „Blíður og hugrakkur sólargeisli“

Krefjast rannsóknar á drápi á bandarískri konu á Vesturbakkanum: „Blíður og hugrakkur sólargeisli“
Aysenur Ezgi Eygi Mynd: Trausti Hafsteinsson

Sam­ein­uðu þjóð­irnar hafa kallað eftir „ítar­legri rann­sókn“ á drápi á banda­rísk-tyrk­neskri konu á hernumdu svæði Vest­ur­bakk­ans í Palest­ínu en hún var skotin í höf­uðið í mót­mælum síð­ast­lið­inn föstu­dag.

Stað­bundnir fjöl­miðlar greindu frá því að Aysenur Ezgi Eygi, 26 ára, hafi verið skotin til bana af ísra­elskum her­mönnum þegar hún tók þátt í viku­legum mót­mælum gegn stækkun land­nema­byggða gyð­inga í bænum Beita nálægt Nablus.

Ísra­elski her­inn seg­ist vera að „skoða til­kynn­ingar um að erlendur rík­is­borg­ari hafi verið drep­inn vegna skota á svæð­inu“.

Fjöl­skylda Eygi sagði í yfir­lýs­ingu að þau væru í áfalli og sorg yfir því að hinn ást­ríki og „gíf­ur­lega ástríðu­fulli mann­rétt­inda­fröm­uður“ væri far­inn. Fjöl­skyldan sagði að mynd­band sýndi að hún hafi verið myrt af byssu­kúlu frá ísra­elska hernum og kall­aði eftir því að Banda­ríkin rann­saki málið.

Banda­rísk yfir­völd hafa hvatt Ísraela til að rann­saka atvikið. Sean Savett, tals­maður þjóðar­ör­ygg­is­ráðs Hvíta húss­ins, sagði að yfir­völd í Washington væri „mjög óró­leg yfir hörmu­legum dauða banda­rísks rík­is­borg­ara“. Bætti hann við: „Við höfum leitað til rík­is­stjórnar Ísraels til að biðja um frek­ari upp­lýs­ingar og óska ​​eftir rann­sókn á atvik­inu“.

Í yfir­lýs­ingu sagði fjöl­skylda Eygi að í ljósi aðstæðna væri ísra­elsk rann­sókn „ekki full­nægj­andi“ og hvatti Banda­ríkin til að fram­kvæma óháða rann­sókn og „tryggja fulla ábyrgð fyrir hina seku aðila“.

Stéphane Dujarric, tals­maður fram­kvæmda­stjóra Sam­ein­uðu þjóð­anna, sagði: „Við myndum vilja sjá ítar­lega rann­sókn á aðstæðum og að fólk verði látið sæta ábyrgð.“ Bætti hann við að almennir borg­arar „verði að vernda öllum stundum“.

Á myndefni frá vett­vangi skömmu eftir skotárás­ina má sjá hvernig sjúkra­liðar drífa Eygi inn í sjúkra­bíl.

Ísra­elski aðgerð­ar­sinni Jonathan Pollak, sem var við mót­mælin, sagði í þætti BBC, World Service Newshour að hann hefði séð „her­menn á þak­inu miða“. Sagðist hann hafa heyrt tvö aðskilin skot­hljóð, „það liðu um sek­únda eða tvær á milli þeirra“. „Ég heyrði ein­hvern kalla nafnið mitt og segja á ensku: „Hjálpið okkur. Við þurfum hjálp. Við þurfum hjálp.“ Ég hljóp á móti þeim,“ sagði hann enn­fremur. Hann sagð­ist þá hafa séð Eygi „liggj­andi á jörð­inni undir ólífu­tré, blæð­andi til bana frá skotsári á höfði“. „Ég setti hönd­ina fyrir aftan bak hennar til að reyna að stöðva blæð­ing­una,“ sagði hann. „Ég leit upp, það var skýr sjón­lína á milli her­mann­anna og hvar við vorum. Ég tók púls­inn á henni og hann var mjög, mjög veikur.“

Hann bætti við að mót­mælin á föstu­dag­inn hefði það verið í fyrsta skipti sem Eygi var við­stödd mót­mæl með Alþjóð­legu sam­stöðu­hreyf­ing­unni, sem er styður mál­stað Palest­ínu.

Eygi var flutt með hraði á spít­ala í Nablus en var síðar úrskurðuð látin.

Dr. Fouad Nafaa, yfir­maður Rafidia-sjúkra­húss­ins þar sem Eygi var lögð inn, stað­festi að banda­rískur rík­is­borg­ari á miðjum þrí­tugs­aldri hefði lát­ist af völdum „byssu­skots í höf­uðið“.

Í yfir­lýs­ingu frá ísra­elska hernum segir: „Meðan ísra­elska örygg­is­sveitin var að störfum við nærri Beita-svæð­inu, svör­uðu sveit­irnar með skoti í átt að aðal­hvata­manni ofbeld­is­verka sem kastaði grjóti að sveit­unum og ógn­aði þeim. IDF er að skoða fregnir um að erlendur rík­is­borg­ari hafi lát­ist af völdum skota á svæð­inu. Verið er að skoða atvikið og aðstæður þar sem hún varð fyrir skot­inu“.

Í við­tal­inu við BBC var Jonathan Pollak, spurður út í yfir­lýs­ingu Ísra­els­hers um að örygg­is­sveitir hefðu brugð­ist við grjót­kasti. Sagði hann að til átaka hefði komið en honum fannst her­menn­irnir „ekki í neinni hættu“. Það hefði ekki verið „neitt grjót­kast“ þar sem hún [Eygi – inn­skot blaða­manns] hafði verið, að hans sögn.

Antony Blinken, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, harm­aði hið „hörmu­lega missi“ en Recep Tayyip Erdogan, for­seti Tyrk­lands, sagði aðgerðir Ísra­els­manna „villi­manns­legar“.

Fjöl­skylda Eygi seg­ist vera að glíma við þann raun­veru­leika að hún sé dáin. „Eins og ólífu­tréð sem hún lá undir þar sem hún dró síð­asta and­ann, var Aysenur sterk, fal­leg og umhyggju­söm. Nærvera hennar í lífi okkar var tekin að óþörf með ólög­mætum og ofbeld­is­fullum hætti af ísra­elska hernum,“ sagði fjöl­skyldan í yfir­lýs­ingu.

Fjöl­skylda lýsti henni sem „ást­ríkri dóttur, systur, maka og frænku“ sem var „blíð, hug­rökk, kjána­leg, trygg og algjör sól­ar­geisli“ og „lifði lífi þar sem hún hlúði að þeim sem voru í neyð með aðgerðum“.

Eygi fædd­ist í Antalya, sam­kvæmt tyrk­neskum miðlum. Hún útskrif­að­ist fyrir þremur mán­uðum frá Háskóla Washington í Seattle, það sem hún lærði sál­fræði og tungu­mál og menn­ingu Mið-aust­ur­landa, sam­kvæmt fjöl­skyldu hennar. Hún var virk í mót­mælum háskóla­nema og fann sig knúna til að ferð­ast til Vest­ur­bakk­ans til að „sýna sam­stöðu með óbreyttum palest­ínskum borg­urum“.

Forseti Washington-háskól­ans, Ana Mari Cauce, lýsti fréttum af and­láti Eygi sem „hræði­legum“ og bætti við að nem­and­inn fyrr­ver­andi hefði haft „jákvæð áhrif“ á aðra nem­endur skól­ans.

Ísra­elskar her­sveiti drógu sig út úr borg­inni Jenin og flótta­manna­búðum hennar á hernumdum Vest­ur­bakk­anum á föstu­dag, eftir stóra aðgerð þar sem stóð yfir í níu daga.

Palest­ínska heil­brigð­is­ráðu­neytið segir að að minnsta kosti 36 Palest­ínu­menn hafi verið drepnir, 21 frá Jenin-hér­aði á þeim tíma. Flestir hinna látnu hafa verið með­limir vopn­aðra hópa en ráðu­neytið segir að börn séu einnig meðal þeirra sem drepin voru.

Á und­an­förnum 50 árum hefur Ísrael byggt land­nema­byggðir á Vest­ur­bakk­anum og Austur-Jer­úsalem, þar sem nú búa yfir 700.000 gyð­ingar. Land­nema­byggð­irnar eru taldar ólög­legar sam­kvæmt alþjóða­lögum, það er meðal ann­ars afstaða örygg­is­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna og breskra stjórn­valda, þó Ísrael hafni því.

BBC sagði frá mál­inu.

Hér má sjá umfjöllun The Guardian um málið:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife